Með páskaegg á andlitinu Þorsteinn Sæmundsson skrifar 31. mars 2026 23:32 Í engilsaxneskum löndum er haft við orð að þeir sem hagi sér ósæmilega eða verði sér til minnkunar sitji uppi með ,,egg á andlitinu.” Um þessar mundir er ríkisstjórn Íslands með páskaegg á andlitinu. Nú rétt fyrir Pálmasunnudag bárust landsmönnum tvær fréttir um páskahald ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Hvorug fréttin er ríkisstjórninni til vegsauka. Fyrri fréttin fjallaði um að heilbrigðisráðerra hefði fært ráðuneytisstarfsfólki páskaegg að gjöf frá skattgreiðendum. Vonandi fara eggin vel niður. En í sama mund fregnaðist að það starfsfólk heilbrigðiskerfisins, sem einna þyngstar byrðar ber án þess að kvarta fyrr en í öll skjól er fokið, fengi engin páskaegg frá vinnuveitanda sínum. Þessi ráðstöfun var hugsuð í sparnaðarskyni. Vel mætti hugsa sér að spara viðlíka upphæð með því að draga nokkuð úr veitingum á ársfundi Landsspítalans þar sem borð svigna undan kræsingum. Þegar fréttir bárust af þessari slælegu mannauðsráðstöfun brugðust vel hugsandi fyrirtækjaeigendur við og færðu starfsfólki Landspítalans páskaegg, hverjum og einum. Hafi þeir sóma af. Hin fréttin fjallaði um sérlega gjafmildi mennta- og barnamálaráðherra sem er einstaklega örlát á annarra manna fé. Ráðherrann ákvað að ,,gefa” allri ríkisstjórninni svo og starfsmönnum mennta- og barnamálaráðuneytisins stærðar páskaegg í skrautumbúðum á kostnað skattgreiðenda. Mennta- og barnamálaráðherra segist bera hag ,,okkar minnstu bræðra og systra” mjög fyrir brjósti, einkum í aðdraganda kosninga. Hún fór einnig á kostum í ræðustól Alþingis rétt fyrir ein jólin þegar hún sveiflaði jólabónusi sínum í kringum sig áður en hún stakk honum í vasann og fór heim. Ég vil góðfúslega benda ráðherranum á að fyrir andvirði stóru páskaeggjanna í gjafaumbúðunum, nálægt sjöhundruð þúsund krónum, hefði mátt kaupa 280 páskamáltíðir hjá Samhjálp handa þeim sem minnst mega sín. En þar sem mennta-og barnamálaráðherra fann sína ,,minnstu bræður og systur” í ríkisstjórn og ráðuneyti og ákvað að létta þeim róðurinn yfir Páskana á minn kostnað verð ég að segja: Verði ykkur öllum að góðu og hugleiðið orð Faríseans meðan þið maulið á eggjunum um Páskana: ,, Faríseinn sté fram og baðst þannig fyrir: Guð, ég þakka þér að ég er ekki eins og aðrir menn, ræningjar, ranglátir, hórkarlar eða þá eins og þessi tollheimtumaður.” En tollheimtumaðurinn stóð langt frá og vildi ekki einu sinni hefja augu sín til himna heldur barði sér á brjóst og sagði:,,Guð vertu mér syndugum líknsamur.” (Lk.18) Ég á mér reyndar þann draum að í hverju páskaeggi mennta- og barnamálaráðherra sé sami málshátturinn: ,,Dramb er falli næst.” Svo kann að vera að mörgum þyki ,,páskaeggjamálið” ys og þy útaf engu en þegar ráðherra finnst eðlilegt að fara þannig með almannafé hlýtur maður að fylgjast vel með hvernig ráðherrann höndlar stærri upphæðir almannafjár og hverjir njóta. Gleðilega upprisuhátíð. Höfundur er varaþingmaður Miðflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Miðflokkurinn Páskar Þorsteinn Sæmundsson Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar