Fullkomin lending eftir sögulega ferð Freyja Þórisdóttir skrifar 11. apríl 2026 08:41 Geimfaranum Reid Wiseman, leiðangursstjóra Artemis II, hjálpað af flugþilfarinu eftir komuna um borð í USS John P. Murtha. AP Geimfarar Artemis II eru komnir heilir á húfi aftur til jarðar eftir „fullkomna lendingu“ og hafa þar með lokið sinni sögulegu 10 daga geimferð. Reid Wiseman, Victor Glover, Christina Koch og Jermey Hansen lögðu af stað þann 1. apríl út í geim og er þetta í fyrsta skipti frá árinu 1972 sem menn eru sendir til tunglsins.
Áhöfnin lenti í Kyrrahafinu rétt sjö mínútur yfir átta í gærkvöldi að staðartíma og þá rétt eftir miðnætti á íslenskum tíma. Leiðangursstjórinn Reid Wiseman staðfesti að áhöfnin væri við góða heilsu. Breski fjölmiðillinn BBC var með lifandi vakt á vef sínum. „Þetta er upphaf nýs tímabils í könnun mannkyns á geimnum,“ segir í tilkynningu geimferðastofnunarinnar NASA eftir endurkomu áhafnarinnar. Geimfararnir fjórir séu „glaðir og heilir á húfi“ þrátt fyrir að um sex mínútna rof á sambandi við geimfarið hafi orðið stuttu fyrir lendingu. Það sé hefðbundinn hluti af lendingaráætlun en rofið varð í þann mund sem Orion-geimfarið steyptist niður í átt að lendingarstað sínum á 35-földum hljóðhraða. Áhafnarmeðlimir voru sóttir úr Orion-geimfari sínu en aðeins 14 mínútum eftir að hafa komið aftur inn í lofthjúp jarðar lenti áhöfn Artemis II í Kyrrahafinu, undan vesturströnd Bandaríkjanna.AP Geimfararnir fjórir voru lengst 406.771 kílómeter frá jörðu sem er lengra en nokkur annar maður hefur farið. Ashley Hansen, önnur tvíburadætra geimfarans Jeremy Hansen, sagði í samtali við BBC að mamma hennar og bróðir hefðu fylgst með lendingunni frá stjórnstöðinni á meðan hún horfði á í Montreal í Kanada með systur sinni. „Ég ætla bara að gefa honum stærsta faðmlag í heimi. Ég held að við verðum öll bara agndofa yfir því að hann hafi gert þetta,“ segir Ashley. Hið svokallaða „splashdown“ má sjá hér að neðan:
Geimurinn Bandaríkin Tímamót Artemis-áætlunin Tunglið Tengdar fréttir NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Geimferðastofnun Bandaríkjanna, betur þekkt sem NASA, hefur deilt myndum af jörðinni sem áhöfn Orion-geimfarsins, sem er nú á leið til tunglsins, tók úr geimfarinu á fimmtudaginn. 4. apríl 2026 08:44 Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Artemis-II er liður í Artemis-áætlun Geimferðastofnunarinnar NASA en tunglskotið er sögulegt að mörgu leyti. Geimfarið Orion fór nýlega af braut sinni í kringum jörðina og í átt að tunglinu en óvænt óhapp, sem þykir þó tiltölulega minniháttar, skeði um borð í gær. 3. apríl 2026 14:49 Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Artemis-áætlun NASA er ætlað að leiða til varanlegrar dvalar manna á tunglinu. Fjölmargar þjóðir koma að verkefninu en í Danmörku starfar Íslendingur sem hefur svo sannarlega lagt hönd á plóg. 2. apríl 2026 15:50 Fyrstu geimfaranir í rúma hálfa öld sendir til tunglsins Fjórum geimförum verður á miðvikudaginn skotið af stað til tunglsins. Þar eiga þeir að fara á braut um tunglið og snúa aftur til jarðar á tíu daga tímabili. Þetta verður í fyrsta sinn í marga áratugi, frá tímum Appollo-áætlunarinnar, sem menn verða sendir til tunglsins. 30. mars 2026 15:50 Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Skuldar ekkert Innlent Fleiri fréttir Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Sjá meira
NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Geimferðastofnun Bandaríkjanna, betur þekkt sem NASA, hefur deilt myndum af jörðinni sem áhöfn Orion-geimfarsins, sem er nú á leið til tunglsins, tók úr geimfarinu á fimmtudaginn. 4. apríl 2026 08:44
Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Artemis-II er liður í Artemis-áætlun Geimferðastofnunarinnar NASA en tunglskotið er sögulegt að mörgu leyti. Geimfarið Orion fór nýlega af braut sinni í kringum jörðina og í átt að tunglinu en óvænt óhapp, sem þykir þó tiltölulega minniháttar, skeði um borð í gær. 3. apríl 2026 14:49
Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Artemis-áætlun NASA er ætlað að leiða til varanlegrar dvalar manna á tunglinu. Fjölmargar þjóðir koma að verkefninu en í Danmörku starfar Íslendingur sem hefur svo sannarlega lagt hönd á plóg. 2. apríl 2026 15:50
Fyrstu geimfaranir í rúma hálfa öld sendir til tunglsins Fjórum geimförum verður á miðvikudaginn skotið af stað til tunglsins. Þar eiga þeir að fara á braut um tunglið og snúa aftur til jarðar á tíu daga tímabili. Þetta verður í fyrsta sinn í marga áratugi, frá tímum Appollo-áætlunarinnar, sem menn verða sendir til tunglsins. 30. mars 2026 15:50