Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Smári Jökull Jónsson skrifar 4. apríl 2026 14:00 Grindavíkurbær Vísir/Vilhelm Grindavíkurbær hefur auglýst íbúðir til leigu á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð sem lokað hefur verið frá rýmingu bæjarins. Deildarstjóri hjúkrunar á Víðihlíð segir fólk í misjafnri aðstöðu til að flytja aftur heim í bæinn.
Íbúðir á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð voru auglýstar til leigu í vikunni en það hefur verið lokað frá rýmingu Grindavíkurbæjar í nóvember 2023. Húsnæðið skemmdist mikið í jarðhræringunum en að sögn deildarstjóra hjúkrunar á Víðihlíð er búið að rífa hluta hússins en að öðru leyti sé ástand þess gott. Starfsemin verði ekki mikil í byrjun. „Grindavíkurbær átti átján íbúðir en nýbyggingin sem var byggð árið 2018 hún náttúrulega losnaði frá í jarðskjálftunum við rýmingu. Við ætlum að vera með tólf íbúðir í leigu og það er nú þegar búið að sækja um þrjár þeirra,“ segir Stefanía Jónsdóttir, deildarstjóri hjúkrunar á Víðihlíð. Eins og sjá má stórskemmdist Víðihlíð í jarðhræringunum og þurfti að rífa hluta hússins.Vísir/Sigurjón „Þetta gerist bara smátt og smátt. Þetta er langhlaup, við ætlum að byggja þetta upp en þetta tekur tíma og einhvern veginn verðum við að byrja. Ástandið á húsinu er að verða dúndurgott. Það voru sprungur og skemmdir innanhúss en það er búið að bæta það allt, dúkaleggja allt aftur og íbúðirnar eru í toppstandi,“ bætir Stefanía við. Ekki auðvelt fyrir þennan hóp að rífa sig upp aftur Hún tekur fram að nú þegar búi eldri borgarar í Grindavík og að hún hafi skynjað áhuga hjá fólki að flytja aftur heim. „Já og nei, það eru náttúrulega margir komnir á þann aldur að fólk er búið að festa sig einhvers staðar annars staðar og þó þeim líði illa þar og séu einangruð og einmana og að eiga við þetta áfall, þá er ekkert auðvelt að rífa sig aftur upp.“ Stefanía segist telja að með tíð og tíma komi fólk aftur heim. „Sumir sem eru að koma heim eru jafnvel að bugast undan dýrri leigu annars staðar. Sumir eru að koma því þeim langar það og svo eru aðrir sem komast ekki heim því þeir geta ekki selt eða losnað undan ákvæðum í núverandi húsnæði.“ „Við erum öll á sömu línu“ Hún segist sannfærð um að bærinn muni blómstra á ný og að starfsmenn bæjarins rói allir í sömu átt. Myndin Ó góða gamla Grindavík var frumsýnd í gær og sagðist Stefanía hafa fengið mörg skilaboð frá fólki eftir myndina sem hafi ekki áttað sig á öllu sem gengið hafði á í jarðhræringunum. „Við ætlum að byggja þetta upp. Hvort sem ég ætla mér heim eða ekki, hvort sem þú ert Grindvíkingur eða ekki. Þetta snýst bara um að við ætlum að byggja upp Grindavík.“ „Það er það góða við starfsfólk Grindavíkurbæjar, við erum öll á sömu línu. Það ætla allir sem vinna hjá Grindavík að byggja upp bæinn.“
Hjúkrunarheimili Eldri borgarar Grindavík Tengdar fréttir Vilja fá valdið aftur Yfir þrjátíu prósent þeirra sem verða á kjörskrá í Grindvík í sveitarstjórnarkosningum í vor eru með lögheimili í öðru sveitarfélagi. Oddvitar þeirra tveggja flokka sem tilkynnt hafa framboð telja húsnæðismál eitt stærsta málið og íbúarnir vilja völdin aftur í hendur bæjaryfirvalda. 1. apríl 2026 21:00 Vonast til að náttúran verði þeim hliðholl Leikskóli tekur aftur til starfa í Grindavík í ágúst ef áform bæjarstjórnar ganga eftir og þá er einnig í skoðun að innrita aftur í grunnskólann í haust. Forseti bæjarstjórnar segir að foreldrar áttatíu barna hafi hug á því að nýta sér þjónustuna. 28. mars 2026 16:00 Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira
Vilja fá valdið aftur Yfir þrjátíu prósent þeirra sem verða á kjörskrá í Grindvík í sveitarstjórnarkosningum í vor eru með lögheimili í öðru sveitarfélagi. Oddvitar þeirra tveggja flokka sem tilkynnt hafa framboð telja húsnæðismál eitt stærsta málið og íbúarnir vilja völdin aftur í hendur bæjaryfirvalda. 1. apríl 2026 21:00
Vonast til að náttúran verði þeim hliðholl Leikskóli tekur aftur til starfa í Grindavík í ágúst ef áform bæjarstjórnar ganga eftir og þá er einnig í skoðun að innrita aftur í grunnskólann í haust. Forseti bæjarstjórnar segir að foreldrar áttatíu barna hafi hug á því að nýta sér þjónustuna. 28. mars 2026 16:00