Garðabær - jákvæð þróun í velferðarmálum Karólína Fabína Söebech skrifar 11. maí 2026 07:52 Þegar verið er að ræða þjónustu við fatlaða einstaklinga er jafn mikilvægt að ræða það sem vel er gert og það sem betur má fara í málefnium fatlaðra.Ég hef búið í Garðabæ frá barnsaldri og nú sem foreldri fatlaðs einstaklings. Ég hef áratuga reynslu af þjónustu bæjarins við málefni fatlaðra. Allt frá leikskólagöngu að framhaldskólanámi höfum við fengið frábæra þjónustu. Við foreldrar fórum nýjar meðferðarleiðir fyrir einhverfa sem bærinn sýndi skilning og sveigjanleika. Bærinn tók jafnframt þátt í kostnaði vegna þeirrar þjónustu. Sonur okkar er nú fullorðinn einstaklingur og bíður eftir að komast í sértækt íbúðarúrræði. Á meðan hann bíður hefur bærinn boðið upp á mikilvægan undirbúning fyrir sjálfstæða búsetu með reglulegri dvöl á áfangaheimili, tvær vikur í hverjum mánuði. Markmið þeirrar þjónustu er að undirbúa hann fyrir að flytja að heiman og efla sjálfstæði hans. Hann stundar vinnu með stuðningi. Jafnframt hefur hann notið frábærrar liðveislu. Þessi þjónusta hefur verið veitt af starfsfólki velferðarsviðs sem ávallt hefur lagt sig fram að sinna þeim skyldum sem bæjarfélagið hefur gagnvart fötluðum. Öll þessi þjónusta hefur reynst syni mínum afar vel og veitt honum öryggi, aukin lífsgæði og færni sem hann hefur öðlast. Það er einnig mikilvægt að nefna að frá því núverandi meirihluti tók við stjórn bæjarins hefur verið tekið myndarlega til í málaflokknum. Við finnum að lögð hefur verið aukin áhersla á málefni fatlaðs fólks og unnið markvisst að því að stytta og eyða biðlistum sem snúa að þessum viðkvæma hópi. Það var mjög áhugavert að vera í rýnishóp á vegum bæjarins, þar sem rætt var um þjónustu og hvað betur mætti gera í þessum málaflokki. Það er ánægjulegt að sjá að ábendingum sem komu þar fram hefur verið hrundið markvisst í framkvæmd af núverandi meirihluta. Má þar nefna undirbúning sem hafin er við opnun félagsmiðstöðvar fyrir fötluð ungmenni í bænum. Þá hefur stjórnendum Garðabæjar einnig tekist að byggja íbúðarkjarna fyrir 7 einstaklinga og setja af stað annan slíkan á þessu eina kjörtímabili og stytta svo um munar þann biðlista sem hefur verið. Reynsla okkar er sú að hjá núverandi meirihluta bæjarins mætum við skilningi og að aukinn kraftur hefur verið settur í málaflokkinn. Það skiptir máli að þeir sem stjórna og starfsfólk bæjarins fái að heyra þegar þeirra vinna skilar raunverulegum árangri í lífi fólks.Við erum þakklát fyrir þá þjónustu sem sonur okkar hefur fengið í gegnum árin og vonum að núverandi meirihluti fái umboð til að halda áfram á sömu braut með áherslu á virðingu, stuðning og raunverulegum tækifærum fyrir fatlað fólk til þátttöku og sjálfstæðis. Höfundur er móðir einhverfs einstaklings. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar