Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Árni Sæberg skrifar 8. apríl 2026 13:27 Björgólfur Thor Björgólfsson. Vísir/Vilhelm Vilhjálmur Bjarnason og Ólafur Kristinsson lögmaður hafa stefnt athafnamönnunum Björgólfi Thor Björgólfssyni og Birgi Má Ragnarssyni vegna meintra njósna, sem kenndar hafa verið við fyrirtækið PPP. Þeir krefjast alls 264 milljóna króna í miskabætur auk vaxta frá árinu 2012.
Þetta kemur fram í stefnum, sem birtar hafa verið þeim Björgólfi og Birgi Má og Vísir hefur undir höndum. Ríkisútvarpið greindi fyrst frá. Vilhjálmur segir í samtali við Vísi að meint háttsemi þeirra hafi verið meingerð í garð þeirra Ólafs og tilræði við réttarfar í landinu. Þannig hafi verið reynt að eyðileggja dómsmál á hendur Björgólfi með því að rústa mannorði þeirra sem að stefnunni stóðu. Lögreglumenn stóðu að njósnunum Málið hefur vakið mikla athygli frá því að greint var frá því í fréttaskýringaþættinum Kveik á Rúv í fyrra. Þar kom fram að Björgólfur hefði ráðið fyrirtækið PPP sf. til þess að njósna um aðstandendur málsóknarfélags fyrrverandi hluthafa í Landsbankanum vegna fyrirhugaðrar málsóknar á hendur Björgólfi. Málið vakti ekki síst athygli fyrir þær sakir að PPP var í eigu fyrrverandi lögreglumannanna Jóns Óttars Ólafssonar og Guðmundar Hauks Gunnarssonar og að lögreglumaður á vakt kom að ætluðum njósnum. Krefjast tvöfaldrar greiðslu frá hvorum um sig Í stefnunum segir að Vilhjálmur og Ólafur krefjist hvor um sig 66 milljóna króna úr hendi Björgólfs og Birgis Más, hvors um sig. Þannig nema dómkröfur alls 264 milljónum króna, sem er fáheyrð upphæð miskabóta hér á landi. Í stefnunum segir að í Kveik hafi verið fullyrt að greiðslur Björgólfs og Birgis Más til PPP sf. fyrir þá þjónustu sem lýst er í stefnu hefðu numið 33 milljónum króna. Löggjafinn hafi í fjölmörgum tilvikum mótað lagareglu sem kveði á um að sekt fyrir tiltekið brot skuli nema tvöfaldri og allt að tífaldri fjárhæð brotsins. Stefnendur telji rétt að taka mið af þessari stefnumótun löggjafans við framsetningu bótakröfu, og krefjist þess lágmarks sem framangreind lagaákvæði mæla fyrir um, það er tvöfaldrar þeirrar fjárhæðar, úr hendi hvors stefnda fyrir sig, sem þeir hafi greitt fyrir hina ólögmætu háttsemi. Nokkru eftir birtingu þáttarins gaf Björgólfur út yfirlýsingu þar sem hann greindi frá því að hann hafði sent Rúv formlega beiðni um leiðréttingu á meintum rangfærslum sem voru viðhafðar í þættinum. Björgólfur sagði að samkvæmt bókhaldsgögnum hefðu rúmar átta milljónir króna verið greiddar til PPP en ekki 33 milljónir, eins og ítrekað hefði verið haldið fram á Rúv og öðrum miðlum í kjölfarið. Mögulega hefðu fleiri reikningar borist frá fyrirtækinu en þeir ekki greiddir, þar sem verkkaupum hefði verið lokið þegar engin niðurstaða fékkst. „Þá kom fram að njósnað hefði verið um „fjölda fólks“ og að aðgerðirnar hefðu kostað „tugi milljóna króna“. Í þættinum eru þó aðeins fjórir einstaklingar nafngreindir og samkvæmt gögnum voru greiddar rúmar 8 milljónir króna fyrir verkið. Fullyrðingarnar standast því ekki.“ Sekt sem hefði þýðingu fyrir meðalmann myndi engu skila Þá segir í stefnunni að við mat á miskabótum verði meðal annars að miða við það hversu umfangsmiklar og skipulagðar aðgerðirnar voru. Þær hafi verið framkvæmdar af sérhæfðum aðilum, kostað tugi milljóna króna og numið hundruðum vinnustunda. „Þetta sýnir ekki aðeins einbeittan brotavilja og fullkomið skeytingarleysi um réttindi og hagsmuni stefnanda, heldur einnig fjárhagslega getu til að standa að háttsemi sem var til þess fallin að valda stefnanda verulegum miska. Til viðbótar þessu verður sérstaklega að líta til stöðu stefndu og þess verulega ójafnvægis sem ríkti milli aðila. Stefndu eru með fjársterkustu einstaklingum landsins og njóta fádæma fjárhagslegra og félagslegra yfirburða. Stefnandi var hins vegar einstaklingur sem tók þátt í lögmætum málarekstri gegn stefnda Björgólfi. Þegar slíkir aðilar beita yfirburðastöðu sinni til að standa að skipulögðum og leynilegum njósnaaðgerðum gegn einstaklingi verður brotið mun alvarlegra en ella.“ Þá verði að hafa í huga viðurkenningar- og varnaðarhlutverk miskabóta. Til þess að bætur teljist raunveruleg viðurkenning á því ranglæti sem stefnandi var beittur, og til þess að þær hafi raunveruleg varnaðaráhrif gagnvart stefndu, verði þær að vera í samræmi við bæði alvarleika brotsins og þá yfirburðastöðu sem misnotuð var. „Fjárhæð sem hefði þýðingu fyrir meðalmann væri merkingarlaus í ljósi fjárhagslegrar stöðu stefndu og myndi hvorki fullnægja réttlætiskennd né markmiðum 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga.“
Gögnum stolið frá sérstökum saksóknara Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira