Viðskipti innlent

Ó­vissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfs­menn

Eiður Þór Árnason skrifar
Hótelin voru áður rekin af Icelandair Hotels áður en Berjaya keypti reksturinn.
Hótelin voru áður rekin af Icelandair Hotels áður en Berjaya keypti reksturinn. Vísir/samsett

Íslandshótel munu hefja hótelrekstur í húsnæði við Suðurlandsbraut og Nauthólsveg sem hefur hýst Hilton Reykjavík Nordica og Reykjavík Natura Hotel. Samhliða því lætur Berjaya Hotels Iceland af rekstri hótelanna en malasíska fyrirtækið keypti hann af Icelandair Group árið 2019. Stjórnendur Íslandshótela hyggjast taka yfir ráðningarsamninga starfsfólks.

„Það er engin óvissa. Það er alveg klárt mál að við ætlum að endurráða fólkið til okkar,“ segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, í samtali við fréttastofu. Þetta eigi við um allt starfsfólk sem vinni á hótelunum tveimur í dag. 

Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að sumir starfsmenn hafi verið uggandi eftir fund með stjórnendum í dag og óttast um atvinnuöryggi sitt eftir yfirtökuna þann 1. september. 

Enn ríkir óvissa um nöfn hótelanna eftir yfirtöku Íslandshótela þar sem Berjaya á vörumerkin Nordica og Natura, að sögn Davíðs. Hann telur þó líkur á því að hótelið við Suðurlandsbraut verði áfram rekið undir merkjum alþjóðlegu Hilton-keðjunnar.

Berjaya hætti við

Áður var greint frá því að leigusamningur fasteignafélagsins Reita, sem á húsnæðið, við Berjaya væri að renna út og Íslandshótel vildu taka við en Berjaya gæti enn nýtt sér forleigurétt. 

Berjaya gaf út í maí 2025 að það ætlaði að nýta réttinn og leigja húsnæðið áfram en hætti síðar við. Þá komu Íslandshótel aftur að samningaborðinu með Reitum, að sögn Davíðs. Berjaya Hotels Iceland hf. tapaði tæplega milljarði króna árið 2025 og tapaði rúmlega 1,6 milljarði árið á undan.

Kristófer Þór Pálsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga, greininga og viðskiptaþróunar hjá Reitum, Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, Ólafur Torfason, stjórnarformaður Íslandshótela, Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita og Svana Huld Linnet, framkvæmdarstjóri viðskiptavina.Reitir

„Þetta er búið að taka svolítið langan tíma, það verður að viðurkennast, en þetta hafðist,“ segir Davíð.

„Íslandshótel munu vinna með hlutaðeigandi aðilum að tryggja eins góða samfellu og kostur er fyrir gesti sem eiga bókanir eftir 1. september 2026,“ segir í tilkynningu Íslandshótela.

Reitir gera ráð fyrir góðri tekjuaukningu

Reitir hafa gert samkomulag við Íslandshótel um að nýr leigusamningur vegna hótelanna taki gildi 1. september. „Nýr leigusamningur var undirritaður 10. apríl 2025 og nær til 17 ára. Með samkomulagi hefur núverandi leigutaki fallið frá forleigurétti sínum og leigutími hans verið framlengdur til 31. ágúst 2026,“ segir í tilkynningu frá Reitum til Kauphallar. 

Fasteignirnar séu samtals 26.500 fermetrar að stærð og ráðist verði í endurbætur á þeim sem feli meðal annars í sér endurnýjun á stórum hluta gistirýma sem séu samtals um 470 talsins. 

Reitir áætla að árleg aukning tekna og rekstrarhagnaðar vegna leigusamninganna verði um 620 milljónir króna á fyrstu tveimur og hálfu ári leigutímans en um 720 milljónir króna eftir það. Davíð vildi ekki tjá sig um nýja leigusamninginn og hvort hann fæli í sér kostnaðarhækkun miðað við þann fyrri. Íslandshótel eru stærsta hótelkeðja landsins og munu reka nítján hótel eftir yfirtökuna.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Berjaya vill halda áfram að leigja Nordica og Natura

Berjaya Hotels Iceland hefur tilkynnt að þau ætli að nýta forleigurétt sinn við Reiti fasteignafélag hf. að Hilton Reykjavík Nordica og Reykjavík Natura hótel er staðsett. Íslandshótel gerðu samning við Reiti í síðasta mánuði um rekstur og leigu til sautján mánaða með þeim fyrirvara að Berjaya hefði forleigurétt. 

Íslandshótel taka að óbreyttu yfir rekstur Nordica og Natura

Reitir og Íslandshótel undirrituðu í gær leigusamninga til sautján ára um fasteignirnar að Suðurlandsbraut 2 og Nauthólsvegi 52, sem hýsa hótelin Hilton Reykjavik Nordica og Reykjavík Natura. Núverandi leigutaki Berjaya hotels Iceland nýtur þó forleiguréttar og getur gengið inn í samningana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×