Viðskipti innlent

Daníel ráðinn for­stjóri Ís­lenskrar erfðagreiningar

Samúel Karl Ólason skrifar
Daníel F. Guðbjartsson.
Daníel F. Guðbjartsson.

Daníel F. Guðbjartsson hefur verið ráðinn sem forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Hann var ráðinn af Amgen, móðurfélagi ÍE, eftir Kári Stefánsson, fyrrverandi forstjóri, var rekinn fyrir rúmu ári síðan. Hann hefur starfað hjá fyrirtækinu frá 1998.

Í tilkynningu segir að Daníel muni leiða starfsemi fyrirtækisins á Íslandi og stýra áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins sem einnar öflugustu rannsóknarmiðstöðvar heims á sviði erfðafræði mannsins.

„Með ráðningunni stefnir Amgen að því að efla enn frekar vísindastarf Íslenskrar erfðagreiningar og efla starf fyrirtækisins til uppgötvunar nýrra lyfjamarka og dýpri skilnings á meinafræði sjúkdóma,“ segir í tilkynningunni.

Daníel hefur starfað hjá Íslenskri erfðagreiningu um árabil. Þar er hann sagður hafa gegnt lykilhlutverki í vísindastarfi og vexti fyrirtækisins. Áður var hann yfirmaður tölfræðigreiningar og tók við stöðu yfirvísindamanns á síðasta ári.

„Ég hef fengið tækifæri til að vaxa og þróast með Íslenskri erfðagreiningu í tæpa þrjá áratugi og hlakka til að takast á við þetta nýja hlutverk. Við lifum tíma mikilla framfara í tilraunatækni og greiningaraðferðum, ekki síst á sviði gervigreindar,“ er haft eftir Daníel í tilkynningunni.

„Við munum áfram leggja áherslu á hágæða vísindastarf og trausta gagnagreiningu til að skapa nýja þekkingu sem dýpkar skilning okkar á sjúkdómum.“

Howard Chang, M.D., Ph.D., aðstoðarforstjóri alþjóðlegra rannsókna og vísindastjóri Amgen segir Daníel búa yfir djúpri sérþekkingu á þeim vísindalega og aðferðafræðilega grunni sem starfsemi og rannsóknir Íslenskrar erfðagreiningar byggja á.

„Íslensk erfðagreining gegnir áfram lykilhlutverki í alþjóðlegu rannsóknastarfi okkar og stefnu. Við munum byggja áfram á traustum grunni fyrirtækisins sem gegnir lykilhlutverki í erfðarannsóknum og stuðlar að raunverulegum framförum og framþróun í þágu sjúklinga.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×