Þegar lögbundin þjónusta bíður en milljarðar fara í „chillout“ Björg Maggý Pétursdóttir skrifar 18. mars 2026 16:32 Sem íbúi og starfsmaður í Kópavogi er ég hugsi yfir forgangsröðun fjármuna pólitíkunnar í Kópavogi. Nú hefur verið í umræðunni menningarmiðstöð sem á að rísa í Smáralind. Ekki misskilja mig en ég tel að menning og bókasöfn séu mikilvægur þáttur í okkar samfélagi. Meðal annars eigum við þetta dásamlega bókasafn í Hamraborg sem er eitt það flottasta á landinu. Það bókasafn bíður upp á fjölbreytta afþreyingu sem hentar flestum íbúum. En þegar við heyrum reglulega í umræðunni að sveitarfélagið standi frammi fyrir takmörkuðum fjármunum þá verður forgangsröðunin að vera skýr: fyrst lögbundin þjónusta, síðan gæluverkefnin. Bæjarstjórn hefur samþykkt að veita heimild til undirritunar leigusamnings við eigendur Smáralindar um um 900 fermetra rými til tíu ára. Samkvæmt þeim upplýsingum sem fram hafa komið bæði í fjölmiðlum sem og í fundargerð bæjarstjórnar nemur kostnaður bæjarins á samningstímanum yfir einum milljarði króna. Um er að ræða langvarandi fjárskuldbindingu sem bindur hendur bæjarins langt fram yfir núverandi kjörtímabil. Á sama tíma hefur lengi verið talað um að byggja upp menningarkjarna í efri byggðum Kópavogs. Það hefur verið sameiginlegt markmið og hluti af stefnumótun bæjarins. Nú virðist hins vegar vera horfið frá þeirri forgangsröðun. Framkvæmdum í efri byggðum er frestað til ársins 2029, á meðan menningaraðstaða í Smáralind á að opna fyrr. Í stað raunverulegs menningarkjarna fyrir íbúa efri byggða er gert ráð fyrir um 175 fermetra bókasafni í Kórnum á meðan um 900 fermetrar eru leigðir í verslunarmiðstöð. Það vekur eðlilega spurningar um hvort þetta sé í raun sú þjónusta sem íbúar hafa beðið eftir og hvaða áhrif hefur þessi skuldbinding á fjárhag bæjarins næstu tíu árin? Þessar spurningar skipta máli – ekki síst vegna þess að sveitarfélög bera lögbundnar skyldur gagnvart íbúum sínum. Þau bera ábyrgð á skólum, velferðarþjónustu þar með talið stuðningi við fólk sem þarf á þjónustu að halda út frá lögum um málefni fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir og lögum um félagsþjónustu. Fjölskyldur bíða eftir stuðningi svo mánuðum og árum skiptir. Börn með fjölþættan vanda þurfa úrræði. Fatlað fólk á rétt á þjónustu sem er ekki valkvæð heldur lögbundin. Þegar slíkar þarfir eru fyrir hendi er eðlilegt að spyrja hvort rétt sé að skuldbinda bæinn til milljarðakostnaðar í nýtt rými í verslunarmiðstöð. Umræðan snýst ekki um að vera með eða á móti menningu. Hún snýst um ábyrgð. Hún snýst um forgangsröðun. Hún snýst um það að sveitarfélag setji fyrst fjármuni í þá þjónustu sem lög kveða á um og íbúar treysta á. Íbúar Kópavogs eiga skilið að slíkum spurningum sé svarað áður en milljarðaskuldbindingar eru samþykktar. Því að þegar allt kemur til alls snýst þetta ekki um „pop-up“, „open mic“ eða „chillout“. Þetta snýst um það hvort við setjum grunnþjónustu samfélagsins í fyrsta sæti – eða hvort hún bíður á meðan milljarðar fara í gæluverkefni. Höfundur er er þroskaþjálfi og ráðgjafi í málefnum fatlaðra barna og fjölskyldna þeirra hjá Velferðarsviði Kópavogsbæjar, er uppalin í Kópavogi og búsett þar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kópavogur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Skoðun Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar