Ísland verðleggur sig út af markaði Diljá Matthíasardóttir skrifar 18. maí 2026 16:31 Það vekur ugg að sjá niðurstöður landamærakönnunar Ferðamálastofu fyrir árið 2025 sem stofnunin birti í síðustu viku. Þar sem sífellt fleiri ferðamenn sem sækja landið heim svara því til að Íslandsferðin hafi ekki verið peninganna virði. Árið 2022 var hlutfall þeirra ferðamanna um 11% en í fyrra var hlutfallið komið í rúmlega 18%. Augljóst er að auknar álögur í boði stjórnvalda hafa sett strik í reikninginn og nú ætla þau sér að þyngja róður íslenskrar ferðaþjónustu enn frekar, ofan á allt það sem orðið hefur og alla þá óvissu sem atvinnugreinin stendur frammi fyrir. Ef tengja má niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna við landsmálin og skattagleði ríkisstjórnarinnar er ljóst að landsmenn eru meira en langþreyttir á framgöngu ríkisstjórnarflokkanna sem leggja verðmætasköpun landsins síendurtekið að veði. Nærtækast væri fyrir stjórnvöld að hverfa nú af villtum vegi aukinna álaga, læra af reynslunni og hlúa að atvinnulífinu. Því er verr og miður, að öllum líkindum aðeins óskhyggjan ein. Sjálfsmark í uppsiglingu Fyrir liggur að fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031 er komin til fjárlaganefndar og hún mun taka málið fyrir á næstu dögum. Það er ekki hægt annað en að hvetja meirihluta nefndarinnar sérstaklega til að opna augun fyrir þeim neikvæðu áhrifum sem fyrirhuguð áform varðandi ferðaþjónustu geta hæglega haft í för með sér. Ótækt er að ekki hafi verið gerð tilraun til að leggja mat á þau áhrif sem áformin munu óumflýjanlega hafa á hegðun fólks og fyrirtækja. Áhrifin af innleiðingu innviðagjaldsins á farþega skemmtiferðaskipa ættu aftur á móti að segja þingmönnum nefndarinnar allt sem segja þarf. Hækkun virðisaukaskattshlutfallsins á aðgang að baðlónum og aukin gjaldtaka á ferðamannastöðum höggva í sama knérunn. Velflest baðlón landsins eru staðsett á landsbyggðinni og þeir ferðamannastaðir sem munu verða fyrir barðinu á aukinni gjaldtöku sömuleiðis. Hér verður að staldra við og vanda til verka, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar er undir. Það yrði engum til bóta fari svo að enn fleiri ferðamenn telji Íslandsferðina ekki peninganna virði. Ábyrgð meirihluta fjárlaganefndar er mikil og boltinn er hjá honum, ekki skora sjálfsmark. Höfundur er hagfræðingur Samtaka ferðaþjónustunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Sjá meira
Það vekur ugg að sjá niðurstöður landamærakönnunar Ferðamálastofu fyrir árið 2025 sem stofnunin birti í síðustu viku. Þar sem sífellt fleiri ferðamenn sem sækja landið heim svara því til að Íslandsferðin hafi ekki verið peninganna virði. Árið 2022 var hlutfall þeirra ferðamanna um 11% en í fyrra var hlutfallið komið í rúmlega 18%. Augljóst er að auknar álögur í boði stjórnvalda hafa sett strik í reikninginn og nú ætla þau sér að þyngja róður íslenskrar ferðaþjónustu enn frekar, ofan á allt það sem orðið hefur og alla þá óvissu sem atvinnugreinin stendur frammi fyrir. Ef tengja má niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna við landsmálin og skattagleði ríkisstjórnarinnar er ljóst að landsmenn eru meira en langþreyttir á framgöngu ríkisstjórnarflokkanna sem leggja verðmætasköpun landsins síendurtekið að veði. Nærtækast væri fyrir stjórnvöld að hverfa nú af villtum vegi aukinna álaga, læra af reynslunni og hlúa að atvinnulífinu. Því er verr og miður, að öllum líkindum aðeins óskhyggjan ein. Sjálfsmark í uppsiglingu Fyrir liggur að fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031 er komin til fjárlaganefndar og hún mun taka málið fyrir á næstu dögum. Það er ekki hægt annað en að hvetja meirihluta nefndarinnar sérstaklega til að opna augun fyrir þeim neikvæðu áhrifum sem fyrirhuguð áform varðandi ferðaþjónustu geta hæglega haft í för með sér. Ótækt er að ekki hafi verið gerð tilraun til að leggja mat á þau áhrif sem áformin munu óumflýjanlega hafa á hegðun fólks og fyrirtækja. Áhrifin af innleiðingu innviðagjaldsins á farþega skemmtiferðaskipa ættu aftur á móti að segja þingmönnum nefndarinnar allt sem segja þarf. Hækkun virðisaukaskattshlutfallsins á aðgang að baðlónum og aukin gjaldtaka á ferðamannastöðum höggva í sama knérunn. Velflest baðlón landsins eru staðsett á landsbyggðinni og þeir ferðamannastaðir sem munu verða fyrir barðinu á aukinni gjaldtöku sömuleiðis. Hér verður að staldra við og vanda til verka, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar er undir. Það yrði engum til bóta fari svo að enn fleiri ferðamenn telji Íslandsferðina ekki peninganna virði. Ábyrgð meirihluta fjárlaganefndar er mikil og boltinn er hjá honum, ekki skora sjálfsmark. Höfundur er hagfræðingur Samtaka ferðaþjónustunnar.
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar