Reykjavík - Menningarborg á heimsmælikvarða Rúnar Freyr Gíslason skrifar 15. maí 2026 11:42 Reykjavík á að vera menningarborg á heimsmælikvarða. Borg þar sem listir, sköpun og menning eru hluti af sjálfsmynd borgarinnar og daglegu lífi fólks. Ég hef sjálfur starfað allt mitt líf í menningu og skapandi greinum. Fyrst í leikhúsi, sem leikari og leikstjóri, og síðar í sjónvarpi og viðburðahaldi. Ég hef séð hvað menning getur gert fyrir fólk, hvernig hún getur byggt upp sjálfstraust, skapað tilgang, tengt fólk saman og gefið börnum og fullorðnum vettvang til að finna sína rödd. Ég hef líka séð hvað hún gerir fyrir samfélagið allt. Fyrir gleðina, samkenndina, ímynd borgarinnar og lífsgæðin. Ég hef séð þetta í eigin störfum út um allt en líka heima hjá mér. Billy Elliott pabbinn Ég er faðir sex barna og á hverjum degi sé ég með eigin augum hvað menning og sköpun gera fyrir börn. Heimilið okkar Guðrúnar er stundum eins og lítið leikhús. Það er sungið, dansað, farið í hlutverk og búninga og búin til atriði og heilu sýningarnar, stundum dag eftir dag. Mér líður stundum eins og pabbanum í Billy Elliot þegar ég horfi á börnin mín nánast „frelsast“ í gegnum dans, söng og sköpun. Ég er ekki að ýkja, það er magnað að sjá þetta. Það er eitthvað ótrúlega fallegt við það að sjá barn finna sjálfstraustið sitt á sviði, í danssal eða bara í stofunni heima. Sjá þau þora meira, vaxa og opna sig sem einstaklingar. Og þetta skilar sér með þeim út í lífið, þau verða öruggari með sig sjálf, læra að vinna í hóp, læra að hlusta og taka tillit til annarra og svo margt, margt fleira. Öll börn hafa hæfileika Ég hef líka lært sem faðir að börn eru ólík. Ekki eru öll börn góð í fótbolta eða sterkust í stærðfræði eða íslensku í skólanum. En öll börn hafa hæfileika. Öll börn hafa eitthvað sem keyrir þau áfram og gefur þeim lífsvilja og hvatningu. Fyrir sum börn er það dans. Fyrir önnur tónlist, leiklist, myndlist, hönnun eða skapandi starf. Við eigum ekki að reyna að pressa öll börn í sama formið heldur hjálpa þeim að finna það sem veitir þeim innblástur, sjálfstraust og gleði. Það má ekki gleyma þeim sem vilja ekki endilega standa í sviðsljósinu. Á bak við tjöldin blómstra líka litlir hljóð- og ljósasnillingar, búninga- og sviðshönnuðir sem finna loksins sína fjöl. Menning hjálpar fólki að finna sjálft sig. Þess vegna hef ég svo sterka trú á barnamenningu og aðgengi barna að listum. Öll börn í Reykjavík eiga að hafa tækifæri til að kynnast tónlist, leiklist, dansi og hvers kyns sköpun, óháð bakgrunni eða efnahag foreldra. Menning á ekki að vera forréttindi fárra heldur sameiginlegur réttur allra. Dans, dans, dans! Ég vil líka sérstaklega nefna danslistina. Þar tel ég að við höfum ekki staðið okkur nógu vel. Dans hefur of lengi verið meðhöndlaður eins og hann sé einhvers konar „minni“ listgrein en aðrar sviðslistir. Dansinn er ótrúlega vinsæll, gríðarlega mörg börn ganga í dansskólana í Reykjavík og nágrenni og við eigum líka alveg ótrúlega metnaðarfullan og framsækinn atvinnudanshóp í Íslenska dansflokknum. Hjá dansflokknum er ástandið ekki gott og kallar á markvissa uppbyggingu sem þarf að hefja strax. Það þarf að setjast niður og móta skýra stefnu í þessum málaflokki, borgin og dansarar þurfa að tala saman og finna lausn. Sérstaklega í ljósi þess að þetta er mikil kvennalistgrein, það er óásættanlegt að hún njóti ekki sanngjarnrar stöðu gagnvart hinum listgreinunum. Fleiri sviðslistarými Það vantar fleiri rými og aðstöðu og það vantar langtímahugsun. Í frábærri úttekt Vigdísar Jakobsdóttur, „Rými koma með súrefni“, þar sem fjallað er um húsnæðismál sjálfstæðra sviðslista á höfuðborgarsvæðinu, er niðurstaðan skýr: Stærsta hindrunin fyrir vöxt greinarinnar er aðgengi að rými fyrir listir og skapandi starfsemi. Þetta verðum við að laga strax, með góðu samtali við alla aðila. Alltof miklir fjármunir fara í „steinsteypuna“, eins og svo oft er sagt og fólkið á gólfinu verður þá oft útundan. Ég þekki svo marga sem hafa nánast aldrei fengið sanngjörn laun fyrir sína skapandi vinnu, vegna þess að allur peningurinn fer í húsnæði og yfirbyggingu. Þetta verðum við að leysa, t.d. með því að nýta opinberar byggingar betur og vera hugmyndarík. Menningarborg er góð borg Það er ekki tilviljun að þær borgir sem fólk sækist mest eftir að búa í eru yfirleitt líka öflugar menningarborgir. Borgir sem fjárfesta í listum, tónlist, leikhúsi, hönnun, kvikmyndagerð og skapandi starfi. Menning er svo sannarlega grunnur að lifandi samfélagi. Við þurfum að hugsa stærra um menningu í Reykjavík. Ekki bara sem styrkjakerfi eða einstaka viðburði heldur sem raunverulega framtíðargrein. Við þurfum fleiri rými fyrir listir og skapandi starfsemi. Við þurfum að styðja betur við sjálfstætt starfandi listafólk og unga skapandi einstaklinga. Við þurfum að tryggja að börn og ungmenni hafi aðgang að menningu, listnámi og skapandi starfi óháð efnahag eða hverfi. Hugsum stórt - Barnamenningarborgin 2030? Við þurfum líka að vera hugrökk í því að setja Reykjavík á kortið alþjóðlega. Reykjavík á að vera borg sem fólk horfir til þegar kemur að skapandi hugsun, menningarviðburðum og nýjum hugmyndum. Borg sem laðar að sér listafólk, ferðamenn, fyrirtæki og fólk sem vill lifa í skapandi og lifandi samfélagi. Ég heyrði góða hugmynd um daginn: Reykjavík verði „Barnamenningarborg Evrópu 2030“. Það er eitthvað sem ég myndi vilja skoða með öllu því frábæra fólki sem heldur utan um um listir og menningu í Reykjavík. Menning skapar líka verðmæti. Ekki bara andleg, heldur líka efnahagsleg. Skapandi greinar eru einn hraðast vaxandi atvinnuvegur heims. Við eigum að vera í fararbroddi þar, af því að menningin gerir lífið þess virði að lifa því. Reykjavík á að verða menningarborg á heimsmælikvarða. Höfundur skipar 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Rúnar Freyr Gíslason Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Sjá meira
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar