Framsókn vill meiri virkni og vellíðan - Leikum okkur alla ævi Halldór Bachmann skrifar 13. maí 2026 12:32 Það eru væntanlega flestir sammála um að það er beint samhengi á milli virkni og vellíðanar. Á hvaða aldri sem fólk er þá þroskast það, þrífst, viðheldur hæfni sinni og líður einfaldlega betur með virkni. Með því að stunda frístundir og íþróttir fær ungt fólk tækifæri til að efla þroska sinn, hreyfifærni, félagsfærni, samkennd og þá tilfinningu sem við viljum öll öðlast – að tilheyra, vera hluti af hópi og heild. Við sem eldri erum þurfum að halda okkur í virkni til að viðhalda hreysti, hressleika og öllu því jákvæða sem virkninni fylgir. Framsókn í Reykjavík kom á sínum tíma (2006) á frístundastyrk fyrir börn og nú nýtir mikill fjöldi barna sér þetta. Tuttugu árum síðar er kominn tími til að bæta í og viljum við því að fyrsta tómstundin fyrir 18 ára og yngri sé frí óháð kostnaði á ári. Við viljum líka bæta þjónustuna við ungt fólk og opna í því skyni ungmennahús í sem flestum hverfum. Eitt ungmennahús utan alfaraleiðar er engan veginn að sinna þeirri þörf sem er til staðar. Í mars síðastliðnum bætti Framsókn enn við og lagði fyrir borgarstjórn tillögu um að eldri borgarar undir ákveðnum tekjumörkum fengju frístundastyrk. Tilgangurinn er að auka virkni eldri borgara, sporna við einangrun og bæta andlega, líkamlega og félagslega heilsu. Þessi tillaga var felld af meirihlutaflokkum. Sumir þeirra meirihlutaflokka sem sögðu nei við hugmyndinni um frístundastyrk fyrir eldri borgara fyrir nokkrum vikum auglýsa það nú hástöfum að þeir vilji beita sér fyrir frístundastyrk fyrir eldri borgara eins og um þeirra eigin hugmynd sé að ræða. Þessi afgreiðsla málsins er dæmi um þá ómerkilegu aðfinnslupólitík sem stunduð er af núverandi meirihlutaflokkum í borginni. Þar er kjörorðið „góðar hugmyndir eru aðeins góðar ef þær koma frá okkar flokki“ sem þýðir að margar góðar hugmyndir hafa því miður farið forgörðum undir þeirra stjórn í gegnum tíðina. Ég er stoltur af því að vera í framboði fyrir flokk sem hefur lengi og með afgerandi hætti staðið fyrir virkni og vellíðan, því að leika sér alla ævi. Það tengir saman það sem Framsókn stendur fyrir í borginni þvert á alla þjónustu og aldursskeið. Það er kostnaðarsamt að halda úti öflugu frístundastarfi, það þarf að skipuleggja starfið, hafa aðstöðu, mannskap og búnað og því stendur kostnaður allt of oft í vegi fyrir því að fólk sjái sér fært að leyfa börnunum að stunda frístundir eða stunda frístundir sjálft. Framsókn vill stuðla að og styðja við virkni fólks á öllum aldri; barna fram að 18 ára aldri, eldri borgara og jafnframt jaðarsetta hópa sem ekki hafa ráð á að greiða fyrir frístundastarf. Það vakti athygli mína að nýtingin á frístundastyrk er lítil fyrir börn er í Fella- og Hólahverfinu í Efra Breiðholti. Þó ég hafi sjálfur búið í Vesturbæ Reykjavíkur meira en hálfa ævina þá þykir mér vænt um hverfið síðan ég tók snemma á tíunda áratugnum þátt í að stofna öflugt yngri flokka starf í körfubolta hjá Leikni í Efra Breiðholti. Það gefur til kynna að eitthvað sé brotið í upplýsingamiðlun til foreldra. Það er ljóst að þar má gera betur. Stór hluti hverfisins er af erlendu bergi brotið og það er ekki síður mikilvægt fyrir börn af erlendum uppruna að stunda frístundir. Það getur haft mikið að segja fyrir börnin og fjölskyldur þeirra til að aðlagast landinu, tungumálinu og samfélaginu. Frístundastyrkur sem ekki er nýttur þýðir því virkni sem ekki á sér stað, vellíðan sem ekki skilar sér. Frístundastyrkir eru til að þeir séu notaðir í þeim tilgangi að skapa virkni og vellíðan. Framsókn vill beita sér fyrir því að koma skilaboðunum um frístundastyrki betur á framfæri í öllum hverfum. Okkur í Framsókn langar að halda áfram á þessari braut og gera allt sem í okkar valdi stendur til að stuðla að virkni og vellíðan fyrir borgarbúa á öllum aldri. Það er algjörleg ómetanlegt. Höfundur er í fjórða sæti á borgarstjórnarlista Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Skoðun Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar