„Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Árni Sæberg skrifar 12. mars 2026 12:05 Margrét Gísladóttir er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði. Landsréttur vísaði máli Danóls ehf. gegn ríkinu vegna tollflokkunar pitsaosts frá héraðsdómi í gær, á þeim grundvelli að dómur hefði þegar fallið um sama sakarefni. „Niðurstaða Landsréttar er í raun enn ein staðfestingin á því að ostur er og verður ostur,“ segir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði.“
Landsréttur kvað upp dóm í málinu í gær en Vísir fjallaði um aðalmeðferð málsins um miðjan febrúar. Fyrir Landsrétti fór Danól fram á að álit um tollflokkun pitsaosts með íblandaðri jurtaolíu yrði ógilt en í gagnsök krafðist ríkið þess að málinu yrði vísað frá dómi á grundvelli svokallaðrar res judicata reglu, það er að segja að þegar hefði verið leyst úr úrlausnarefni málsins fyrir dómstólum. Árið 2022 sýknaði Landsréttur ríkið af öllum kröfum um að felldur yrði úr gildi úrskurður tollgæslustjóra um tollflokkun ostsins. Ekkert sem réttlætt gæti nýja úrlausn Í dómi Landsréttar var rakið að fyrir lægi niðurstaða íslenskra dómstóla sem lyti að tollflokkun þeirrar vöru sem um ræddi í málinu. Taldi Landsréttur að það eitt að í málinu reyndi á aðra stjórnvaldsákvörðun en leyst hefði verið úr í fyrra máli aðila gæti ekki leitt til þess að Danól bæri réttur til að fá leyst úr efnisþætti ógildingarkröfu sinnar. Að öðru leyti teldist ekkert fram komið sem réttlætt gæti að Danól leitaði að nýju dómsúrlausnar um að hið bindandi álit Skattsins væri rangt að efni til. Af því leiddi að ekki kæmu heldur til skoðunar málsástæður um málsmeðferð Skattsins við veitingu hins bindandi álits, enda fæli álitið ekki annað í sér en tilvísun til þess fordæmis sem skapaði hin bindandi neikvæðu áhrif. Hvað varðaði vanhæfi tollgæslustjóra vegna tölvupóstsamskipta við hagsmunaaðila kvað Landsréttur til þess að líta að í hinu fyrra dómsmáli hefði Danól byggt á nátengdum málsástæðum um brot á réttmætisreglu og þrýsting hagsmunaaðila. Hefði þeim málsástæðum verið hafnað með framangreindum dómi Landsréttar og þær ekki taldar gefa tilefni til endurupptöku í úrskurði Endurupptökudóms. Þá væri til þess að líta að jafnvel þótt lagt yrði til grundvallar að dómstólum bæri að taka afstöðu til téðs tölvupósts nú væri rétt að staðfesta niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um það efni en vísa málinu frá við svo búið. Enn ein staðfestingin „Niðurstaða Landsréttar er í raun enn ein staðfestingin á því að ostur er og verður ostur, þrátt fyrir að út í hann sé bætt jurtaflögum, og skal tollflokkast sem slíkur. Ég fagna því að enn á ný skuli íslenskir dómstólar staðfesta að ostur er ostur. Tollvernd er önnur tveggja stoða stuðningskerfis íslensks landbúnaðar og breytingar þar á geta haft miklar afleiðingar fyrir greinina, hvort sem litið er til samkeppnishæfni eða rekstrarákvarðana. Hér er um að ræða mál sem búið er að taka fyrir á öllum dómstigum, og nú oftar en einu sinni, þar sem niðurstaðan er ávallt sú sama. Tollflokkunin er í samræmi við íslensk tollalög og hún stendur,“ er haft eftir Margréti Gísladóttur, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði í fréttatilkynningu samtakanna um niðurstöðu málsins. Þar segir að upphaf málsins megi rekja allt til febrúar 2020 en þá hafi tollstjóri gefið út bindandi álit um tollflokkun vöru sem beri heitið Festino IQF Mozzarella Pizza Mix, sem sé rifinn ostur blandaður við jurtaolíu auk sterkju. Skyldi varan tollflokkast sem ostur og bera 30 prósenta verðtoll auk magntolls á innflutning utan tollkvóta. Danól ehf. hafi höfðað mál á hendur ríkinu árið 2021 þar sem fyrirtækið leitaðist við að ógilda þetta bindandi álit tollgæslustjóra. Fyrirtækið hafi tapað málinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, áfrýjað til Landsréttar, tapað málinu þar aftur, óskað eftir leyfi til áfrýjunar til Hæstaréttar og þeirri beiðni hafi verið hafnað af Hæstarétti. Þá hafi verið óskað eftir endurupptöku til Endurupptökudóms og þeirri beiðni einnig hafnað. Málið hafi aftur verið tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur og tapast að nýju. Fyrirtækið hafi aftur áfrýjað til Landsréttar, sem nú hefur vísað málinu frá. „Samhliða málarekstrinum hafa innflutningsaðilar þrýst á stjórnvöld að fella niður toll á umræddri vöru. Samtök fyrirtækja í landbúnaði hafa ásamt öðrum samtökum íslenskra matvælaframleiðenda lagst gegn slíkum hugmyndum enda umfangsmiklir hagsmunir í húfi fyrir innlenda framleiðslu.“
Tollflokkun pitsaosts Landbúnaður Dómsmál Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Viðskipti innlent „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Viðskipti innlent Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran Viðskipti innlent Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Viðskipti innlent Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Viðskipti innlent Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip Viðskipti innlent Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Viðskipti innlent „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Viðskipti innlent Atvinnumennskan í útlöndum: Tekjur, tækifæri og margir hattar á höfði Atvinnulíf Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Sjá meira