Hvert stefnir menningin? Elsa María Guðmundsdóttir skrifar 9. maí 2026 08:47 Menningarstefna Akureyrarbæjar rann út árið 2018. Hún var unnin í nokkuð víðtæku samráði uppúr 2010. Stefnan var metnaðarfull og boðaði jákvæðar breytingar sem margar hafa gengið eftir. Í MA rannsókn minni frá 2021, „Hvernig á að fá þúsund blóm til að blómstra?“ kom m.a. fram að talsverð gjá var á milli þess sem stefnan boðaði og því sem raungerðist. Þetta má reyndar segja um margar stefnur, en einmitt þess vegna er mikilvægt að þær standi undir nafni og innifeli t.d. tímasettar raunhæfar aðgerðir. Stefnumótunarvinna í heildarhugsun menningarmála á Akureyri hefur því ekki verið unnin í 16 ár. Það er mjög langur tími. Í mjög einfaldri mynd má segja að um tvo burðarása sé að ræða í menningarmálum á Akureyri. Í fyrsta lagi myndar Menningarhúsið Hof ramma utan um tónlist, sviðslistir og aðra fjölbreytta viðburði með Menningarfélagi Akureyrar. Í öðru lagi má segja að Listagilið rammi inn stóran hluta af grasrótarstarfi listafólks. Ýmis konar starfsemi fer líka fram víða um bæinn t.d. kórar og tónlistarstarf, dansskólar og fleiri listatengdar greinar. Á þessum 16 árum hafa orðið gífurlegar breytingar sem vert er að gefa gaum. Mikilvæg stækkun Listasafnsins á Akureyri hefur haft jákvæðar breytingar í för með sér en um leið minnkar húsnæði fyrir grasrótarstarfsemi í Listagilinu. Gilfélagið, sem sér t.d. um Deigluna og gestavinnustofu, þarf á öllu sínu að halda til að starfsemin lognist ekki útaf. Húsnæði sem áður hýsti Myndlistaskólann á Akureyri er nú gistirými fyrir ferðamenn. Þrengt er að vinnustofum listafólks í Listagilinu og ekki auðvelt að fá leigt húsnæði annars staðar í bænum. Menningarsjóðir og styrkir til verkefna á vegum Akureyrarbæjar hafa alls ekki haldið í við vísitöluþróun og í raun rýrnað að raungildi yfir talsvert langan tíma. Þrátt fyrir hækkun á starfslaunum bæjarlistafólks á sl. kjörtímabili eru þau ekki sambærileg og listamannalaun á vegum ríkisins. Þessir þættir hafa allir bein áhrif á grasrótarstarf listafólks. Á sl. fjórum árum hafa orðið talsverðar breytingar á stjórnskipan bæjarins, Akureyrarstofa var lögð af, menningarmál voru felld undir bæjarráð og málaflokkurinn settur undir þjónustu- og menningarsvið Akureyrarbæjar Þessir þættir þarfnast endurskoðunar. Ef við viljum standa undir nafni sem svæðisborg þá þarf metnað í verki þegar kemur að menningarmálum. Við þurfum ráðgefandi fagráð í menningarmálum sem heyrir undir bæjarráð. Við þurfum að gæta að jafnvægi milli grasrótar og atvinnustarfsemi. Kortleggja þau mál sem hægt er að laga strax og hvaða mál önnur þarf að vinna til grundvallar nýrrar menningarstefnu. Nýlega fengust auknir fjármunir í menningarsamningi við ríkið, það er mjög jákvætt og mikilvægt skref. Sveitarfélagið verður að vera með á hreinu hvert við viljum stefna. Það er ekki vænlegt að styðja sig við stefnu sem er löngu útrunnin, hversu góð sem hún kann að hafa verið. Samfylkingin er klár í það verkefni að hrinda af stað vinnu við nýja menningarstefnu. Höfundur skipar 7. Sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir bæjarstjórnarkosningar 16. maí. Hún er með MA í menningarstjórnun og er sjónlistakennari í grunnskóla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Skoðun Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar