Viðskipti innlent

Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland

Lovísa Arnardóttir skrifar
Fólk er hvatt til þess að tilkynna póstana til Netöryggissveitarinnar.
Fólk er hvatt til þess að tilkynna póstana til Netöryggissveitarinnar. Vísir/Getty

ISNIC varar rétthafa . is léna við tölvupóstum sem hafa borist undanfarna daga þar sem óskað er eftir greiðslu eða endurnýjun á þjónustu hjá aðilanum DMS Iceland fyrir íslensk lén. 

Í tilkynningu frá ISNIC segir að margir rétthafar .is léna hafi síðustu daga fengið slíka pósta. Mikilvægt sé að árétta að þessir póstar berist ekki frá ISNIC og séu líklega hluti af svikaherferð.

„Við hvetjum viðtakendur til að sýna aðgát, smella ekki á tengla í póstunum og gefa hvorki upp persónu- né greiðsluupplýsingar,“ segir í tilkynningu en að neðan má sjá dæmi um greiðsluseðil sem er sendur með póstinum.

Greiðsluseðill frá DMS Iceland. Aðsend

Ekki verið að greiða fyrir lénin

Þór Jensen framkvæmdastjóri ISNIC segir að í póstunum séu viðtakendur hvattir til að greiða fyrir meintar „tilkynningar um endurnýjun léns“.

„Upphæðirnar sem krafist er nema um 15–20 þúsund krónum. Við vitum þegar um nokkur tilvik þar sem einstaklingar og fyrirtæki hafa greitt í þeirri trú að þau væru að endurnýja lén sín, en svo er ekki,“ segir Þór.

Hann segir DMS Iceland ekki skráðan á Íslandi en reki vefsíðu á léninu dmsiceland.com þar sem félagið segist vera staðsett á Íslandi. Hann segir ISNIC hafa gert CERT-IS viðvart um þessi svik.

Notendur sem hafa fengið slíkan póst eru hvattir til að tilkynna þá til CERT-IS í gegnum gátt á Ísland.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×