Frístundastyrkur fyrir 67 ára og eldri! Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar 17. mars 2026 06:30 Nóbelsverðlaunahafinn George Bernard Shaw sagði eitt sinn: „Við hættum ekki að leika okkur vegna þess að við eldumst; við eldumst vegna þess að við hættum að leika okkur.“ Í þessari setningu felst ákveðin viska. Þegar við prófum nýja hluti, hreyfum okkur og förum út fyrir þægindarammann höldum við bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Það gildir ekki síður á efri árum en þeim yngri. Ef Reykjavík á að vera góður staður til að eldast á þarf borgin að skapa raunveruleg tækifæri fyrir eldri fólk til að vera virkir þátttakendur í samfélaginu. Þess vegna leggur Framsókn fram tillögu um frístundastyrk fyrir íbúa sem eru 67 ára og eldri í borgarstjórn í dag. Hvatning til virkrar þátttöku Tillagan er einföld. Hún felst í því að Reykjavíkurborg styrki þátttöku eldri borgara í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi sem stuðlar að heilsu og hreysti. Styrkurinn yrði 4.000 krónur á mánuði, eða allt að 48.000 krónur á ári, og gæti nýst hjá félögum og viðurkenndum aðilum sem bjóða upp á þjálfun eða kennslu. Sund, dans, líkamsrækt, gönguhópar eða jóga. Allt það sem fær fólk til að hreyfa sig og hitta aðra. Jöfnum leikinn Styrkurinn yrði tekjutengdur og miða tekjurnar við tekjumörk þeirra sem fá 50% afslátt á fasteignagjöldum (A50). Þannig myndi styrkurinn fyrst og fremst nýtast þeim sem hafa minnst á milli handanna og er styrknum ætlað að jafna tækifæri til þátttöku í heilsueflandi starfi. Lýðheilsa og lífsgæði Ávinningurinn er þó ekki aðeins fyrir einstaklinginn heldur samfélagið allt. Þegar fólk heldur áfram að vera virkt og hreyfa sig eykur það lífsgæði sín og heilsu. Slík virkni getur dregið úr álagi á heilbrigðiskerfið og heimaþjónustu, því fólk viðheldur sjálfstæði sínu og hreysti lengur. Frístundastyrkur fyrir eldri borgara er því ekki aðeins stuðningur við einstaklinga, hann er líka skynsamleg fjárfesting í lýðheilsu. Nokkur sveitarfélög hafa þegar tekið upp sambærilega hvata til að efla þátttöku eldri íbúa í heilsueflandi starfi með góðum árangri. Reykjavíkurborg á ekki að vera eftirbátur annarra sveitarfélaga í þessu mikilvæga máli. Besti staðurinn til að eldast Framsókn vill að Reykjavík verði besti staðurinn til að eldast á. Það gerist ekki aðeins með góðri þjónustu heldur einnig með því að skapa tækifæri til virkrar þátttöku, hreyfingar og félagslegra tengsla. Gerum Reykjavík að besta staðnum til að eldast á og leikum okkur til æviloka! Höfundur er borgarfulltrúi Framsóknar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Framsóknarflokkurinn Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar