Loksins fá sjónarmið Afstöðu hljómgrunn Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar 16. mars 2026 12:03 Þar sem ég sat á landssamráðsfundi um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess á Hilton Reykjavík Nordica fyrr í mánuðinum læddist að mér grunur sem ég átti eiginlega erfitt með að trúa og reglulega leit ég í kringum mig til að fullvissa mig um að þetta væri ekki ímyndun. Hver á fætur öðrum stigu fram sérfræðingar, fulltrúar stofnana og samtaka og héldu ótrúlega kunnuglegar ræður. Orðræðan var ekki bara svipuð heldur voru ræðurnar nánast orðréttar þeim sem við hjá Afstöðu – réttindafélagi höfum flutt undanfarna áratugi. Þetta var svolítið eins og einhver væri að lesa upp úr gömlum greinum sem við höfum birt, til dæmis hugmyndir um að rjúfa vítahring ofbeldis, tala um ábyrgð án þess að loka á samtal, byggja upp traust og skapa raunveruleg úrræði til breytinga. Þetta eru sjónarmið sem hafa lengi verið til staðar en hafa orðið undir í umræðunni þar sem refsivendinum einum hefur verið haldið hátt á lofti. Þess vegna var þessi dagur á margan hátt sérstakur. Fyrir það fyrsta þá er einnig nokkuð merkilegt að fundur sem þessi hafi yfirleitt verið haldinn. Fyrir nokkrum árum hefði það líklega þótt óhugsandi að safna á sama stað fulltrúum stofnana, félagasamtaka, sérfræðingum, fólki með reynslu af refsivörslukerfinu og jafnvel fólki sem hefur sjálft beitt ofbeldi til að ræða þetta eina mál, þ.e. ofbeldi og hvernig við getum dregið úr því. Sú staðreynd ein og sér bendir til þess að eitthvað sé að breytast í íslensku samfélagi. Við erum loksins farin að ræða ofbeldi sem samfélagslegt vandamál sem þarf að takast á við með fleiri úrræðum en refsingu. Það sem mér fannst þó mikilvægast er sú aukna áhersla sem lögð var á traust og raunveruleg úrræði. Mörg sem beita ofbeldi bera með sér eigin áföll og brostið traust gagnvart hinum ýmsu kerfum. Sú staðreynd réttlætir að sjálfsögðu aldrei ofbeldi en skiptir máli ef markmiðið er að breyta hegðun til hins betra. Ef fólk upplifir að kerfið sé eingöngu til að dæma það en ekki hjálpa því þá lokast samtalið sjálfkrafa. Þarna kemur jafningjastuðningur að góðum notum. Þegar einstaklingur hittir annan sem hefur sjálfur gengið í gegnum sambærilega reynslu og hefur jákvæða sögu að segja skapast traust. Samtalið verður heiðarlegra og ábyrgðin raunveruleg. Við hjá Afstöðu – réttindafélagi höfum lengi boðað þá staðreynd að breytingar gerast ekki með refsingu einni saman heldur þurfa að koma til ábyrgð, stuðningur og raunveruleg tækifæri til að breyta lífi fólks. Þess vegna höfum við lagt mikla áherslu á jafningjastarf, fræðslu og ráðgjöf. Ég vil þakka skipuleggjendum fundarins sérstaklega fyrir að skapa þennan góða vettvang. Slík samtöl eru ekki aðeins mikilvæg heldur nauðsynleg ef við ætlum í alvöru að draga úr ofbeldi og rjúfa vítahring ítrekaðra brota. Stundum tekur langan tíma fyrir hugmyndir að ná fótfestu. En stundum finnur maður líka að eitthvað er að breytast. Þessi dagur var einmitt þannig dagur. Höfundur er formaður Afstöðu – réttindafélags. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Ingi Þóroddsson Fangelsismál Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar