Hlaðborð gæluverkefna Helgi Áss Grétarsson skrifar 20. mars 2026 15:32 Gæluverkefnin í rekstri Reykjavíkurborgar minna á hlaðborð sem svignar undan kræsingum. Hvaða rétti af hlaðborðinu á að bera fram í dag? Rýnum í fáeina rétti þar sem sérfræðingar borgarinnar í jafnréttismálum hafa fengið frjálsar hendur við eldamennskuna. Gátlistar fyrir starfsfólk leikskóla Í lok október 2023 fengu stjórnendur leikskóla borgarinnar erindi frá Jafnréttisskóla Reykjavíkurborgar þar sem vísað var m.a. til meints bakslags í jafnréttismálum og að starfsmenn leikskóla ættu að æfa sig á efni gátlista frá Jafnréttisskólanum og svara spurningum á borð við: „Eru púsluspil leikskólans laus við staðalmyndir?“ „Er starfsfólk meðvitað um að brjóta staðalmyndir af og til í samræðum við börnin t.d. spyrja hvort afi hafi prjónað nýju peysuna eða segjast ætla að hringja í smíðakonuna og biðja hana að koma og laga hurðina?“ Þegar þessi tiltekni gátlisti er lesinn, er rökrétt að spyrja, af hverju er verið að eyða tíma og fjármunum í að semja svona efni þegar ekki einu sinni er hægt að fullmanna leikskóla borgarinnar? Byggingaráform jafnréttismetin sem og starfsemi Kynjuð starfs- og fjárhagsáætlunargerð hefur teygt anga sína víða um kerfi borgarinnar. Meira að segjaBílastæðasjóðurhefur farið í gegnum slíka greiningu (október 2022) þar sem ekki færri ensjö starfsmennkomu að samningu slíks „tímamótaskjals“. Um nokkurt skeið hefur staðið til að byggja samrekna leik- og grunnskólabyggingu í nýja Vogahverfinu, Fleyvang. Í því skyni að undirbúa framkvæmdina hefur verið samið við utanaðkomandi ráðgjafa til að jafnréttismeta fyrirhugaða byggingu. Hvað skyldi það nú kosta? Það er orðin víðtekin venja hjá borginni að láta útbúa jafnréttismat áður en minnstu breytingar eru gerðar á starfseminni. Nýjasta dæmið um ítarlegt jafnréttismat er skýrsla sem fylgdi tillögum um svokallaða Reykjavíkurleið í leikskólamálum. Þótt slík greining geti átt rétt á sér í undantekningartilvikum, hlýtur það að teljast skynsamlegra að nýta fjármuni skattgreiðenda í raunverulega þjónustu fremur en í stöðuga skýrslugerð. Grunnþjónustu fyrst, svo allt hitt! Rekstur Reykjavíkurborgar einkennist of víða af lausatökum og pólitískum gæluverkefnum. Þótt jafnréttiskerfið kosti sitt, þá blikna þær upphæðir í samanburði við þá fjármuni sem glatast í vanhugsuðum stórframkvæmdum á vegum borgarinnar. Snúum af þessari braut, hættum að fjármagna gæluverkefni og setjum grunnþjónustu við fólk og fyrirtæki í forgang. Höfundur er varaborgarfulltrúi og frambjóðandi á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helgi Áss Grétarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar