Um þrjátíu þúsund kosið utankjörfundar Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 15. maí 2026 12:36 Margir hafa lagt leið sína til sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu til að skila sínu atkvæði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Vísir/Vilhelm Töluvert fleiri hafa kosið utankjörfundar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar en þær síðustu eða um þrjátíu þúsund manns.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst 17. apríl og segir Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu hana hafa gengið vel. „Þegar við lokuðum í gær höfðu 19.476 kosið hjá okkur frá 17. apríl og í gær kusu 3.024 hjá sýslumönnum á höfuðborgarsvæðinu og þetta er mikil aukning. Þetta er um 38% aukning frá því í sveitarstjórnarkosningum 2022 og hjá öllum sýslumönnum og sendiráðum hafa kosið í gær, þegar lokað var, 29.304, sem er líka mun meira en í síðustu kosningum.“ Erfitt sé að segja til um hvað skýri þessa auknu þátttöku en mögulega hafi frídagurinn í gær haft áhrif á að fleiri séu á faraldsfæti. Opið verður hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu til klukkan níu í kvöld. Á morgun verður svo hægt að greiða atkvæði þar utan kjörstaðar. „Við erum síðan með opið á morgun á milli tíu og sautján fyrir þá sem ekki komast í sína kjördeild og það er rétt að taka það fram að þeir sem kjósa hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu og eru ekki með lögheimili þar þurfa að koma atkvæðinu sínu til skila sjálfir og bera ábyrgð á því.“ Undirbúningur fyrir morgundaginn er í fullum gangi og segir Eva Bryndís Helgadóttir, formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavík, allt ganga vel og vera á áætlun. „Starfsfólk er í óðaönn við að setja alla kjörstaði upp, þetta eru náttúrulega margir kjörstaðir og margar kjördeildir, þannig að það er alveg nóg að gera.“ Kjörstaðir verða opnaðir klukkan níu í fyrramálið. „Ég myndi brýna fyrir kjósendum til dæmis að hafa með sér skilríki og svo ef kjósandinn ætlar sér að strika út eitthvað nafn á einhverju framboði að gera það á þeim lista sem hann kýs, vegna þess að annars ertu að ógilda seðilinn.“ Hún segir dæmi um að útstrikanir hafi haft áhrif í fyrri kosningum. Misjafnt sé þó hversu margar útstrikanir þurfi til að þær hafi áhrif á röð frambjóðenda. „Erfitt að segja nákvæmlega um prósentu af því. Kannski fer það svolítið eftir því hvaða sæti og hvað viðkomandi framboð fær mörg atkvæði í heildina og hvernig þetta, til þess að þetta hafi áhrif, þannig að það er svolítið flókið að segja eitthvað afgerandi um það hvað það þarf mikið af útstrikunum til þess að það hafi áhrif. En stutta svarið er það þarf mikið.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Sjá meira