„Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Lovísa Arnardóttir skrifar 13. mars 2026 08:03 Helgi segir álagningu skipta jafn miklu máli og heimsmarkaðsverð þegar verðlagning á súkkulaði er ákveðin. Aðsend Helgi Vilhjálmsson, forstjóri Góu, segir að þegar horft sé til verðs í verslunum megi sjá að fleiri þættir ráði verðlagningu en aðeins heimsmarkaðsverð á kakói verði á súkkulaði. Heimsmarkaðsverð á kakói hrundi í síðasta mánuði og Helgi segir fyrirtækið tilbúið að taka hluta af sveiflum á sig.
Framkvæmdastjórar Nóa Síríus og Freyju sögðust í viðtali við Vísi fyrr í mánuðinum ekki eiga von á því að súkkulaðið þeirra myndi lækka í verði fyrr en í sumar eða um jólin þó svo að heimsmarkaðsverð hafi hrunið. Helgi segir heimsmarkaðsverðið ekki það eina sem stýrir verðlagi á súkkulaðivörum á Íslandi. „Ef við skoðum eggin í Bónus kemur í ljós að páskaegg frá Góu eru um 25 til 30 prósent ódýrari en sambærileg egg frá Nóa. Þeir eru ekki með eitthvað allt annað heimsmarkaðsverð á kakói en við,” segir Helgi. Hann bendir á að allir íslenskir framleiðendur starfi að stórum hluta við sömu aðstæður hvað hráefni varðar. „Framleiðendur á Íslandi eru almennt búnir að tryggja sér verð á kakói og súkkulaðimassa fram í tímann. Það þýðir að við erum allir í raun á sama báti þegar kemur að hráefnisverði,“ segir Helgi og að álagning framleiðenda hafi einnig mikil áhrif á endanlegt verð, á til dæmis páskaeggjum. Taka hluta kostnaðarhækkana á sig Hann segir Góu reyna að halda verði á sínum súkkulaðivörum, öðrum en páskaeggjum, eins hóflegu og mögulegt er. „Svo allir hafi efni á að leyfa sér smá súkkulaði.” Hann segir fyrirtækið tilbúið að taka hluta af sveiflunum á sig „Þó að við séum föst með verð á hráefni sem samið var um þegar heimsmarkaðsverð var mjög hátt höfum við lagt áherslu á að halda verði niðri eins og hægt er, jafnvel þótt það þýði að við tökum á okkur hluta af kostnaðarhækkunum.”
Páskar Verðlag Matvælaframleiðsla Sælgæti Neytendur Mest lesið Úr Símanum í rörin Viðskipti innlent Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Viðskipti innlent Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Icelandair grunar flugmenn um græsku Viðskipti innlent Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Atvinnulíf Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Viðskipti innlent Gengi Alvotech tekur kipp Viðskipti innlent Fleiri fréttir Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira