„Hellings tækifæri fyrir unga menn úti á landi“ Sindri Sverrisson skrifar 21. mars 2026 23:02 Höttur leikur í efstu deild á næstu leiktíð. Hér er hópurinn sem vann 1. deildina, eftir sigurinn gegn Sindra á Hornafirði í gærkvöld. KKÍ Sérfræðingarnir í Körfuboltakvöldi fögnuðu því að fá aftur Hattarmenn frá Egilsstöðum upp í Bónus-deildina, með sigri liðsins gegn Sindra í gærkvöld. Þeir hvöttu unga, íslenska leikmenn til að nýta tækifærið sem nú kemur til með að bjóðast fyrir austan.
Stefán Árni Pálsson benti í þessu sambandi á Adam Eið Ásgeirsson sem fór frá Njarðvík til Hattar á sínum tíma og hefur sprungið þar út. „Það eru hellings tækifæri fyrir unga menn að fara í lið úti á landi, fá að spila og þróast,“ sagði Jón Halldór Eðvaldsson og Sævar Sævarsson tók undir það: „Ég hafði tækifæri á þessu þegar ég var svona 21-22 ára en maður vildi frekar halda sig á „hótel mömmu“ og í kringum félagana. En þetta er svo ótrúlega þroskandi. Að búa sjálfur, vera einhvers staðar að vinna og kynnast nýju fólki og samfélagi,“ sagði Sævar og Jonni var sammála: „Ég fór 17 ára til að spila fótbolta með Þrótti Neskaupstað og ég bý enn að þeirri reynslu.“ Klippa: Körfuboltakvöld - Höttur upp í efstu deild Talið barst einnig að erlendum leikmönnum Hattar sem í raun eru orðnir að heimamönnum í dag, eins og hinn 38 ára gamli Nemanja Knezevic sem spilað hefur á Íslandi síðan árið 2017. „Þetta er mikið meira en leikmaður á körfuboltavelli. Þetta eru menn sem eru svo mikilvægir í samfélaginu. Þeir eru ekki að koma sem einhverjir málaliðar, ná sér í einhverja tölfræði og fara svo. Þeir búa þarna, vinna þarna og eru bara Egilsstaðabúar út í gegn. Maður sér líka hvað þetta skiptir þá miklu máli,“ sagði Sævar en umræðuna má sjá hér að ofan.
Bónus-deild karla Körfuboltakvöld Höttur Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Thelma Karen fer ekki á EM Fótbolti Fleiri fréttir Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Sjá meira