Norðmenn skipta út landsliðsþjálfaranum sínum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. mars 2026 16:02 Jonas Wille mun ekki stýra norska landsliðinu á HM í Þýskalandi á næsta ári. EPA/Bo Amstrup Jonas Wille hefur stýrt norska karlalandsliðinu í handbolta á stórmóti í síðasta sinn því samningur hans sem landsliðsþjálfari verður ekki framlengdur.
Þetta staðfestir norska handknattleikssambandið í dag. Ákvörðunin var tekin þegar stjórn sambandsins fjallaði um málið á þriðjudagskvöld.„Handboltakarlarnir hafa undir stjórn Jonas tekið mikilvæg skref, þótt það endurspeglist ekki í úrslitum á síðustu stórmótum,“ sagði Randi Gustad, forseti norska sambandsins, og bætti við:„Þegar stjórnin hefur nú engu að síður ákveðið að framlengja ekki samninginn snýst það á endanum um að við höfum trú á því að aðrir kandídatar séu til sem munu auka líkurnar á því að liðinu takist að ná því síðasta sem upp á vantar á komandi árum,“ sagði Gustad. Wille hefur gegnt starfinu síðan hann tók við af Christian Berge árið 2022. Hann segir að hann og forsetinn skilji sem vinir en er um leið hissa á því að fá ekki að halda áfram.„Þetta hefur verið mjög skipulagt matsferli. Sjálf matsskýrslan hefur verið mjög jákvæð fyrir mig. Það tek ég með mér áfram, að þar hef ég fengið staðfestingu á því að mörgum finnst ég hafa unnið gott starf,“ sagði Wille við norska ríkisútvarpið en þetta kom honum á óvart.„Já, það verð ég að segja. Um leið er erfitt fyrir mig að vita nákvæmlega hvaða viðmið þau hafa lagt mat á. Það sem ég hef fengið að heyra er að þeim finnist aðrir vera enn betri. Það verð ég bara að virða, það er ekki mikið sem ég get gert í því,“ sagði Wille.Hann stýrði liðinu á fimm stórmótum á fjögurra ára samningstíma sínum. Noregur var ekki nálægt verðlaunum á þessu tímabili en náði bestum árangri á því fyrsta þegar liðið endaði í sjötta sæti á HM 2023. Liðið endaði í níunda sæti á Evrópumótinu í janúar. Síðasti úrslitakeppnisleikur Wille var afgerandi tap fyrir Danmörku á EM. Síðustu verðlaun Noregs voru bronsverðlaunin sem liðið vann á Evrópumótinu 2020.
HM karla í handbolta 2027 Norski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira