Glæsibrú á Vestfjörðum boðin út í næsta mánuði Kristján Már Unnarsson skrifar 24. mars 2026 21:00 Bogabrúin yfir mynni Djúpafjarðar. Fjær sést hvar vegurinn fer yfir Gufufjörð. Eyðijörðin Grónes er á milli fjarðanna en þar verður áningarstaður. Efst til vinstri liggur Vestfjarðavegur áfram vestur um Skálanes. Vegagerðin Vegagerðin hyggst í næsta mánuði bjóða út smíði 210 metra langrar brúar yfir Djúpafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum. Hún verður ein svipmesta brú landsins en jafnframt lokaáfanginn í einhverri umdeildustu vegagerð á Íslandi.
Fjallað var um mannvirkið í kvöldfréttum Sýnar. Þetta er lokaáfanginn í endurnýjun Vestfjarðvegar um Gufudalssveit, vegagerð sem var í raun strand í nærri tvo áratugi vegna deilna um Teigsskóg þar til höggvið var á hnútinn fyrir sex árum. Síðan er búið að þvera Þorskafjörð, vegurinn er kominn um sjálfan Teigsskóg, búið er að leggja af veginn um Hjallaháls en eftir er að ljúka brúagerð yfir tvo firði, Gufufjörð og Djúpafjörð. Vegfarendur þurfa því enn að aka yfir Ódrjúgsháls en þá reynslu má upplifa hér í sjónvarpsfréttinni: Á Ódrjúgshálsi eru ökumenn varaðir við því að aka ekki hraðar en á tuttugu kílómetra hraða en þessi vegarkafli þykir einhver sá svakalegasti á þjóðvegakerfinu. Þarna liggur vegurinn um snarbratta fjallshlíð, hann er með nokkrum kröppum beygjum og þar er bara vegrið á stuttum kafla. Frá Vestfjarðavegi um Ódrjúgsháls.Egill Aðalsteinsson Í stað vegarins um Ódrjúgsháls er verið að leggja láglendisveg þvert yfir firðina tvo. Þar er búið að gera jarðvegsfyllingar og verið að smíða tvær brýr, annars vegar 130 metra langa brú yfir Gufufjörð og hinsvegar 58 metra langa brú yfir Djúpafjörð við Grónes. Það á hins vegar eftir að bjóða út langstærstu brúna, sem koma á yfir Djúpafjörð við Hallsteinsnes. Hún verður 210 metra löng og 25 metra há stálbogabrú. Þeir hjá Vegagerðinni kalla hana reyndar netbogabrú. Teikning af því hvernig brúin gæti litið út. Vegagerðin tekur fram að hún sýni ekki endanlegt útlit. Brúin verður 210 metra löng og 25 metra há.Vegagerðin Hún verður í sama stíl og brýrnar yfir Mjóafjörð í Ísafjarðardjúpi og Eldvatn í Skaftártungu en þær eru 160 metra og 78 metra langar. Djúpafjarðarbrúin verður því mun stærri en hinar og mun ekki síður en þær setja mikinn svip á umhverfi sitt. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni í dag er áformað að brúarsmíðin verði boðin út í apríl, það er í næsta mánuði, eftir páska. Verklok eru ekki endanlega ákveðin en líklegt að þau verði annaðhvort í lok árs 2027 eða í byrjun árs 2028. Horft yfir Djúpafjörð frá Grónesi yfir á Hallsteinsnes. Bogabrúin sést ofarlega fyrir miðri mynd. Fjær er Þorskafjörður.Vegagerðin Þar með fæst tólf kílómetra viðbótarstytting Vestfjarðavegar en alls styttist leiðin með öllum þessum framkvæmdum í Gufudalssveit um 22 kílómetra.
Vegagerð Teigsskógur Reykhólahreppur Samgöngur Samgönguáætlun Umferðaröryggi Vesturbyggð Ísafjarðarbær Bolungarvík Súðavíkurhreppur Tengdar fréttir Býður út næstsíðasta áfanga vegagerðar í Gufudalssveit Vegagerðin hefur boðið út smíði tveggja steyptra brúa í Gufudalssveit, yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Gert er ráð fyrir verklokum eftir eitt og hálft ár, haustið 2026. 14. mars 2025 13:00 Umferð hleypt á nýja veginn um Teigsskóg Stór stund rennur upp í vegamálum Vestfirðinga á morgun þegar vegurinn umdeildi um Teigsskóg verður opnaður umferð. Í dag var jafnframt skrifað undir verksamning um næsta verkáfanga; gerð vegfyllinga yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. 30. nóvember 2023 21:00 Yndislegt að búið sé að opna Þorskafjarðarbrú Gleði ríkti í Þorskafirði í dag þar sem fagnað var opnun nýrrar brúar yfir fjörðinn, átta mánuðum á undan áætlun. Brúin styttir Vestfjarðaveg um tíu kílómetra. 25. október 2023 22:22 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Sjá meira
Býður út næstsíðasta áfanga vegagerðar í Gufudalssveit Vegagerðin hefur boðið út smíði tveggja steyptra brúa í Gufudalssveit, yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Gert er ráð fyrir verklokum eftir eitt og hálft ár, haustið 2026. 14. mars 2025 13:00
Umferð hleypt á nýja veginn um Teigsskóg Stór stund rennur upp í vegamálum Vestfirðinga á morgun þegar vegurinn umdeildi um Teigsskóg verður opnaður umferð. Í dag var jafnframt skrifað undir verksamning um næsta verkáfanga; gerð vegfyllinga yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. 30. nóvember 2023 21:00
Yndislegt að búið sé að opna Þorskafjarðarbrú Gleði ríkti í Þorskafirði í dag þar sem fagnað var opnun nýrrar brúar yfir fjörðinn, átta mánuðum á undan áætlun. Brúin styttir Vestfjarðaveg um tíu kílómetra. 25. október 2023 22:22