„Enginn tími til að vorkenna sjálfum okkur“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. mars 2026 21:05 Malick Thiaw, Dan Burn, Aaron Ramsdale, Sandro Tonali og Joelinton eru vonbrigðin uppmáluð eftir að hafa fengið á sig enn eitt markið á móti Barcelona í kvöld. Getty/Mike Egerton Newcastle fékk hræðilega útreið á móti Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld og er því úr leik í keppninni. Barcelona vann 7-2 og þar með 8-3 samanlagt.
Eftir að hafa jafnað metin tvisvar á fyrsta hálftímanum fékk Newcastle-liðið á sig þrjú mörk á tíu mínútna martraðarkafla í seinni hálfleik. Eftir það var einvígið búið. „Það er erfitt að detta svona út og mjög skrítið að draga þetta saman. Við vorum frábærir í fyrri hálfleik, þótt við höfum ekki varið lykilsvæði rétt í hvorugum hálfleiknum. Í seinni hálfleik vorum við ekki eins góðir,“ sagði Eddie Howe, knattspyrnustjóri Newcastle. „Sálfræðilega var þetta erfitt fyrir strákana. Þeir [Barcelona] fengu vítaspyrnuna rétt fyrir hálfleik og skoruðu svo fljótlega eftir hálfleik og sálfræðilega náðum við okkur ekki á strik eftir það,“ sagði Howe. En hvað fannst honum um vítaspyrnuna? „Ég þyrfti að sjá þetta aftur þegar ég er í yfirvegaðra ástandi áður en ég gef álit á því,“ sagði Howe. „Það er erfitt að spila á móti þeim en í fyrri hálfleik stjórnuðum við leiknum nokkuð vel. Við fengum mörg tækifæri til skyndisókna og við höfðum frábæra framsetningu á því hvernig við spiluðum. Fyrra markið var vegna staðsetningar leikmanna og seinna kom eftir fast leikatriði. Þrátt fyrir þennan góða fyrri hálfleik gáfum við þeim tvö mörk,“ sagði Howe. „Við eigum risastóran leik á sunnudaginn [heima gegn Sunderland] svo það er enginn tími til að dvelja við þetta eða vorkenna sjálfum okkur. Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur fyrir borgina okkar og félagið og við verðum að einbeita okkur að því,“ sagði Howe.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Newcastle United Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Fleiri fréttir Mexíkó – Suður-Afríka | HM fer af stað í Mexíkóborg Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjá meira