Uppgjörið:Njarðvík - Valur 110-78| Njarð­víkingar að kveikja á sér á hár­réttum tíma

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Veigar Páll Alexandersson var öflugur í liði Njarðvíkur í kvöld.
Veigar Páll Alexandersson var öflugur í liði Njarðvíkur í kvöld.

Njarðvík tók á móti Val í kvöld þegar 20. umferð Bónus deild karla hóf göngu sína í kvöld. Njarðvíkingar vonast til þess að halda hurðinni fyrir úrslitakeppni opinni á meðan Valsmenn gátu með sigri tryggt sér heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Eftir heldur jafna byrjun á leiknum voru það Njarðvíkingar sem sigldu fljótt fram úr og höfðu að lokum sannfærandi og öruggan sigur 110-78.

Leikurinn fór þokkalega af stað og setti Valur fyrsta stig leiksins af vítalínunni til að opna leikinn. Njarðvíkingar með frábæran stuðning úr stúkunni sýndu frábæra takta oft á tíðum.

Mikil jafnræði voru með liðunum framan af leikhluta en tvær þriggja stiga körfur í röð frá Veigari Pál Alexandersyni kom Njarðvíkingum skör framar og leiddu þeir að loknum fyrsta leikhluta með sex stigum 25-19.

Njarðvíkingar héldu áfram uppteknum hætti í öðrum leikhluta og skutu Valsmenn í kaf með hverjum þristinum á fætur öðrum.

Heimamenn voru 11/17 (64%) fyrir aftan þriggja stiga línuna í fyrri hálfleiknum og refsuðu Valsmönnum grimmilega í hvert sinn sem tækifæri gafst. Njarðvík fór með örugga og sannfærandi forystu inn í hálfleikinn 60-34.

Njarðvíkingar mættu ekki út í seinni hálfleikinn til þess að slaka á heldur héldu þeir áfram að hamra járnið meðan það var heitt og völtuðu bara yfir Valsmenn.

Eftir þriðja leikhluta var munurinn orðin 37 stig, 89-52 og löngu orðið ljóst í hvað stefndi og hvert þessi tvö stig myndu millifærast.

Bæði lið vissu í hvað stefndi og fóru að rúlla bekkjunum sínum að gefa minni spámönnum tækifæri undir lokin. Leikhlutinn einkenndist svolítið af því að bæði lið voru að bíða eftir að leikurinn kláraðist.

Það fór svo að Njarðvíkingar fóru með stórsigur 110-78. Sigur sem gefur þeim mikið sjálfstraust fyrir komandi verkefni að reyna tryggja sig inn í úrslitakeppnina á meðan Valur náði ekki að tryggja sér heimavallarrétt.

Atvik leiksins

 Veigar Páll kveikir í húsinu snemma leiks með tveim þristum í röð og eftir það var ekki aftur snúið. Njarðvíkingar gengu á lagið og völtuðu yfir Valsmenn.

Stjörnur og skúrkar

Veigar Páll Alexandersson, Sven Smajlagic, Dwayne Lautier-Ogunleye og Dominykas Milka voru allir við tuttugu stigin og ótrúlega öflugir í liði Njarðvíkur í kvöld. Frábær liðs frammistaða.

Keyshawn Woods var stigahæstur hjá Val með 24 stig en hann villaði sig líka úr leik. Margir í liði Vals sem voru ekki að hitta á sinn dag í kvöld.

Dómararnir

Jóhannes Páll, Davíð Kristján og Guðmundur Ragnar sáu um flautuna hér í kvöld. Fannst þeir komast bara vel frá sínu í kvöld og yfir afskaplega litlu að kvarta með þeirra frammistöðu.

Stemingin og umgjörð

Ég vill bara hrósa Njarðvíkingum fyrir frábæra stemningu alveg frá uppkasti í þessum leik. Það skiptir liðin svo ótrúlega miklu máli að fá þennan stuðning og þessi orka frá þeim skilar sér inn á völlinn. Fullt hrós á þá Valsmenn sem létu sjá sig í kvöld líka en það var erfitt að eiga við syngjandi Njarðvíkinga í kvöld.

Viðtöl

Rúnar Ingi Erlingsson þjálfari Njarðvíkinga.Vísir/Hulda Margrét

„Framkvæmdu þetta hrikalega vel inni á vellinum“

„Gríðarlega vel framkvæmdur leikur hjá mínum drengjum“ sagði Rúnar Ingi Erlingsson þjálfari Njarðvíkur eftir sigurinn í kvöld.

„Þeir fóru bara eftir planinu sem við erum búnir að vera vinna í núna í tæpa viku. Við vissum hvað við ætluðum að gera í þessum leik og þeir bara framkvæmdu þetta hrikalega vel inni á vellinum“

„Auðvitað hittum við mjög vel í fyrri hálfleik em það er kannski líka þegar við erum að spila svona saman sem lið, við erum 2-0 í hraðaupphlaupum og við erum tilbúnir að gefa á mann í troðslu og þú sérð gleðina og samheldni að þá getum við verið mjög góðir“

Njarðvíkingar voru að skjóta vel fyrir aftan þriggja stiga línuna og voru með gott forskot inn í hálfleik. Rúnar var ánægður að sjá sitt lið halda haus í seinni hálfleik og slaka ekkert á.

„Það var mjög mikilvægt og bara áskorun á okkur. Við höfum alveg komið okkur í góðar stöður áður á tímabilinu og ég huga að Grindavíkurleikurinn mun ekkert hverfa mér úr minni hérna á næstunni. Þá vorum við búnir að vinna leikinn held ég tvisvar eða þrisvar með fimmtán stiga forystu þegar það eru tvær mínútur eftir“

„Hvort við hefðum verið upp 25 í hálfleik þá gefur það okkur ekkert ef við ætlum að leggja árar í bát og ekki spila af sömu orku og hreyfa boltann jafn vel sóknarlega“

„Mér fannst koma 2-3 sóknir í byrjun þriðja sem voru ekki nægilega góðar en svo tengdu menn aftur og kláruðu þetta bara með sóma“ sagði Rúnar Ingi Erlingsson.

Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals.Vísir/Pawel Cieslikiewicz

„Vanvirðing á allt í kringum okkur“

„Njarðvíkingar vissulega skutu vel en frammistaðan okkar í dag var ekki til þess fallinn að geta unnið körfuboltaleik á móti neinu liði í neinni deild í neinum flokki á Íslandi“ sagði Finnir Freyr Stefánsson ómyrkur í máli eftir tapið í kvöld.

„Þetta var arfarslök frammistaða frá A-Ö og það er bara alfarið mér að kenna“

Finnur Freyr var ósáttur með margt í sínu liði kvöld.

„Ég held við höfum ekki nægilega langan tíma til þess að taka viðtal um það. Ég var ósáttur við margt og ég undirbjó liðið ekki nógu vel og ákefðin var ekki nógu gott og krafturinn ekki nógu góður, einbeitingin ekki góð og þá er bara svona endalaust af hlutum sem við gerðum hrikalega illa og hleyptum þeim strax á bragðið og þeir skutu mjög vel“

Valur mætir Keflavík í næstu umferð og vonast Finnur til þess að hans lið svari fyrir sig í þeim leik.

„Ég held að þeir þurfi bara að svara fyrir sig á gólfinu strákarnir og við bara sem lið. Þetta er búið að vera of margir svona leikir hjá okkur í vetur og þetta er svona vanvirðing á allt í kringum okkur og maður skammast sín bara“ sagði Finnur Freyr Stefánsson.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira