Takk Reykvíkingar – stolt af því sem við áorkuðum saman Ellen Calmon skrifar 15. maí 2026 08:23 Það eru forréttindi að fá tækifæri til að sinna málefnum sem maður hefur raunverulega ástríðu fyrir og sú reynsla hefur í sjálfu sér verið verðmæt. Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að gegna hlutverki varaborgarfulltrúa fyrir Samfylkinguna lengst af á síðustu tveimur kjörtímabilum en einnig verið formaður borgarstjórnarflokksins nú síðasta misserið, en nú tekur við nýr kafli. Margir gera sér ef til vill ekki grein fyrir því að starf varaborgarfulltrúa er að mestu leyti ólaunað, utan þeirra funda sem setið er á vegna forfalla borgarfulltrúa. Varaborgarfulltrúar sinna ýmsum öðrum verkefnum og taka jafnvel þátt í vinnu starfshópa án þóknunar. Undanfarin átta ár hef ég því sinnt ýmsu í sjálfboðavinnu bæði fyrir Reykvíkinga og Samfylkinguna, líkt og margir aðrir í sambærilegri stöðu. Þessum verkefnum hef ég sinnt af heilindum og ástríðu og þau hafa veitt mér dýrmæta reynslu, þekkingu og innsýn sem ég mun alltaf búa að. Ég fer stolt frá borði eftir gjöfult og árangursríkt samstarf í þessum fimm flokka meirihluta sem Heiða Björg Hilmisdóttir borgarastjóri hefur leitt af krafti. Á þessu rúma ári hefur tekist að koma flestum markmiðum samstarfsyfirlýsingar samstarfsflokkanna annaðhvort í framkvæmd eða í skýran farveg. Í samstarfsyfirlýsingunni var meðal annars áhersla lögð á mikilvægi húsnæðisuppbyggingar sem er nú komin í skýran forgang eins og sjá má í Húsnæðisáætlun Reykjavíkur 2026-2035. Borgin hefur undirritað viljayfirlýsingar við óhagnaðardrifin húsnæðisfélög um uppbyggingu hagkvæms húsnæðis og félagslegrar blöndunar hverfa en húsnæðismálin eru grundvallar mannréttindamál. Borgarlínan er komin á fulla ferð í takti við samgöngusáttmálann og eru nú framkvæmdir hafnar við brúna Öldu yfir Fossvog og því fyrstu skref framkvæmda tengdar Borgarlínunni nú sýnilegar. Reglur hafa verið rýmkaðar varðandi bílastæði og boðið er upp á fleiri íbúakort fyrir íbúa sem búa þar sem er gjaldskylda fyrir bílastæði. Reglur um frístundakort hafa verið rýmkaðar þannig að þau nýtist einnig fyrir styttri námskeið, opnunartími sundlauga hefur verið lengdur og stafrænar lausnir innleiddar sem hafa einfaldað aðgengi að þjónustu borgarinnar. Meðal annars með rafrænu korti í síma sem getur verið allt í einu; sundlaugakort, menningarkort, aðgangskort í Nauthólsvík og Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Þá hefur verið ráðist í fjölgun sérfræðinga í skólaþjónustu með aukinni áherslu á talmeinafræðinga, sálfræðinga og snemmtæka íhlutun. Mannréttindaráð fékk einnig stærra hlutverk með auknu og reglulegra samráði við innflytjendur, eldri borgara og fatlað fólk eins og lög gera ráð fyrir. Öflug mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar hefur verið ómissandi í að framfylgja þeim mikilvægu lögbundnu verkefnum sem mannréttindaráð fer fyrir. Ég vonast til að borgarbúum beri sú gæfa að kjósa þannig að áfram verði haldið með þau mikilvægu verkefni sem snúa að félagslegu réttlæti, mannréttindum, velferð, inngildingu, algildri hönnun og betra aðgengi að þjónustu fyrir öll. Nú er tími nýrra radda og breytinga en ég skipa ekki sæti á lista Samfylkingarinnar í þessum kosningum og kveð því borgarmálin að sinni. Ég hefði gjarnan viljað halda áfram þessu mikilvæga starfi, en tek þessari niðurstöðu af auðmýkt og er reynslunni ríkari. Af ástríðu fyrir samfélaginu mun ég áfram, eins og áður, leitast við að sinna verkefnum sem ég tel bæta samfélagið. Að lokum vil ég þakka félögum mínum í borgarstjórnarflokki Samfylkingarinnar, samstarfsflokkunum, starfsfólki Reykjavíkurborgar og Reykvíkingum fyrir traustið, samstarfið og öll þau dýrmætu samtöl og verkefni sem ég hef fengið að taka þátt í. Höfundur er stjórnsýslufræðingur, fráfarandi varaborgarfulltrúi og formaður borgarstjórnarflokks Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ellen Jacqueline Calmon Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar