Hvernig fækkum við mistökum hjá Skattinum? Ólafur Stephensen skrifar 10. mars 2026 17:45 Frammistaða starfsmanna Skattsins í vinnunni sinni fær ekki góða umsögn hjá framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda í frétt sem birtist í Morgunblaðinu síðastliðinn laugardag. Fjöldinn allur af röngum rukkunum vegna kílómetragjalds hefur verið sendur út frá því nýtt fyrirkomulag skattheimtu af ökutækjum var tekið upp um áramótin, með tilheyrandi veseni og hugarangri fyrir bíleigendur. „Þessi fyrstu skref fá því miður falleinkunn,“ segir Runólfur Ólafsson í viðtali við blaðið. Félagsmenn í Félagi atvinnurekenda hafa ekki farið varhluta af röngum reikningum vegna kílómetragjalds. Að leiðrétta innheimtuna kostar mikinn tíma, fyrirhöfn og leiðindi, jafnvel þótt starfsmenn Skattsins séu duglegir að biðjast afsökunar á mistökunum. „Alltaf leiðinlegt þegar svona gerist“ Rangir reikningar vegna kílómetragjalds eru ekki einu mistökin sem eru gerð hjá Skattinum. Þau eru satt að segja nokkuð algeng, enda er enginn fullkominn. Í byrjun árs höfðu félagsmenn í FA, sem standa í innflutningi á blómum, til dæmis samband við félagið vegna nýrra tolla, sem voru innheimtir hjá fyrirtækjunum vegna innflutnings á nokkrum blómategundum. Starfsmenn Skattsins gáfu fyrirtækjunum þau svör að tollum hefði verið breytt um áramótin og innheimtu gjöldin af venjulegri skilvirkni. Þetta kom FA spánskt fyrir sjónir, enda verður sköttum ekki breytt nema með lögum og félagið kannaðist ekki við að neitt frumvarp um hækkun á blómatollum hefði verið samþykkt á Alþingi. Á endanum kom í ljós að mistök höfðu verið gerð við uppfærslu á kerfum um áramótin. „Það er alltaf leiðinlegt þegar svona gerist,“ sagði embættismaðurinn, sem á endanum leiðrétti mistökin og lofaði endurgreiðslu á tollunum. Nú kunna lesendur að spyrja hvað greinarhöfundur sé að æsa sig. Geta ekki alltaf orðið mistök? Er ekki eðlilegt að fyrirgefa þau bara og reyna að gera það bezta úr hlutunum? Jú, það finnst mörgum – en ekki Skattinum. Embættið hefur beinlínis beitt sér fyrir því að fólki, sem starfar hjá einkafyrirtækjum, sé refsað fyrir að gera mistök í vinnunni og að vinnuveitendum skuli líka refsað fyrir mistök starfsmanna. Refsað fyrir mistök Skýrum þetta nánar. Vorið 2017 flutti fjármálaráðherra frumvarp sem innihélt tillögu frá tollstjóraembættinu (sem nú er hluti Skattsins) um að breyta saknæmisskilyrðum í 172. grein tollalaga. Lagt var til að í stað þess að refsa mætti innflytjendum vöru fyrir ranga upplýsingagjöf í tollskýrslu vegna ásetnings eða stórfellds gáleysis, mætti refsa fólki fyrir að gefa rangar upplýsingar af einföldu gáleysi. Þetta þýðir á mannamáli að tollstjóraembættið vildi að hægt yrði að refsa fólki fyrir misgáning eða mistök. Rökin voru að það væri svo erfitt að sýna fram á ásetning eða stórfellt gáleysi þegar rangar upplýsingar væru veittar í tollskýrslum. Félag atvinnurekenda og fleiri samtök fyrirtækja andmæltu þessari tillögu harðlega. FA benti á að tollalöggjöfin væri flókin og ógegnsæ og innflytjendur væru oft í miklum vandræðum með að ráða fram úr henni. Dæmi væru um að jafnvel þótt fengin hefði verið ráðgjöf starfsmanna tollstjóra varðandi tiltekna tollframkvæmd yrði það niðurstaðan löngu síðar að vara hefði verið rangt tollflokkuð og innflytjandinn þá sakaður um ranga upplýsingagjöf. FA benti á að leiðin til að tryggja að réttar upplýsingar væru veittar væri frekar sú að tollayfirvöld legðu sig betur fram um leiðbeiningu og ráðgjöf við framkvæmd tollalaganna. Á þessi andmæli var ekki hlustað. FA og önnur hagsmunasamtök innflutningsfyrirtækja voru ekki einu sinni boðuð á fund þingnefndar til að ræða málið, heldur rann það ljúflega og umræðulítið í gegnum þingið. Afleiðingarnar hafa í sumum tilvikum verið grafalvarlegar fyrir starfsfólk innflutningsfyrirtækja, sem getur nú sætt refsiábyrgð fyrir að gera mistök þótt enginn vilji hafi staðið til þess að komast hjá greiðslu aðflutningsgjalda. Skatturinn hefur síðan lagzt eindregið gegn öllum tilraunum einstakra þingmanna til að vinda ofan af þessu óréttlæti, með þeim fráleitu rökum að það að breyta saknæmisskilyrðunum til fyrra horfs myndi torvelda rannsóknir á skipulagðri glæpastarfsemi! Fyrirtækjunum refsað líka Svo var enn bætt um betur. Í fyrra voru aftur gerðar breytingar á 172. grein tollalaganna að undirlagi Skattsins, þess efnis að einnig mætti gera lögaðila (þ.e. fyrirtæki) sekt fyrir brot gegn ákvæðinu, „óháð því hvort brotið verði rakið til saknæms verknaðar fyrirsvarsmanns eða starfsmanns lögaðilans, enda sé brotið drýgt til hagsbóta fyrir lögaðilann eða hann hafi notið hagnaðar af brotinu.“ Á mannamáli þýðir þetta að það má refsa fyrirtæki og gera því sekt fyrir það að starfsmaður þess geri mistök í vinnunni. „Með slíku ákvæði verða tryggð fullnægjandi varnaðaráhrif gagnvart lögaðilum vegna þess háttar brota,“ sagði í greinargerð frumvarpsins sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra lagði fram um málið. Starfsmenn einkafyrirtækja, sem gera mistök við gerð tollskýrslu, geta lent á sakaskrá og þurft að greiða sekt. Vinnuveitendur þeirra geta sömuleiðis þurft að greiða sekt vegna mistaka starfsmanns. Fyrir starfsmenn Skattsins, sem gera mistök í vinnunni sem kosta einstaklinga og fyrirtæki mikla peninga, eru afleiðingarnar engar – þótt mistökin geti varðað miklu hærri fjárhæðir en um er að ræða í málum einstakra starfsmanna einkafyrirtækja. Jafnvel þótt innheimta sé leiðrétt er fólki aldrei bættur sá kostnaður sem liggur í öllu veseninu og fyrirhöfninni sem það kostar að fá leiðréttingu sinna mála. Hvernig fækkum við mistökum hjá Skattinum? Nú vaknar óneitanlega sú spurning hvernig sé hægt að fækka mistökum hjá Skattinum, til dæmis við innheimtu kílómetragjaldsins. Er ekki einfaldast að það gerist með því að starfsmenn hans búi við sama lagaumhverfi og starfsfólk einkafyrirtækja í innflutningi – að þeir fái sekt og skráningu á sakaskrá fyrir að gera mistök? Til að „tryggja fullnægjandi varnaðaráhrif“ gæti verið árangursríkt að leggja sektir á lögaðilana, sem hagnast á mistökunum, þ.e. Skattinn og fjármála- og efnahagsráðuneytið. Þær sektir yrðu greiddar beint til einstaklingsins eða lögaðilans, sem bæri hallann af mistökum starfsmanna Skattsins. Væri þetta ekki réttlátt og sanngjarnt fyrirkomulag? Höfundur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Stephensen Stjórnsýsla Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson Skoðun Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir Skoðun Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Biðlisti eftir lífinu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Þetta gerðum við á 15 mánuðum Heiða Björg Hilmisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen skrifar Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Aukum valfrelsi foreldra í Mosfellsbæ Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Heilsársbúseta er hjarta samfélagins Þorgerður Lilja Björnsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík verður að styðja við fátæk börn í borginni Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálfskapaður vandi Evrópu Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Fyrirmyndir Sigrún Steinarsdóttir skrifar Skoðun Kosningar og leikskólamál Sigríður Clausen skrifar Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir skrifar Skoðun Þetta gerðum við á 15 mánuðum Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Fullveldið er falið í gagnaeign Hjörtur Smárason skrifar Skoðun Borgar menning sig? Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra skrifar Skoðun Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Hvar slær hjarta kjósenda? Ragnar Sigurður Kristjánsson skrifar Skoðun Afþökkum barnaskatt Samfylkingarinnar í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson skrifar Skoðun Leikskóladvöl í Fjarðabyggð er lúxus Ásdís Helga Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Týndi hópurinn á húsnæðismarkaði – gullnu árin Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Fólkið fyrst í Hafnarfirði Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Þessi fortíð lofar ekki góðu Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Menning er undirstaða öflugs samfélags á Seltjarnarnesi Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Atkvæði er rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Sterkt samfélag byggir á fjölbreyttu atvinnulífi Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Samúel Karl Ólason skrifar Skoðun Af hverju ég býð mig fram fyrir Kópavog Svava Halldóra Friðgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir Skoðun
Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir skrifar
Skoðun Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra skrifar
Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar
Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir Skoðun