Ásthildur hættir sem bæjarstjóri á Akureyri Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 20. maí 2026 15:14 Ásthildur Sturludóttir hefur verið bæjarstjóri í átta ár. Ásthildur Sturludóttir lætur af störfum um næstu mánaðarmót sem bæjarstjóri Akureyrarbæjar eftir átta ár í starfi. Hún greinir frá þessu í tilkynningu á samfélagsmiðlum.
Þar segist hún stolt af verkum sínum í því krefjandi umhverfi sem rekstur sveitarfélaga ávallt sé. Greint var frá því fyrr í dag að L-listi, Sjálfstæðisflokkur og Framsókn hefðu myndað nýjan meirihluta. Er Miðflokki þar skipt út af fyrir Framsókn. Óðinn Svan Óðinsson oddviti L-listans vildi ekki greina frá því hver verður bæjarstjóri en sagði að staðan yrði ekki auglýst í þetta sinn. Nýr meirihluti muni kynna samstarfið og sáttmála á blaðamannafundi á föstudag. Samstarfið hafi verið óaðfinnanlegt Ásthildur rifjar það upp í færslu sinni að hún hafi verið ráðin af L-lista, Framsóknarflokki og Samfylkingu sumarið 2018. Mörgum hafi komið á óvart að innmúraður Sjálfstæðismaður væri ráðinn til starfans en Ásthildur segir sig og bæjarstjórn hafa átt óaðfinnanlegt samstarf og komið fjölmörgu í verk á krefjandi tímum. Þá rifjar Ásthildur upp hin ýmsu verkefni sem hún hefur komið að undanfarin ár. „Ég vil þakka öllum bæjarfulltrúum sem ég hef starfað með, sérstaklega þó oddvitunum Guðmundi Baldvin, Höllu Björk, Hildu Jönu, Heimi Erni, Elmu og Hlyni fyrir framúrskarandi samstarf og vináttu á þessum 8 árum sem og auðvitað öllum hinum bæjarfulltrúum sem ég hef starfað með. Allt er þetta mikið öndvegisfólk,“ skrifar Ásthildur. Hún segir Huldu Sif aðstoðarmann sinn þó eiga mestar þakkir skilið auk Ragnars Hólms upplýsingafulltrúa. Þá nefnir hún líka sviðsstjóra, Ingu Þöll bæjarlögmann og annað starfsfólk Akureyrarbæjar sem hún segir einstök. „Í samfélaginu hér á Akureyri búa gríðarleg tækifæri og framtíðin er sannarlega björt ef bæjarstjórn, bæjarbúar og atvinnulífið sýna samstöðu og hafa til þess metnað að halda áfram uppbyggingu liðinna ára með það fyrir augum að gera gott betra og efla svæðisborgina okkar. Ég óska nýrri bæjarstjórn velfarnaðar í mikilvægum störfum og nýjum bæjarstjóra óska ég alls hins besta í flóknum verkefnum.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Akureyri Vistaskipti Tímamót Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira