„Ógeðslega gaman og ég er ógeðslega ánægð með allar“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. mars 2026 20:48 Lovísa Thompson skilaði sínu hlutverki vel í kvöld. Vísir/Hulda Margrét „Þetta var ógeðslega gaman,“ sagði Lovísa Thompson eftir sterkan eins marks sigur íslenska kvennalandsliðsins í handbolta gegn Svartfellingum í undankeppni EM í kvöld. „
Mér fannst við bara vera vel undirbúnar og mæta af fullum krafti. Við gerðum allt frekar vel, þannig já, þetta var bara ógeðslega gaman,“ bætti Lovísa við. Íslenska liðið mætti með mikla og góða orku í leik kvöldsins. Sjálf þurfti Lovísa að leysa stöðu hægri skyttu í kvöld, en gerði svartfellsku vörninni oft og tíðum erfitt fyrir. „Það kemur bara maður í manns stað og maður þarf bara að leysa það hlutverk sem maður fær hérna í landsliðinu og reyna að gera sitt besta. Ég er ánægð að það tókst ágætlega í dag. Ég er ánægð að mér tókst að spila svolítið upp á þær og skila mínu hlutverki, sem var að dreifa boltanum. Þannig þetta var bara ógeðslega gaman og ég er ógeðslega ánægð með allar. Þetta var flott.“ Þá var Lovísa ánægð með það hvað íslenska liðið hélt orkustiginu háu allan leikinn. Sjálf hefði hún viljað aðeins meira. „Mér fannst við meira að segja geta keyrt aðeins meira. Við erum alveg með frekar góða leikmenn sem eru fljótir á fótunum þannig við hefðum alveg mátt keyra aðeins hraðar. En það er kannski bara tækifæri til að bæta það í næsta leik.“ Næsti leikur Íslands er einmitt strax á sunnudaginn þegar liðið mætir Svartfellingum í annað sinn, þá úti í Svartfjallalandi. Lovísa viðurkennir að mögulega hafi verið gott að eiga inni smá orku eftir kvöldið fyrir þann leik. „Já, algjörlega. Nú þurfum við bara að safna enn meiri orku. Við erum að fara í flug núna á eftir þannig það verður allt gert til að vera í toppstandi á sunnudaginn,“ sagði Lovísa að lokum.
Landslið kvenna í handbolta EM kvenna í handbolta 2026 Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Sport Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði Fótbolti Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Fótbolti Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Íslenski boltinn Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Fleiri fréttir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Sjá meira