Katrín tilnefnd í stjórn Eikar Agnar Már Másson skrifar 24. mars 2026 17:44 Katrín Jakobsdóttir gegnir einnig stjórnarstöðum í nýju Rannsóknarsetri um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi og nýrri gervigreindarmiðstöð Norðurland. Auk þess situr hún í Háskólaráði. Vísir/Vilhelm Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra, er meðal þeirra sem tilnefnd eru í stjórn fasteignafélagsins Eikar.
Tilnefningarnefnd Eikar fasteignafélags hefur tilnefnt fimm manns í stjórn, eins og fram kemur í skýrslu nefndarinnar. Boðað hefur verið til aðalfundar hinn 16. apríl í Turninum við Smáratorg. Eik er eitt stærsta fasteignafélag landsins og er skráð í kauphöll Íslands en félagið sérhæfir sig í útleigu atvinnuhúsnæðis. Katrín er sú eina tilnefnda sem ekki er þegar í stjórn félagsins. Guðrún Bergsteinsdóttir lögmaður, sem hefur verið stjórnarmaður frá 2016, er ekki tilnefnd í skýrslunni en ekki liggur fyrir hvort hún sækist eftir endurkjöri. Hinir tilnefndu eru: Katrín Jakobsdóttir Bjarni Kristján Þorvarðarson stjórnarformaður Eyjólfur Árni Rafnsson stjórnarmaður Gunnar Þór Gíslason stjórnarmaður Ragnheiður Harðar Harðardóttir stjórnarmaður Í rökum tilnefningarnefndar er bent á að Katrín hafi víðtæka og einstaka stjórnunar- og leiðtogareynslu, hæfni og þekkingu á flóknum viðfangsefnum sem krefjist meðal annars samvinnu og hagsmunajafnvægis. Hún hafi langa reynslu af stjórnsýslu, stefnumótun og breytingastjórnun og ákvörðunartöku við erfiðar og flóknar aðstæður. „Hún hefur mikla innsýn í virkni hagkerfisins og samfélagsins auk þess sem hún býr að sterkum alþjóðlegum tengslum og umtalsverðri reynslu af alþjóðastarfi,“ segir í röksemdafærslu nefndarinnar.| Katrín hefur tekið að sér fjölda verkefna frá því að hún vék úr ráðherratóli og hætti sem formaður VG. Í desember tók hún við stöðu stjórnarformanns nýrrar gervigreindarmiðstöðvar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Í apríl í fyrra tók hún einnig við sem stjórnarformaður nýs Rannsóknarseturs um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi. Þá hefur hún sæti í háskólaráði og gaf út glæpasögu ásamt Ragnari Jónssyni síðustu jól
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024) Fasteignamarkaður Eik fasteignafélag Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Sjá meira