Ólíklegt að eignir dugi fyrir launakröfum Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 21. mars 2026 23:55 Forsvarsmenn Play lýstu yfir gjaldþroti félagsins í lok september í fyrra. Vísir/Egill Skiptastjóri þrotabús Play segir ólíklegt að eignir þrotabúsins dugi til að mæta öllum forgangskröfum á hendur því. Þá er ágreiningur milli starfsfólks og þrotabúsins um hvort starfsfólk eigi rétt á uppsagnarfresti upp á þrjá eða fjóra mánuði.
Þetta kemur fram í nýjasta þætti Flugvarpsins, en þar ræddi Jóhannes Bjarni Guðmundsson við Arnar Þór Stefánsson skiptastjóra þrotabúsins. Ágreiningur um uppsagnarfrest Arnar Þór segir að undanfarnir mánuðir hafi farið í að safna saman eignum upp í kröfurnar, meðal annars hafi félagið afturkallað tryggingar, til að mynda á flugvöllum erlendis, og vexti af þeim og innbú félagsins verið selt. „Þetta er alveg eitthvað en nær, eins og staðan er núna, ekki til að greiða forgangskröfur,“ segir Arnar Þór. Til forgangskrafna teljast launakröfur og launatengdar kröfur starfsmanna. Af 21 milljarðs króna kröfum í þrotabúið nema forgangskröfur 1,1 milljarði. Frá því munu dragast laun sem starfsfólk hefur fengið vegna annarra starfa á uppsagnarfresti. Arnar Þór Stefánsson er skiptastjóri þrotabús Play.Vísir/Vilhelm „Síðan er ágreiningur um uppsagnarfrest. Hvort hann teljist þrír eða fjórir mánuðir. Það þarf að koma í ljós hvernig fer með þann ágreining,“ segir Arnar Þór. Þrotabúið vilji meina að uppsagnarfresturinn hafi varað út desember en launafólk telji hann vara út janúar. Ábyrgðarsjóður launa, stjórnvald sem starfar samkvæmt lögum, greiðir starfsfólki hluta launanna og gerir síðan sjálfur kröfu í þrotabúið. Þannig verður sjóðurinn aðalkröfuhafinn þegar upp er staðið. Fram hefur komið að ólíklegt þyki að nokkuð muni fást upp í almennar kröfur á hendur þrotabúinu, en til þeirra teljast meðal annars kröfur skuldabréfaeigenda og kröfur flugfarþega vegna ferða sem ekki voru farnar. Arnar Þór segir langflestar slíkar kröfur koma frá erlendum farþegum, þar sem Íslendingar hafi flestir fengið fargjöldin sín endurgreidd í gegnum kortafyrirtækin. Þetta eru yfir tuttugu milljarðar, fæst upp í forgangskröfur? „Það mun fást upp í forgangskröfur.“ En ekki að öllu leyti? „Nei, en það er ekkert útilokað. Eins og ég nefndi í byrjun erum við að reyna að ná utan um eignir. Það sem er þá fram undan og getur skapað búinu fé er að rýna í ráðstafanir í aðdraganda þrots. Ef það eru einhverjir kröfuhafar sem hafa fengið greitt umfram aðra bersýnilega, kann að vera hægt að rifta viðkomandi kröfuhafa þeim greiðslum sem voru greiddar þá umfram aðra kröfuhafa,“ segir Arnar Þór og bendir á að í slíkri riftun felist endurheimt á fjármunum. Hér er aðeins stiklað á stóru en hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni hér að neðan.
Gjaldþrot Play Play Fréttir af flugi Mest lesið Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Sjá meira