Bókasöfn gegn einmanaleika Unnar Geir Unnarsson skrifar 23. mars 2026 10:45 Einmanaleiki og félagsleg einangrun eru ekki lengur jaðarvandamál heldur ein af stóru lýðheilsuáskorunum samtímans. Rannsóknir sýna að langvarandi einmanaleiki getur haft alvarleg áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu, meðal annars í formi aukinnar streitu, hækkaðs blóðþrýstings og aukinnar hættu á þunglyndi. Í þessari umræðu er þó oft horft fram hjá einu aðgengilegasta og áhrifaríkasta úrræði samfélagsins, almenningsbókasöfnum. Almenningsbókasöfn hafa lengi verið mikilvægar stofnanir í íslensku samfélagi og gegna lykilhlutverki í að efla menntun, menningu og lýðheilsu. Á undanförnum árum hefur hlutverk þeirra í baráttunni gegn einmanaleika og félagslegri einangrun fengið aukna athygli, ekki síst vegna þess að bókasöfn bjóða upp á opin, örugg og hlutlaus rými þar sem fólk getur dvalið án þess að þurfa að kaupa sér aðgang. Fyrir mörg eru bókasöfn einu staðirnir þar sem hægt er að vera innan um annað fólk án kröfu um þátttöku og það skiptir máli. Bókasöfn eru ekki bókageymslur heldur lifandi samfélagsmiðjur sem tengja saman fólk af ólíkum uppruna og á mismunandi æviskeiðum. Fyrir eldri borgara, sem oft standa frammi fyrir minnkandi tengslaneti og aukinni einangrun, geta bókasöfn boðið upp á leshringi, spjallhópa og fræðsluviðburði sem skapa vettvang fyrir samskipti og samveru. Fyrir börn og ungt fólk eru sögustundir, námskeið og fjölbreytt fræðslustarfsemi mikilvægir þættir í félagslegum þroska og auka tækifæri til tengslamyndunar. Fyrir fólk á vinnualdri geta bókasöfn verið rými til náms, vinnu og samfélagslegrar þátttöku utan hefðbundins vinnuumhverfis. Andleg heilsa er órjúfanlega tengd félagslegri velferð. Bókasöfn eru rými þar sem gestir upplifa öryggi, ró og tilfinningu fyrir því að tilheyra. Þar er að finna bækur og annað efni sem fjallar um geðheilbrigði og vellíðan, auk þess sem mörg bókasöfn bjóða upp á viðburði sem styðja við andlega heilsu, svo sem listsköpun, hugleiðslu og samveru í notalegu umhverfi. Í lýðheilsusamhengi gegna almenningsbókasöfn einnig lykilhlutverki með því að tryggja aðgang að áreiðanlegum upplýsingum, fríu interneti og stafrænum innviðum. Stafræn einangrun er raunverulegt vandamál og fyrir mörg er bókasafnið lykillinn að því að nýta rafræna þjónustu, halda tengslum við samfélagið og taka virkan þátt í samtímanum. Með námskeiðum í stafræni hæfni, fræðslu um heilsueflingu og stuðningi við ævilanga menntun vinna bókasöfn markvisst að því að draga úr félagslegri útilokun. Almenningsbókasöfn eru lausnin, ekki munaður í góðæri heldur grunninnviðir samfélags sem vill standa vörð um velferð, þátttöku og mannlega reisn. Ef stjórnvöld og sveitarfélög taka lýðheilsu og samfélagslega samheldni alvarlega þurfa þau að líta á bókasöfn sem virka samstarfsaðila í baráttunni gegn einmanaleika, en ekki útgjaldalið sem sífellt má skera niður þegar þrengir að. Höfundur er deildarstjóri á Borgarbókasafni Reykjavíkur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bókasöfn Mest lesið Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar