Þegar kerfið ver kerfið en ekki borgarana. Reynslusaga Intuens af íslensku stjórnkerfi síðustu þrjú ár Steinunn Erla Thorlacius skrifar 15. maí 2026 07:22 Það er erfitt að byggja upp nýsköpunarfyrirtæki á Íslandi. Ekki vegna þess að hugmyndirnar skorti. Ekki vegna þess að fólkið skorti hæfileika, þekkingu eða vilja. Heldur vegna þess að þegar ný hugsun rekst á gamalt kerfi, þá virðist kerfið fyrst og fremst verja sjálft sig. Síðustu þrjú ár hefur Intuens upplifað það sem æ fleiri íslensk nýsköpunarfyrirtæki þekkja, endalausa veggi stjórnsýslunnar, geðþóttatúlkanir embætta, tafir, ófyrirsjáanleika og stofnanir sem telja sig hafnar yfir lögin sjálf. Við höfum ekki verið að berjast fyrir sérhagsmunum. Við höfum verið að berjast fyrir rétti fólks til að hafa aðgang að upplýsingum um eigið heilbrigði. Fyrir rétti einstaklinga til að ráða yfir eigin líkama. Fyrir því að nýsköpun fái að njóta vafans í stað þess að vera kæfð af kerfi sem óttast breytingar. Emætti sem túlkar sig yfir lögin hafið Þann 13. maí 2026 féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem ákvörðun embætti landlæknis gegn Intuens var felld úr gildi. Dómurinn var afdráttarlaus og niðurstaðan skýr. Kjarni málsins var einfaldur: Intuens vildi bjóða einstaklingum upp á segulómunarrannsóknir án tilvísunar frá lækni. Embætti landlæknis taldi sig hafa heimild til að banna slíka starfsemi, þrátt fyrir að engin skýr lagaheimild væri fyrir slíku banni. Dómurinn komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að embættið hefði farið út fyrir valdheimildir sínar. Sérstaklega var bent á að skerðing atvinnufrelsis yrði að byggjast á skýrum lögum en ekki geðþóttaákvörðunum eða matskenndum skoðunum stjórnvalds. Það sem vekur mesta athygli er þó ekki aðeins niðurstaðan sjálf, heldur hvernig embættið hagaði sér í ferlinu. Ráðuneytið hafði áður fellt fyrri synjun embættisins úr gildi og gert skýrt að lagastoð skorti fyrir ákvörðuninni. Þrátt fyrir það kaus embættið að endurtaka efnislega sömu synjunina aftur, með breyttu orðalagi en sömu niðurstöðu. Það er alvarlegt þegar stjórnvald ákveður að virða niðurstöðu æðra stjórnvalds að vettugi. Í málinu kom einnig fram að embætti landlæknis studdist við umsagnir frá aðilum sem höfðu beina eða óbeina hagsmuni af því að nýr aðili kæmi ekki inn á markaðinn. Intuens benti sérstaklega á þetta í málarekstrinum. Of oft sjáum við sömu aðilana sitja beggja vegna borðsins, ráðgefandi um reglur annars vegar og starfandi á markaðnum hins vegar. Gamalgrónir hagsmunir fléttast saman við stjórnsýsluna. Nýir aðilar fá ekki hlutlausa málsmeðferð heldur mæta kerfi sem hefur þegar ákveðið niðurstöðuna. Þegar slíkt gerist hættir stjórnsýslan að þjóna almenningi. Hún fer að verja sitt eigið vistkerfi. Nýsköpun eða ógn? Íslenska ríkið talar mikið um nýsköpun. Það eru haldnar ráðstefnur, skrifaðar stefnur og fluttar ræður um mikilvægi frumkvöðla. En hvað gerist þegar nýsköpun reynir raunverulega að breyta kerfum? Þá mætir hún andstöðu. Í stað þess að spyrja hvernig hægt sé að tryggja öryggi og þróa þetta áfram, þá virðist viðbragðið oftar en ekki vera “hvernig getum við stöðvað þetta?” Það sem reynir mest á í svona baráttu er sjaldnast lögfræðin sjálf eða dómsmálin. Þyngsti hlutinn kemur þegar kerfið ákveður að gera málið persónulegt og leggst af fullum þunga á einstaklingana á bak við nýsköpunina. Framkvæmdastjóri Intuens hefur ítrekað fengið bréf frá embætti landlæknis þar sem því var hótað að ef hún léti ekki af starfsemi félagsins gæti hún misst starfsleyfi sitt sem geislafræðingur. Ekki einu sinni, heldur tvisvar. Og þegar stjórnvöld beina slíkum skilaboðum að einstaklingum sem standa að nýsköpunarfyrirtækjum vakna alvarlegar spurningar um meðalhóf, valdbeitingu og mörk stjórnsýslunnar. Hvaða skilaboð eru send til frumkvöðla þegar fólk þarf að óttast að missa starfsréttindi sín fyrir að reyna að byggja upp löglega starfsemi? Hvaða áhrif hefur það á annað fólk sem vill nýta þekkingu sína, reynslu og hugrekki til að skapa eitthvað nýtt? Það er erfitt að upplifa þetta öðruvísi en sem tilraun til að skapa ótta. Að þreyta fólk til hlýðni. Að senda skýr skilaboð um hvað gerist þegar einhver reynir að fara gegn ríkjandi kerfum og hreyfa við valdastrúktúrum sem hafa lengi staðið ósnertir. Réttur fólks yfir eigin líkama Eitt stærsta álitaefnið í málinu snýst um grundvallarspurninguna: Á einstaklingur rétt á upplýsingum um eigið heilbrigði? Intuens hefur frá upphafi byggt á þeirri einföldu hugsun að fólk eigi