Rafbyssugríman er fallin Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifar 21. maí 2026 08:31 Þegar Jón Gunnarsson, þáverandi dómsmálaráðherra tók fyrirvaralausa og ólögmæta ákvörðun um að gefa lögreglu heimild til þess að bera rafbyssur sagði hann okkur að þannig yrði almenningur öruggari. Að þannig yrðu mál lögreglu leyst með minni valdbeitingu en annars þyrfti. Fulltrúar lögreglunnar, sem talað höfðu hástöfum fyrir því að fá að bera rafbyssur sögðu okkur meðal annars að það væri skárra að fá í sig rafstraum heldur en kylfuhögg. Rafbyssur væru okkur því öllum til góða, í stað kylfuhöggs fáum við nokkur þúsund volt beint í æð. Enda skárra. Þegar fréttir bárust fyrst af því að lögreglan hafði skotið mann í andlegu ójafnvægi sem hellt hafði yfir sig bensínvökva, ekki einu sinni heldur tvisvar með rafbyssu sagði Lögreglustjórinn á Suðurnesjum okkur að það sé „minna inngrip að nota slíkt vopn [rafbyssu] heldur en til dæmis að grípa til skotvopna.“ Ég spyr mig hvort maðurinn sem liggur nú þungt haldinn á spítala í Noregi með brunasár á um 50% líkamans sé sammála þessari yfirlýsingu lögreglustjórans. Rafbyssur verða rafvarnarvopn Tilefni þessarar greinar er auðvitað þetta rosalega mál, mál þar sem lögreglan er sögð hafa neytt vitni með hótunum til þess að eyða myndbandsupptöku af atburðum. En það er fleira sem kemur til. Lögreglan hefur um ókomna tíð fengið nokkurn veginn afskiptalaust að stjórna því hvernig fréttir eru sagðir af henni og hvaða orð eru notuð til þess að lýsa háttsemi hennar. Fjölmiðar eru gjarnir á að apa yfirlýsingar upp eftir lögreglu og forðast að spyrja hana gagnrýninna spurninga um framferði sitt. Augljóst dæmi um þetta er hvernig lögreglunni og þáverandi dómsmálaráðherra tókst að sannfæra fjölmiðla um að ekki ætti að kalla rafbyssur rafbyssur, heldur rafvarnarvopn. Það var mikilvægur áróðurssigur að fjarlægja orðið byssa úr opinberri umræðu um mjög óvinsæl vopn í huga almennings. Nú hefur lögreglan beitt rafbyssu á mann sem var að hlaupa í burtu frá henni. Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn? Sjálfstætt eftirlit með störfum lögreglu er nauðsynlegt Það er gott að héraðssaksóknara hefur borist kæra frá lögmanni mannsins sem særðist illa í aðgerðum lögreglu á Reykjanesi. Það sætir þó furðu að héraðssaksóknari hafi ekki hafið rannsókn af eigin frumkvæði þegar í stað. Lýðræði og réttarríki er ekki ókeypis og sofandaháttur gagnvart valdbeitingargræðgi yfirvalda tekur á endanum sinn toll. Hann birtist í brunasárum, líkamsmeiðingum, njósnum um saklaust fólk, barsmíðum á mótmælendum og annars konar valdníðslu. Og þrátt fyrir þrotlausa baráttu sumra er enn ekki búið að stofna til sjálfstæðs eftirlits með störfum lögreglu þó svo að vopnaburður lögreglu og eftirlitsheimildir hennar hafi verið stórauknar á undanförnum árum. Vonandi auðnast okkur að breyta því sem allra fyrst. Höfundur er Framkvæmdastjóri Mannréttindasamtakanna Courage International AISBL og fyrrverandi þingmaður Pírata. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Lögreglumál Rafbyssur Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar