Börnin fyrst – fjármögnun til framtíðar Jóhanna Erla Guðjónsdóttir og Guðmundur Fylkisson skrifa 28. apríl 2026 10:22 Það er einföld staðreynd að samfélag er aldrei sterkara en sú vernd sem það veitir börnum sínum. Það þarf heilt þorp til að ala upp barn. Í Hafnarfirði stöndum við frammi fyrir vaxandi verkefni, sífellt fleiri börn og ungmenni glíma við fjölþættan vanda og þurfa stuðning fyrr en áður. Þetta eru ekki tölur í skýrslum né nafnlaus mál í kerfum. Þetta eru börn sem búa hér í Hafnarfirði, ganga í leik-, grunn- og framhaldsskóla og eru framtíð samfélagsins okkar. Þau þurfa viðbrögð núna, ekki þegar vandinn er orðinn dýrari og erfiðari viðureignar fyrir barnið, fjölskylduna og samfélagið allt. Þess vegna skiptir tíminn öllu máli. Ábyrg forgangsröðun skilar raunverulegum árangri Framsýnn maður lét reikna út kostnað og ávinning af því að aðhafast, útkoman var að það sparast 7 krónur til framtíðar fyrir hverja eina sem er sett aukalega í málaflokkinn. Pólitík snýst því miður oft um að koma vel út innan kjörtímabils til að fá endurkjör. Þessi málaflokkur er þannig að ávinningurinn kemur ekki í ljós strax, ekki innan kjörtímabils heldur næsta eða þarnæsta. Skýr forgangsröðun og ábyrg vinnubrögð fela í sér að grípa fyrr inn, styðja við fagfólk og styrkja grunninn. Byggjum á því sem virkar Við eigum sterkt skólakerfi, faglegt starfsfólk og við vitum að snemmtæk íhlutun skilar árangri. Það er árangur sem skiptir máli, sem Framsókn ætlar að byggja áfram á, ekki grafa undan. Við verðum að tryggja að ungmenni sem hafa misst fótfestu fái ný tækifæri. Enginn á að falla á milli kerfa og ekkert ungmenni á að sitja eftir án stuðnings, náms eða atvinnu. Þetta snýst um forgangsröðun. Framtíðin byggist á ábyrgð í dag Að standa með börnum, ekki bara í orði heldur í verki. Við í Framsókn veljum að halda áfram á þeirri braut sem skilar árangri, að grípa fyrr inn, styðja betur við börnin og byggja sterkara samfélag til framtíðar. Börnin okkar mega ekki bíða, ábyrgðin er okkar og við ætlum að standa undir henni. Samfélagið, þorpið, þarf einnig að fylgja þeim eftir fyrstu árin þegar þau eru orðin fullorðin í skilningi laganna því það er hagur þorpsins að þau verði nýtir þjóðfélagsþegnar til framtíðar, þaðan koma tekjurnar sem samfélagið er rekið á. Jóhanna Erla er félagsráðgjafi og skipar 4. sæti lista Framsóknar í Hafnarfirði. Guðmundur er lögreglumaður og skipar 5. sæti listans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarfjörður Mest lesið Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eigum við að borga það? Gréta Ingþórsdóttir skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar