Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Birgir Olgeirsson skrifar 26. maí 2026 14:21 Guðmundur Hafsteinsson er stjórnarformaður Icelandair. Hann starfaði áður sem yfirmaður vöruþróunar hjá Google Assistant. Vísir „Stjórnin ber fullt traust til Boga og stjórnenda,“ segir Guðmundur Hafsteinsson, formaður stjórnar Icelandair, þegar hann er spurður út í frétt Viðskiptablaðsins þar sem haft er eftir heimildarmönnum að stjórn Icelandair standi þétt að baki Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair.
Viðskiptablaðið segir stjórn Icelandair samstíga í viðbrögðum vegna kjaradeilna við flugmenn félagsins, en Bogi Nils hefur sagt að aflýsingar á áætlunarferðum Icelandair vegna áhafnarskorts séu tilkomnar vegna samstilltra aðgerða flugmanna. Því hafa flugmenn neitað heldur segja þessar aflýsingar alfarið á ábyrgð Icelandair sem ætli sér að treysta á að halda flugáætlun með því að kaupa frídaga af flugmönnum. Icelandair segir hins vegar ríka hefð fyrir sölu frídaga og það sé hluti af kjarasamningum flugmanna. Flugmenn hafi síðast hafnað sölu frídaga árið 2014, þegar þeir voru í kjaradeilu við Icelandair. Guðmundur segir í samtali við Vísi að stjórnin vonist til að farsæl lausn finnist á kjaradeilu Icelandair og flugmanna. Þá segir Guðmundur að traustið til Boga sé einnig gagnvart öðrum verkefnum sem félagið standi frammi fyrir. Það séu einnig miklar áskoranir vegna hækkunar olíuverðs. „Og við vitum að þau eru að vinna ötullega að þessu og treystum þeim til að sinna þeim verkefnum,“ segir Guðmundur. Viðskiptablaðið segir mikla óánægju hjá hluthöfum vegna stöðunnar sem er uppi vegna flugmanna. Heimildir blaðsins herma að hluthafar, líkt og forstjórinn, telji flugmenn vera í samstilltum aðgerðum og það sé skýrt brot á kjarasamningi. Þá segist Viðskiptablaðið einnig hafa heimildir fyrir því að hluthafar skoði grundvallarbreytingu á rekstri Icelandair í ljósi stöðunnar vegna flugmanna. Ein leiðin væri að sögn Viðskiptablaðsins að sameina félagið við erlent flugfélag, önnur leiðin væri að flytja allan rekstur félagsins út fyrir landsteinana og sú þriðja væri að leysa félagið upp. Guðmundur segist í samtali ekki hafa heyrt af slíkri umræðu meðal hluthafa og því ekki í stöðu til að tjá sig um slíkt. Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna funduðu hjá ríkissáttasemjara í gær og aftur í dag. Vinnufyrirkomulag flugmanna hefur verið þar til umræðu, þar á meðal vinnuframlag og skipulagning vinnu með tilliti til vakta og frídaga.
Icelandair Kjaramál Flug Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið Sjá meira