að hafa rétt til að skoða eigið líkamsástand án þess að þurfa fyrst leyfi frá kerfinu. Embætti landlæknis taldi hins vegar að einstaklingar mættu ekki fara í slíkar rannsóknir nema læknir samþykkti það fyrst. Dómurinn tók sérstaklega undir mikilvægi atvinnufrelsis og þess að stjórnvöld gætu ekki sett slíkar takmarkanir nema með skýrum lagaheimildum. Þetta mál snýst því um meira en eitt fyrirtæki. Það snýst um hvernig samfélag við viljum vera. Samfélag þar sem fólk hefur frelsi og ábyrgð? Eða samfélag þar sem stofnanir telja sig eiga síðasta orðið um hvað einstaklingar mega vita um eigin líkama? Það er eðlilegt að heilbrigðisþjónusta lúti reglum. Það er eðlilegt að gera kröfur um öryggi, fagmennsku og ábyrgð. En það er ekki eðlilegt að stjórnvöld búi til reglur sem eru ekki til í lögum. Það er ekki eðlilegt að embætti telji sig geta bannað starfsemi vegna eigin skoðana á „réttu“ skipulagi um heilbrigðisþjónustu. Og það er sérstaklega ekki eðlilegt þegar dómstólar komast síðar að þeirri niðurstöðu að lagastoð hafi einfaldlega skort. Ef Ísland ætlar raunverulega að vera land nýsköpunar þá verður stjórnsýslan að hætta að líta á frumkvöðla sem ógn. Annars munum við halda áfram að missa hugmyndir, fyrirtæki og hæfileikafólk úr landi. Ekki vegna skorts á getu heldur vegna kerfis sem þolir illa breytingar. Að lokum Síðustu þrjú ár hafa kennt okkur margt hjá Intuens. Við höfum séð hversu brothætt réttarríkið getur orðið þegar stofnanir telja sig standa ofar lögunum. Við höfum séð hversu erfitt það er fyrir lítið nýsköpunarfyrirtæki að verja sig gegn opinberu valdi með nær ótakmörkuðum fjármunum. Og við höfum séð hversu mikilvægt það er að einhver þori að standa upp. Þetta mál snýst ekki aðeins um Intuens. Það snýst um framtíð nýsköpunar á Íslandi. Um mörk valds stjórnsýslunnar. Um rétt einstaklinga. Og um það hvort kerfið eigi fyrst og fremst að þjóna sjálfu sér, eða fólkinu í landinu. Höfundur er framkvæmdastjóri Intuens. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilskimanir Mest lesið Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson Skoðun Sumarhátíðir, rándýrir vextir og óopnað umslag Pétur Marteinsson Skoðun Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Reykjavík er frjáls Björg Magnúsdóttir Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller Skoðun Er það hræðsla að segja nei? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason Skoðun Skoðun Skoðun Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með Jón Heiðar Gunnarsson skrifar Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason skrifar Skoðun EES eða ESB – þar er efinn Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson skrifar Skoðun Meira en Kaupmannahafnarskilyrðin Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar nýbakaðir foreldrar lenda á vegg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er það hræðsla að segja nei? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er mikilvægast? Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Reykjavík er frjáls Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Sumarhátíðir, rándýrir vextir og óopnað umslag Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Innan ESB „mun Ísland stjórna fiskveiðum í Norður-Atlantshafi“ Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Jákvæða hliðin á minkamálinu Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Viðvörunarljós í evrópsku atvinnulífi Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna erum við enn að reyna að binda hendur fólks? María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir kjósendur eða evrópskir embættismenn? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá er tálsýn Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason skrifar Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Umræða um dánaraðstoð krefst mannúðar og varfærni Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar Sjá meira
Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun
Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun
Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar
Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar
Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson skrifar
Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar
Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar
Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar
Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun
Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun