Viðskipti innlent

Telur enn að stýri­vextir verði hækkaðir

Bjarki Sigurðsson skrifar
Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur hjá Íslandsbanka.
Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur hjá Íslandsbanka. Vísir/Anton Brink

Verðbólga hjaðnaði um 0,2 prósentustig milli mánaða og mælist nú 5,2 prósent. Hagfræðingur Íslandsbanka segir jákvæð teikn á lofti en telur litlar líkur á að mælingin verði til þess að Seðlabankinn hækki ekki stýrivexti í næsta mánuði. 

Mest áhrif á vísitöluna hafði hækkun kostnaðar vegna búsetu í eigin húsnæði, verð á bensíni, verð á dísil og verð á flugfargjöldum. Þetta er í fyrsta sinn í hálft ár sem verðbólga hjaðnar. Hún mældist 3,7 prósent í nóvember á síðasta ári en hefur aukist jafnt og þétt síðan þá.

Spurningin frekar hversu mikið vextir verða hækkaðir

Peningastefnunefnd Seðlabankans kynnir stýrivaxtaákvörðun 20. maí svo þetta er síðasta verðbólgumælingin fram að því. Greiningardeildir landsins eru sammála um að stýrivextir verði hækkaðir og telur Bergþóra Baldursdóttir hjá Íslandsbanka mælinguna ekki breyta miklu.

„Við megum ekki gleyma því að verðbólga er samt sem áður mjög há og hefur í langan tíma verið yfir markmiðinu. Við teljum líklegt að vextir verði hækkaðir og það sé frekar spurning hversu mikið,“ segir Bergþóra. 

Ástandið í heimsmálum hafi mikil áhrif á verðbólgu hér

„Eins og peningastefnunefndin ræddi á síðasta fundi, hún hefur miklar áhyggjur af ástandinu úti í heimi. Við séum að fara að flytja inn meiri verðbólgu næstu mánuði. Það veltur á því líka. En það er líklegt að peningastefnunefndin hækki stýrivexti í maí,“ segir Bergþóra.

Innfluttu vörurnar séu ekki að hækka mikið í verði og verðbólguþrýstingur sé ekki að aukast miðað við þessar tölur. Það komi á óvart og sé jákvætt. 

„Það gæti verið að það sé að myndast einhver stemning fyrir því að fyrirtæki lækki verð hjá sér eða haldi verði óbreyttu,“ segir Bergþóra. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×