Leitaði í uppskriftabók mömmu fyrir Masters Sindri Sverrisson skrifar 19. mars 2026 09:30 Rory McIlroy er búinn að setja saman girnilegan matseðil fyrir Masters en þar standa ostafylltu beikondöðlurnar frá mömmu hans upp úr. Samsett/Getty Eitt af því sem Rory McIlroy græðir á því að hafa unnið Masters-mótið virta í golfi í fyrra er það að hann fær að ráða matseðlinum í sérstökum hátíðarkvöldverði í aðdraganda mótsins.
Norður-írski kylfingurinn er núna búinn að ákveða hvaða mat verður boðið upp á í næsta mánuði en Masters fer fram 9.-12. apríl, á Augusta-vellinum að vanda. Í hátíðarkvöldverðinn, sem er á þriðjudagskvöldinu fyrir mótið, mæta aðrir fyrri sigurvegarar mótsins og fá að gæða sér á því sem McIlroy valdi. Í þeim hópi eru menn á borð við Tiger Woods, Phil Mickelson og Scottie Scheffler. McIlroy ákvað að sjálfsögðu að leita í uppskriftabók móður sinnar og valdi einn af hennar bestu réttum sem einn af fjórum forréttum. Skógarhjartarborgarar í boði „Mamma gerir svo rosalega góðan rétt þar sem döðlur eru fylltar með geitaosti og þær svo vafðar inn í beikon, svo ég setti þann rétt á forréttalistann. Þökkum Rosie fyrir þennan,“ sagði McIlroy samkvæmt BBC. Hann borðaði mikið af skógarhjartarkjöti fyrir Masters í fyrra og ákvað að hann vildi hafa þannig kjöt á matseðlinum en þó ekki sem aðalrétt. Það verða því litlir skógarhjartarhamborgarar á meðal forréttanna, sem og djúpsteiktar rækjur og flatbrauð með ferskjum og ricotta-osti. McIlroy fannst mikilvægt að bjóða upp á írska kartöflumús með aðalréttinum, svokallað Irish Champ.Getty/Krissy Krummenacker McIlroy býður svo upp á írskan kartöflumúsarrétt með aðalrétti kvöldsins sem er annars nokkuð hefðbundinn, þar sem valið stendur á milli wagyu-nautalundar og pönnusteikts lax. Í eftirrétt er svo blaut svampkaka með heitri karamellusósu sem McIlroy segir að muni slá í gegn. Hvítvínið sem hann valdi er Domaine Leflaive Batard Montrachet frá árinu 2022 og rauðvínið er frá Bordeaux og heitir Chateau Lafite Rothschild frá árinu 1990.
Golf Masters-mótið Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira