Hversu mikið af regluverki Evrópusambandsins hefur verið tekið upp í íslenskan rétt? Gunnar Ármannsson skrifar 24. mars 2026 09:03 Umræðan um tengsl Íslands og Evrópusambandsins hefur að hluta til einkennst af ágreiningi um það hversu stór hluti regluverks ESB hefur verið innleiddur hér á landi. Nefndar hafa verið tölurnar 15 - 20% á móti 75 - 80%. Þeir sem hafa haldið hærri tölunni á lofti virðast oft gera það í þeim tilgangi að sýna fram á að við séum nú þegar búin að taka upp það stóran hluta regluverksins að það skipti litlu máli að klára upptökuna með inngöngu í ESB. Í Morgunblaðinu í dag, 24. mars 2026, er mjög upplýsandi grein um þetta málefni eftir Hjört J. Guðmundsson. Þar skýrir hann hvernig umræðan um þessi 80% kom til og hvernig hún var leiðrétt. Og jafnframt tekin upp aftur af Degi B. Eggertssyni, þingmanni Samfylkingarinnar, í ræðu á Alþingi fyrr í þessum mánuði. Mismunurinn á tölunum felst í því að ýmist er miðað við heildarregluverk ESB, eða út frá þeim hluta sem fellur undir EES. Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytisins frá 2018 er innleiðing Íslands um 13,4% af öllu regluverki ESB á meðan aðrar heimildir um reglur innri markaðarins telja innleiðingu EES-reglna vera 70 - 80%. En umræðan um prósentur segir ekki alla söguna. Það er gagnlegt að skoða lög nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið og nefndarálit meirihluta utanríkismálanefndar til að skýra tengslin nánar með tilliti til þess hvernig samningurinn var lögfestur og afmarkaður – og hvað er ekki í honum. Tölur um hlutfall innleiðingar geta verið upplýsandi, en þær segja aðeins hluta sögunnar. Ef ætlunin er að meta hvernig samstarfið við ESB snertir fullveldi og pólitíska ákvarðanatöku Íslands er mun mikilvægara að horfa á hvaða málaflokkar eru utan EES - þ.e. hvað Ísland hefur ekki þurft að taka upp og heldur áfram að stjórna sjálft. Stærstu valdheimildir Íslands eru utan EES-samningsins. EES-samningurinn tekur eingöngu til reglna innri markaðarins; frjálst flæði vöru, þjónustu, fjármagns og fólks, samkeppnisreglur, neytendavernd og skyldar reglur. En þær stefnur sem hafa mest áhrif á fullveldi ríkja eru ekki hluti EES-samningsins. Þar má nefna: Sjávarútveg -Sameiginlega fiskveiðistefna ESB gildir ekki á Íslandi og samkvæmt lögum nr. 2/1993 er Íslandi heimilt að viðhalda hömlum á fjárfestingu erlendra aðila í sjávarútvegi og fiskvinnslu. Hins vegar tekur EES-samningurinn til viðskipta með sjávarafurðir í gegnum bókun 9, sem tryggir umtalsverða niðurfellingu tolla eins og áréttað er í nefndaráliti meiri hluta utanríkismálanefndar. Landbúnað - Ísland fellur ekki undir sameiginlega landbúnaðarstefnu ESB og ákveður sjálft tollvernd og stuðningskerfi. Tollamál og ytri viðskipti - Ísland er utan tollabandalags ESB og getur sjálft samið við ríki utan EES um fríverslun og tollasamninga. Myntmál og ríkisfjármál - Ísland fylgir hvorki evru né fjárlagareglum ESB, þar sem slíkt fellur alfarið utan EES. Utanríkis- og varnarmál - Sameiginleg stefna ESB á þessum sviðum nær ekki til Íslands, sem heldur fullu ákvörðunarvaldi á þessum lykilsviðum. Þetta eru ekki jaðarmál. Þessi mál tilheyra grunnstoðum fullveldis; auðlindir, matvælaöryggi, viðskiptastefna, peningar og ytri samskipti. Í nefndaráliti meirihluta utanríkismálanefndar var einmitt komist að þeirri niðurstöðu að EES-samningurinn bryti ekki í bága við stjórnarskrá þar sem valdið sem alþjóðastofnunum er ætlað er vel afmarkað og gildir á takmörkuðu sviði í milliríkjaviðskiptum. EES-samningurinn fjallar ekki um pólitíska yfirbyggingu - heldur markaðssamstarf. Innleiðingarhlutfallið endurspeglar fyrst og fremst hversu mörgum tæknilegum reglum þarf að beita til að skapa einsleitt Evrópskt efnahagssvæði, líkt og lagt var upp með við samþykkt laga nr. 2/1993. Það segir hins vegar ekki alla söguna um eðli samningsins, sem byggir á vel afmörkuðu framsali á valdi í milliríkjaviðskiptum fremur en almennri pólitískri yfirráðaheimild. EES er í grunninn markaðssamningur. Eins og kom fram í áliti meirihluta utanríkismálanefndar var það grundvallarsjónarmið að ekki þyrfti að breyta stjórnarskrá Íslands vegna samningsins. Þess vegna eru stærstu ákvarðanir sem móta íslenskt samfélag áfram í höndum Alþingis, þótt meginmál samningsins hafi lagagildi hér á landi samkvæmt lögum nr. 2/1993. Í því felst helsti munurinn á EES-og ESB-aðild. EES felur í sér aðlögun að reglum innri markaðarins í gegnum lögfestingu á meginmáli samningsins - en ekki framsal lykilvaldheimilda á borð við sameiginlega fiskveiðistefnu, landbúnaðarstefnu, myntmál eða ytri samskipti til stofnana Evrópusambandsins. Niðurstaða: Það sem Ísland tekur ekki upp skiptir mestu. Þótt áhugavert sé að deila um prósentur innleiðingar, þá er mikilvægt að horfa á stærri myndina:EES-samningurinn gerir að verkum að Ísland þarf að taka upp reglur sem tryggja aðgang að evrópskum innri markaði. Samningurinn krefur Ísland ekki um að framselja stjórnun á þeim lykilstefnumálum sem liggja utan hans, líkt og meiri hluti utanríkismálanefndar áréttaði við fullgildingu laga um Evrópska efnahagssvæðið. Þar liggur raunverulegi munurinn - og ástæðan fyrir því að prósentutölur, einar og sér, segja ekki söguna um sjálfstæði Íslands í samskiptum sínum við Evrópu. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Ármannsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar