Fór aftur holu í höggi á Masters og fær kristalsskál Sindri Sverrisson skrifar 11. apríl 2026 22:39 Shane Lowry sýndi mögnuð tilþrif á Masters í dag og er í toppbaráttunni fyrir lokahringinn. Getty/Hector Vivas Írinn Shane Lowry varð í dag fyrsti kylfingurinn til þess að ná tvisvar sinnum að fara holu í höggi á Masters-mótinu í golfi. Draumahöggið má sjá á Vísi.
Lowry náði högginu í dag á 6. braut sem er par 3 og gerði það með sannfærandi hætti, eins og sjá má hér að neðan. Klippa: Lowry fór holu í höggi Írinn notaði 7-járn í teighöggið sitt og sló boltanum þá 174 metra sem þurfti til að koma honum í holuna. Hann fagnaði svo vel með félaga sínum Tommy Fleetwood. Áður hafði Lowry náð að fara holu í höggi á Masters árið 2016 en þá á 16. holu. Launin fyrir að fara holu í höggi á Masters eru sérstök kristalsskál. Það sem gerir afrek Írans enn merkilegra er svo einnig að hann náði líka að fara holu í höggi á síðasta móti sem hann spilaði á, eða Houston Open. Lowry er aðeins þriðji kylfingurinn sem nær að fara holu í höggi oftar en einu sinni á risamóti, á síðustu tuttugu árum, en hinir eru Si Woo Kim og Louis Oosthuizen. Lowry er sem stendur á meðal efstu manna, á -9 höggum, eftir að hafa spilað á -4 höggum á þriðja hringnum í dag. Hann er því svo sannarlega með í baráttunni um sigurinn á Masters en er þremur höggum á eftir Rory McIlroy.
Golf Masters-mótið Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira