Að bæla niður öfgar með öfgum Óðinn Freyr Baldursson skrifar 20. apríl 2026 08:15 Uppgangur öfga meðal ungra karlmanna Upp á síðkastið höfum við séð mikla upprisu öfga og haturs. Þá sérstaklega frá ungum karlmönnum - sem sagt strákum á mínum aldri. Margir jafnaldrar mínir flykkjast að hópum og skoðunum sem ég lít á sem öfga hægri hópa. Margir spyrja: af hverju? Við ólumst upp við sterkar jafnréttishreyfingar þar sem öfgar hafa, við og við slysast inn. Viðmótið hjá ungum karlmönnum virðist vera að upplifa þessa öfgar sem ógn, og reyna að berjast á móti þeim á mismunandi hætti. Pendúll öfganna Öfgar eru eins og pendúll. Þeir fara úr einni átt yfir í aðra, og þegar við reynum að jafna þær út með meiri öfgum er það eins og að ýta pendlinum lengra - við gerum vandann bara verri. Ég hef séð þetta í kringum mig. Fólk sem finnur fyrir óréttlæti eða ógn leitar að einfaldri andstöðu. Það eru skiljanleg mannleg viðbrögð. En vandinn er að þessi andstaða verður oft sjálf að öfgum. Pendúllinn sveiflast til baka, lengra en áður, og við erum komin í sama farið aftur, bara í hina áttina. Þegar umræðan fer úr skorðum Við þurfum ekki að leita langt að dæmum. Þann 16. apríl stóð Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, upp í ræðupúlti Alþingis og lýsti regnbogafánanum sem “veraldlegu trúartákni” og sagði flöggun hans í skólum vera brot á pólitísku hlutleysi. Þetta er pendúllinn í verki. Fáninn táknar jafnrétti og ást hinsegin fólks, en í huga þeirra sem hafa sveiflast of langt í hina áttina er hann orðinn að tákni fyrir það sem þeir óttast. Það sem mig langar að segja við jafnaldra mína er þetta: við getum ekki jafnað út öfgar með meiri öfgum. Ef við gerum það, erum við ekki að leysa vandann - við erum að verða hluti af honum. Við erum að hella bensíni á eldinn og kalla það lausn. Hvernig stöðvum við pendúlinn? Lausnin er ekki að velja aðra hliðina á pendlinum. Lausnin er að stöðva hann. En hvernig? Það gerist ekki í stórum ræðum eða á samfélagsmiðlum. Það gerist í samtölum - þegar við kjósum að hlusta í stað þess að berja til baka. Þegar við spyrjum í stað þess að dæma. Þetta hljómar einfalt, en það er það ekki. Það er miklu auðveldara að deila en að skilja. Það þýðir að vera tilbúinn að standa á milli tveggja elda. Að hlusta á jafnaldra sem hafa farið of langt til hægri - ekki til að vera sammála, heldur til að skilja. Reiðin þeirra á sér oft raunverulegar rætur, jafnvel þótt þeir hafi fundið rangar lausnir. Menn sem líða undir einmanaleika og tilfinningu fyrir að vera skildir eftir snúa ekki við vegna þess að við segjum þeim að þeir séu rangt á vegi farið… Þeir snúa við þegar einhver sér þá. Það þýðir líka að vera tilbúinn að gagnrýna okkar eigin hlið þegar hún fer of langt. Það er óþægilegt. En ef við gerum það ekki, þá er enginn ástæða fyrir aðra til að hlusta á okkur. Pendúllinn stöðvast ekki af sjálfu sér. Hann stöðvast þegar nógu margir ákveða að standa kyrrir í miðjunni - ekki af hugleysi, heldur af hugrekki. Höfundur er í félagastjórn Uppreisnar og formaður Ungra Evrópusinna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hinsegin Mest lesið Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir Skoðun Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir Skoðun Ástæður þess að ég kýs NEI þann 29. ágúst Sigurður P. Sigmundsson Skoðun Atvinnulífið ætti að vilja sjá samninginn Margrét Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Kúvending eða ferð til fjár? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hinsegin fólk á vinnumarkaði – Frá tölum til aðgerða Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin er heimskur, síljúgandi siðblindingi Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ein borg, minna kerfi og betri nýting fjármuna Sölvi Breiðfjörð skrifar Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Tæknilausnir og lesblindir Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Réttmæt kjörskrárvinnsla Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Látum ekki sumarið koma okkur aftur á óvart í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson skrifar Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks á Íslandi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar Skoðun Heilsuspillandi aðbúnaður fanga er dýrt stjórnunarlegt fúsk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun 29. ágúst ‒ Fullveldið endurheimt? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Fyrsta jáið skiptir máli Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Atvinnulífið ætti að vilja sjá samninginn Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Endalok einkalífsins: Hið alsjáandi auga Finnur Ágúst Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar
Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar
Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar