Viðskipti innlent

Heimilar ráð­herra að á­kvarða há­marks­verð elds­neytis

Árni Sæberg skrifar
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra.
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra. Vísir/lýður valberg

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum, sem lækka mun virðisaukaskatt á eldsneyti tímabundið, felur í sér heimild atvinnuvegaráðherra til ákvarða hámarksverð á eldsneyti eða hámarksálagningu. Þá felur frumvarpið í sér heimild til álagningar stjórnvaldssekta skili virðisaukaskattslækkun sér ekki til viðskiptavina.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu um frumvarpið, sem var boðað á föstudag og útbýtt utan þingfundar klukkan 17 á laugardag.

Á blaðamannafundi formanna ríkisstjórnarflokkanna á föstudag kom fram að tímabundið myndi skylda söluaðila til að skila verðlækkun að fullu til neytenda og fela Samkeppniseftirlitinu að vakta að það væri gert.

Sérstakt eftirlit

Í frumvarpinu segir að við lög um virðisaukaskatt bætit tímabundið ákvæði sem mælir fyrir um að virðisaukaskattur á eldsneyti á dælu skuli vera 11 prósent en ekki 24 prósent frá og með 1. maí til og með 31. maí.

„Á umræddu tímabili ber söluaðilum eldsneytis að tryggja að hin tímabundna lækkun á skatthlutfalli virðisaukaskatts skili sér að fullu í endanlegu útsöluverði eldsneytis. Samkeppniseftirlitið skal hafa sérstakt eftirlit með tímabundinni lækkun á útsöluverði eldsneytis samkvæmt þessari málsgrein.“

Stjórnvaldssektir og tilkynningar til ráðherra

Þá segir í frumvarpinu að við samkeppnislög bætist ákvæði til bráðabirgða sem mæli fyrir um að ákvæði laganna gildi um valdheimildir Samkeppniseftirlitsins.

„Samkeppniseftirlitið getur lagt stjórnvaldssektir á fyrirtæki sem gerast brotleg gegn skyldu til að tryggja að hin tímabundna lækkun virðisaukaskatts skili sér að fullu í endanlegu útsöluverði eldsneytis.“

Eftirlitið skuli gera ráðherra grein fyrir því, telji það misbrest á að tímabundin lækkun skatthlutfalls virðisaukaskatts skili sér í endanlegu útsöluverði eldsneytis. Ráðherra geti, að fenginni umsögn Samkeppniseftirlitsins og að höfðu samráði við ráðherra skattamála, sett reglugerð um tímabundnar aðgerðir til að bregðast við slíkum misbresti. 

„Tímabundnar aðgerðir geta falist í ákvörðun hámarksverðs eða hámarksálagningar eða annarri stýringu á verðlagningu eða viðskiptakjörum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×