Dagur segir Þorstein auk Jóns eiga heiðurinn af EES-samningnum Jakob Bjarnar skrifar 3. mars 2026 12:13 Dagur B. Eggertsson veltir fyrir sér afstöðu Davíðs og Sjálfstæðisflokksins til ESB og EES-samningsins. Hann telur sig hafa fundið svarið við þeirri ráðgátu. vísir/vilhelm Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, telur að þegar Davíð Oddsson gekk beint úr stóli borgarstjóra í forsætisráðuneytið 1991 hafi samningar um EES-samningana verið tilbúnir á laun í samningum milli þeirra Þorsteins Pálssonar og Jóns Baldvins Hannibalssonar.
EES-samningarnir, sem að margra mati voru mikilvægt skref fyrir Ísland í átt til nútímans, hafa löngum verið skrifaðir á afrekalista Davíðs Oddssonar auk Jóns Baldvins Hannibalssonar, þá formanns Alþýðuflokksins. Þeir mynduðu í snatri svokallaða Viðeyjarstjórn árið 1991 og 1994 gerðist Ísland aðili að Evrópska efnahagssvæðinu – EES. En er málið svo einfalt? Ekki ef marka má Dag. Hann telur drög hafa legið fyrir áður en Davíð kom að málum. Þetta kemur lauslega fram í minningarorðum sem Dagur ritar að Davíð gengnum í fastan dálk sem hann skrifar í Morgunblaðið. Hann útskýrir málið nánar á Facebook-síðu sinni. Dagur segir að það hafi reynst sér snúið að rita um Davíð því fáir, ef nokkrir, hafi valið sér eins vond orð á prenti í gegnum tíðina og hann. Dagur segist ekki halda því gegn Davíð, hann hafi verið margir menn. Dagur ritaði gagnmerka bók um Steingrím Hermannsson og veit því um hvað hann er að tala. Dagur furðar sig á því að Davíð hafi sett aðild Íslands að Evrópusambandinu á dagskrá þegar hann leiddi framtíðarnefnd flokksins sem varaformaður. Davíð leggst gegn viðræðum um EES-samninginn „Þegar ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar hefur viðræður um EES-samninginn skömmu síðar undir forystu Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra og formanns Alþýðuflokksins leggst Sjálfstæðisflokkurinn og Davíð þvert gegn þeim. Eftir fyrstu alþingiskosningarnar sem Davíð leiðir flokk sinn í vorið 1991 mynda Jón Baldvin og Davíð hins vegar stjórn (á einungis tveimur dögum að sagt var) sem snerist ekki síst um inngöngu í EES – eitt mikilvægasta skref Íslands inn í nútímann.“ Dagur veltir fyrir sér ráðgátunni að baki afstöðu Sjálfstæðisflokksins og Davíðs til Evrópusambandsins.vísir/vilhelm Dagur segist aldrei hafa skilið hvernig í þessu lá fyrr en hann komst að því að áður en Davíð varð formaður hafi þeir Þorsteinn Pálsson, þáverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, en Davíð var þá varaformaður, og Jón Baldvin, ásamt Jóni Sigurðssyni, lagt grunn að þessari ríkisstjórn nokkru fyrir kosningarnar. „Sum sé áður en Davíð verður formaður. Hann gat því gengið að forsætisráðherrastólnum vísum – þó gegn þessu gjaldi – eftir að hafa sigrað Þorstein í formannsslag.“ Ekki rétt að eigna Davíð heiðurinn Dagur segir þetta lýsa Davíð að verulegu leyti, hann hafi verið ósvífinn andstæðingur en gat kúvent ef það hentaði. Það að koma EES-samningnum í gegn hafi verið afrek en kannski ekki rétt að eigna Davíð þann heiðurinn. „Það pólitíska afrek í mínum huga [er] fyrst og fremst afrek Jóns Baldvins og Alþýðuflokksins, sem tókst að koma EES-samningunum af stað í félagshyggjustjórn og koma honum í gegnum þingið í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn, eftir að hans fyrrum samstarfsmenn höfðu snúist gegn samningsgerðinni. Davíð Oddsson á Alþingi í sumarbyrjun 2003. Nema þá, ef vera skyldi, að Þorsteinn Pálsson ætti þarna einnig nokkurn heiður sem einn höfuðarkitekt að þessari fyrstu ríkisstjórn Davíðs.“ Dagur segist með þessu ekki vilja gera lítið úr hlut Davíðs sjálfs þó að hann hafi þarna skipt um skoðun og sagan viljað skreyta hann stolnum fjöðrum. „Kannski leyndist í honum meiri Evrópusinni en hann vildi vera að láta í pólitískum skylmingum seinni tíma,“ spyr Dagur.
EES-samningurinn Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Viðreisn Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira