Íþróttamannvirki til sölu fyrir atkvæði Jónas Már Torfason skrifar 28. apríl 2026 10:33 Kosningar eru skemmtilegasti parturinn af stjórnmálum. Þá lifnar líf og skoðanaskipti eiga sér stað um samfélagið allt. En kosningar draga líka fram það versta í stjórnmálamönnum: örvæntingafull loforð eru gefin og ráðist er í vanhugsaðar framkvæmdir í þágu þess að tryggja atkvæðin sem réttlæta tilveru stjórnmálamannsins. Það segir sig sjálft að slíkt er ekki skynsamlegt til langs tíma og ekki til þess fallið að tryggja að vel sé farið með okkar sameiginlegu sjóði. Í Kópavogi hafa ákvarðanir um íþróttamannvirki oft verið þessu marki brenndar. Það virðist sem að ákvörðunartaka um framtíðaruppbyggingu fari helst fram í aðdraganda kosninga, án samhengis eða samráðs og án þess að ákvarðanir séu grundvallaðar í fjárfestingagetu bæjarins eða eðlilegri forgangsröðun á uppbyggingu íþróttamannvirkja. Þetta hefur átt þátt í því að oft eru fjárfestingar bæjarins í íþróttamannvirkjum hálfkláraðar. Nefna má mörg dæmi. Kosningaloforð Ljósin á Kópavogsvelli voru endurnýjuð 2018, í aðdraganda kosninga. Dæmið var ekki klárað til fulls og ljósastyrkur því ekki fullnægjandi fyrir alþjóðlegar keppnir. Á það var ítrekað bent að það væri skammsýni að klára dæmið ekki til fulls. Nú þegar Breiðablik á reglulega leiki í Evrópu, bæði í karla- og kvennadeild, er augljós þörf á að ljósin séu endurnýjuð í fullnægjandi styrk. Ætli við fáum ekki loforð um að farið verði í þessar framkvæmdir núna í kosningunum? Ný stúka HK, sem veitt voru vilyrði fyrir á mánuðunum í aðdraganda kosninga, er annað dæmi. HK-ingar þurfa stúku og það er fyrirsjáanleg stækkun á félaginu vegna uppbyggingar á nýjum hverfum í Vatnsenda. Og stúku munu þeir fá, en ekki í þeirri mynd sem lagt var upp með. Hún verður ekki tengd við aðalbygginguna, og raunar þannig að þáverandi framkvæmdastjóri HK skrifaði bæjarstjóra bréf og hvatti til stillingar frekar en að ráðist væri í framkvæmdirnar án þess að dæmið væri hugsað til enda. Ætli við fáum ekki skóflustungu að þessum framkvæmdum nokkrum dögum fyrir kjördag? Eins má nefna aðstöðu GKG. Nú þegar er fyrirsjáanlegt að Vetrarmýrin er orðin að byggingarlandi er ljóst að félagið vantar fleiri holur. Biðlistinn fyrir GKG felur í sér nokkurra ára bið eftir inngöngu og börn í Kópavogi sem æfa golf þurfa að gera sér ferð í Garðabæ til að mæta á æfingar. Skyldi það nú vera að okkur verði lofað golfvelli í aðdraganda kosninga? Ætlum við að taka það trúverðugt að hægt sé að gefa slíkt loforð án ígrundunar innan bæjarkerfisins? Hálfkláruð verk Nefna má fleiri hálfkláruð dæmi og skort á langtímahugsun. Búninga- og lyftingaaðstaða Breiðabliks er löngu sprungin með fullkomlega fyrirsjáanlegum hætti og ekkert bólar á heildarskipulagi fyrir botni Kópavogsdals. Eins má nefna aðstöðu vegna frjálsíþrótta og inniíþrótta þar sem mjög reynir á útsjónarsemi til að koma öllum æfingum fyrir. Í dag er ekki hægt að bjóða börnum í efri byggðum Kópavogs að æfa körfubolta í sínu nærumhverfi, og raunar þannig að sum þessara barna sækja körfuboltaæfingar hjá ÍR í Breiðholti. HK er orðið gestur í eigin húsi þar sem Kórinn er undirlagður allri annarri starfsemi sem þarf að finna stað í flýti, en nú er tímabundin aðstaða Kóraskóla orðin varanleg og enn lofað bókasafni í eina skólastofu, sem áfram þrengir að starfsemi HK. Að því er undirritaður best veit var HK ekki haft með í ráðum um þessar ákvarðanir. Þá virðist ekkert hafa verið hugsað fyrir uppbyggingu íþróttamannvirkja í nýju hverfunum, Vatnsendahvarfi og Vatnsendahlíð, þar sem fyrirhugaðar eru 1600 íbúðir. Hvar eiga börnin sem flytja í hverfið að æfa íþróttir? Gerpla fékk nýtt íþróttahús á Vatnsenda til notkunar en það er rétt svo of lítið til að það nýtist sem skyldi. Ljósin í aðalsal Gerplu í Versölum voru endurnýjuð en dæmið ekki klárað til fulls með LED-lýsingu og því þurfti að endurnýja þau strax aftur fáum árum seinna til að fullnægja alþjóðastöðlum. Sundlaugarnar í Kópavogslaug vantar 50 cm upp á dýptina í grunna endanum til að hægt sé að nota hana sem keppnislaug. Hér væri hægt að halda lengi áfram. Vöndum okkur Auðvitað eigum við að gera áfram vel við íþróttafélögin okkar og ég er fylgjandi þeim framkvæmdum sem lýst er hér að ofan. En það eru ekki góð vinnubrögð að ákvarðanir um þau séu teknar af örvæntingafullum stjórnmálamönnum í aðdraganda kosninga, loforð sem eru sambærileg þeim sem gefin eru af athafnamanni á barmi gjaldþrots. Og slík losaraleg vinnubrögð leiða til þess að framkvæmdirnar duga skammt, þeim er forgangsraðað illa og oft er fjármagnið ekki nægjanlegt til að hlutirnir séu gerðir almennilega. Það er engin fjárfestingaráætlun til langs tíma í Kópavogi. Hvorki fyrir almennar fjárfestingar né íþróttamannvirki. Þessu vill Samfylkingin breyta. Við viljum meta fjárfestingargetu bæjarins til lengri tíma og kalla öll íþróttafélögin að borðinu til samráðs, sameiginlega. Þannig getum við tryggt að farið sé í skynsamlegar fjárfestingar sem fullnægja þeirri þörf sem brugðist er við. Að ákvarðanir séu teknar í samhengi, bæði út frá því hvar þörfin er mest og brýnust en líka út frá rekstri bæjarfélagsins. Eina loforðið sem Samfylkingin mun gefa um þessi efni í kosningabaráttunni er að vanda til verka þegar við tökum við stjórnartaumunum og gera það í fullu samráði við íþróttafélögin. Það er einfaldlega of dýrt að selja íþróttamannvirki fyrir atkvæði, bæði fyrir bæinn og fyrir íþróttafélögin. Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Jónas Már Torfason Mest lesið Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson Skoðun Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson skrifar Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Var þetta kosningaloforðið? Fannar Logi Waldorff Sigurðsson skrifar Skoðun Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Kerfið sem síar fjármuni út úr ríkissjóði bakdyramegin Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar Skoðun Draugasögur nútímans Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hinn háværi minnihluti Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Af hverju ég kýs Já 29. ágúst Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Ofan í skotgrafirnar Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ferðaþjónusta fatlaðra Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með Jón Heiðar Gunnarsson skrifar Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason skrifar Skoðun EES eða ESB – þar er efinn Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar
Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar
Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar
Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar