Samstarf

Nýtt á Ís­landi: auglýsingalausn sem sam­einar sjón­varp og samfélagsmiðla

Sýn
Sigmar Vilhjálmsson sölustjóri sjónvarps, Ragnhildur Guðmundsdóttir forstöðumaður auglýsingasviðs Sýnar, Davíð Baldursson vörustjóri og Stefán Örn Einarsson sölustjóri Vísis og útvarps, fóru yfir vel heppnaðan vetur á Sýn Sport og Sýn +. Auk þess kynntu þau nýjung í auglýsingum.
Sigmar Vilhjálmsson sölustjóri sjónvarps, Ragnhildur Guðmundsdóttir forstöðumaður auglýsingasviðs Sýnar, Davíð Baldursson vörustjóri og Stefán Örn Einarsson sölustjóri Vísis og útvarps, fóru yfir vel heppnaðan vetur á Sýn Sport og Sýn +. Auk þess kynntu þau nýjung í auglýsingum. Hulda Margrét

Sýn kynnti nýja auglýsingalausn undir heitinu Auglýsinga RÍL á fjölmennum viðburði á dögunum þar sem farið var yfir vel heppnaðan vetur hjá Sýn Sport og Sýn+. Auglýsinga Ríl sameinar hraða og sköpunarkraft samfélagsmiðla við áhrifamátt sjónvarpsins.

Lausnin er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og er þróuð fyrir fyrirtæki sem vilja nýta efni sem þau framleiða nú þegar fyrir samfélagsmiðla en í umhverfi þar sem áhorfið er þegar til staðar, mælt af þriðja aðila og athyglin er meiri.

Auglýsinga RÍL byggir á einfaldri hugmynd, að færa reel- og story-efni frá samfélagsmiðlum yfir á einn áhrifamesta miðil landsins, sjónvarpið. Þar fær efnið nýtt samhengi með skýrum skilaboðum, kalli til aðgerða og QR kóða sem leiðir áhorfendur beint í næsta skref. 

Þannig verður til ný tegund auglýsinga sem sameinar vörumerkjauppbyggingu og mælanleg viðbrögð í einni birtingu.

Ragnhildur Guðmundsdóttir. „Þú þarft ekki að velja á milli samfélagsmiðla og sjónvarps. Gerðu bæði.“Hulda Margrét

Fyrirtæki leggja í dag mikla vinnu í að framleiða stutt og áhrifarík myndbönd fyrir samfélagsmiðla. 

Á samfélagsmiðlum ertu að vona að fólk horfi og hlusti, en í sjónvarpi er fólk að horfa og hlusta. Með Auglýsinga RÍL fær efnið nýtt líf á vönduðum miðli þar sem auglýsendur fá tryggt áhorf og skýra leið til að kalla fram viðbrögð.

Breytt hegðun kallar á nýjar lausnir

Klippa: Sýn kynnir nýja lausn í auglýsingum

Lausnin er þróuð fyrir breytta neysluhegðun þar sem fólk er vant hröðu, sjónrænu og skýru efni. Uppsetningin byggir á þremur lykilþáttum: sterkum skilaboðum eða vörumerki, reel- eða story-efni frá auglýsanda og aðgerðarsvæði með upplýsingum, tilboðum og QR kóða.

Markaðsfólk fjölmennti á viðburðinnHulda Margrét

Verðmætin aftur inn á íslenskan markað

Á síðustu árum hefur sífellt stærri hluti íslensks auglýsingafjár flust úr landi til alþjóðlegra samfélagsmiðla og tæknirisa. Með Auglýsinga RÍL vill Sýn skapa leið til að færa hluta þessarar athygli og verðmætasköpunar aftur inn á íslenskan markað.

„Þú þarft ekki að velja á milli samfélagsmiðla og sjónvarps. Gerðu bæði.“

Auglýsinga RÍL er jafnframt hagkvæm leið fyrir fyrirtæki til að komast í sjónvarp án umfangsmikillar framleiðslu eða stórra herferða. Fyrirtæki geta nýtt efni sem þegar er til staðar og umbreytt því á einfaldan hátt í sjónvarpsherferð.

Hlynur Steingrímsson viðskiptastjóri hjá Sýn, Bogi Ísak Bogason viðskiptafræðingur hjá Bestun, Eiríkur Stefán Ásgeirsson forstöðumaður íþrótta Sýnar og Kristjana Thors Brynjólfsdóttir framkvæmdastjóri miðla Sýnar.Hulda Margrét

Með þessari nýju lausn stefnir Sýn að því að brúa bilið milli samfélagsmiðla og sjónvarps og skapa nýjan auglýsingaflokk á íslenskum markaði.

„Samfélagsmiðlar búa til efnið. Sjónvarp tryggir áhorfið. Auglýsinga RÍL sameinar hvort tveggja.“

Nánari upplýsingar um Auglýsinga RÍL má finna hjá Sýn.

Magna Sveinsdóttir og Elsa Jensdóttir viðskiptastjórar hjá Sýn og Sigrún L Sigurjónsdóttir forstjóri Ormsson.Hulda Margrét
Herbert S Arnarson hjá Lykill fjármögnun, Kjartan Atli Kjartansson íþróttafréttamaður, Björn Bragi Arnarson sjónvarpsmaður og Heiðar Valur Bergmann viðskiptastjóri hjá Sýn.Hulda Margrét
Vörumerkjastjórarnir Eva Birna Ormslev, Kristín Ásta Brynjarsdóttir, Anna Sesselja Marteinsdóttir og Hildur Hilmarsdóttir, ásamt Maríu Jónu Daníelsdóttur framkvæmdastjóra Danól og Unni Steinsson vörumerkjastjóra.Hulda Margrét
María Rosario Blöndal markaðsstjóri Tengis, Rúnar Kristmannsson og Katrín Pétursdóttir markaðsstjórar hjá Nóa Sírius og Ari Friðfinnsson markaðsstjóri Emmess ís.Hulda Margrét
Margrét Björnsdóttir verkefnastjóri og Selma Rós Axelsdóttir sérfræðingur hjá Digido.Hulda Margrét
Ragnhildur Guðmundsdóttir forstöðumaður auglýsingasviðs og Guðmundur Halldór Björnsson framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðsHulda Margrét
Sigmar fór yfir nýju auglýsingalausnina með gestum.Hulda Margrét
Eiríkur Stefán fór yfir árangur Sýn Sport.Hulda Margrét
Björn Bragi fór á kostum.Hulda Margrét

Hér fyrir neðan má fletta í gegnum fleiri myndir frá viðburðinum:

Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét






Fleiri fréttir

Sjá meira


×