Samfylkingin vill bæta starfsaðstæður í leikskólum Stein Olav Romslo og Anna Margrét Ólafsdóttir skrifa 11. maí 2026 07:33 Leikskólinn er fyrsta skólastigið. Á sama tíma er hann lykilþjónusta í daglegu lífi fjölskyldna. Þetta ætlum við að viðurkenna með því að ná saman við ríkið um að lögfesta rétt barna til leikskólavistar. Það er mikið fagnaðarefni að ríkið skuli í fyrsta sinn vera tilbúið að leggja fjármagn í leikskólastigið og það er ekki tilviljun að það gerist á vakt Samfylkingarinnar. Við þurfum stöðugt að leggja okkur fram við að bæta starfsaðstæður í leikskólum. Samfylkingin ætlar að leggja til 600 milljónir árlega eða 2,4 milljarða á næstu fjórum árum meðal annars til að mæta styttingu vinnuvikunnar. Það er öllum ljóst að hún kostar peninga. Við erum eini flokkurinn sem talar skýrt um það hve miklu fjármagni verði varið í að bæta vinnuumhverfið. Eftir kosningar viljum við taka samtalið við leikskólana um hvernig það fjármagn nýtist best í leikskólunum. Systkinaforgangur og systkinaafsláttur eru þættir sem skipta foreldra miklu máli og því er Samfylkingin sammála. Við viljum að yngri systkini fái forgang að plássi í sama leikskóla og eldra systkini, enda gríðarlegt hagsmunamál fyrir foreldra. Það léttir álag á ungar fjölskyldur sem losna þá við að byrja og enda dagana á því að fara með börnin í tvo leikskóla sem eru kannski ekki einu sinni í sama hverfi. Varðandi systkinaafsláttinn viljum við áfram hafa 100% afslátt af leikskólagjöldum fyrir yngri systkini, það telur í buddunni. Það er mikill skortur á leikskólakennurum og þarf að leita leiða til að fjölga þeim sem velja það að vera leikskólakennarar. Í leikskólunum starfar hópur ófaglærðs fólks sem á fullt erindi í námið og Samfylkingin vill styrkja þennan hóp til náms m.a. með námsstyrkjum. Við höfnum hugmyndum frá hægri um að stytta nám leikskólakennara loksins þegar aðsóknin í námið hefur tekið kipp upp á við. Við viljum ekki gengisfella nám kennara og grafa undan menntun þeirra. Það er ekki leið til að fjölga þeim og ber vott um óvirðingu við það mikilvæga starf sem leikskólakennarar sinna á þessu fyrsta skólastigi. Við þurfum að komast upp úr einhverjum tilbúnum skotgröfum þar sem eru foreldrar á móti leikskólastarfsfólki. Það er ekki þannig. Við viljum öll það besta fyrir börnin. Yfir 90 % foreldra eru ánægð með starfið í leikskólum barna þeirra. Þá þarf að tryggja góð kjör leikskólastarfsfólks sem um leið skilar sér í betri þjónustu við börn og fjölskyldur. Samfylkingin – jafnaðarflokkur Íslands vill að samfélagið standi saman um þessar úrbætur. Fjármagnið á að koma úr sameiginlegum sjóðum okkar allra en ekki beint úr vösum foreldra. Þá leggjum við í púkk og samfélagið allt græðir á því. Höfundar skipa 5. og 16. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar 16. maí nk. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stein Olav Romslo Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar