Ellefu í framboði í prófkjöri Pírata Lovísa Arnardóttir skrifar 25. febrúar 2026 10:06 Alexandra og Kristinn Jón vilja bæði leiða lista Pírata. Vísir/Ívar Fannar og aðsend Ellefu eru í framboði í prófkjöri Pírata í Reykjavík. Prófkjör fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor hefst á morgun. Tveir sækjast eftir fyrsta sæti, fjórir eftir öðru til fimmta sæti og fjöldi eftir neðri sætum.
Alexandra Briem, núverandi oddviti, sækist eftir fyrsta sæti á lista flokksins sem og Kristinn Jón Ólafsson, varaborgarfulltrúi flokksins. Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, formaður flokksins, sækist eftir öðru til fjórða sæti. Píratar eiga tvo fulltrúa í borgarstjórn en fengu þrjá kjörna. Dóra Björt Guðjónsdóttir oddviti flokksins skipti yfir í Samfylkinguna fyrr á þessu ári. Opnað verður fyrir kosningu í prófkjöri á morgun og stendur atkvæðagreiðslan til 6. mars. Til að taka þátt þurfti að skrá sig í flokkinn fyrir 18. febrúar en frambjóðendur þurftu að skila sínu framboði fyrir 14. febrúar. Kosningin mun fara fram á vef Pírata. Frambjóðendur eru: Alexandra Briem borgarfulltrúi sækist eftir 1. sæti. Guðni Freyr Öfjörð, urbanisti, sækist eftir 9. - 10. sæti. Hans Alexander Margrétarson Hansen, deildarstjóri á leikskóla, sækist eftir 4.-6. sæti Jökull Leuschner Veigarsson, framkvæmdastjóri og atvinnubílstjóri, sækist eftir 3.-4. sæti. Kristinn Jón Ólafsson, 1. varaborgarfulltrúi Pírata, sækist eftir 1. sæti Oddur Björn Jónsson, stuðningsfulltrúi á íbúðakjarna, sækist eftir 2.-5. sæti. Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, formaður Pírata, sækist eftir 2.-4. sæti. Olga Margrét Kristínardóttir Cilia, lögfræðingur, sækist eftir 2. sæti. Sæborg Ninja Urðardóttir, lafði og fjöllistakvár, sækist eftir 4. sæti. Tinna Helgadóttir, viðskiptafræðingur og 3. varaborgarfulltrúi, sækist ekki eftir tilteknu sæti. Unnar Þór Sæmundsson, framkvæmdastjóri og laganemi, sækist eftir 2.-5. sæti. Á vef Pírata segir um röðun á lista að raðað verði samkvæmt úrslitum forgangskosningar með Schulze-aðferð eftir kosningu í kosningakerfi Pírata. Frambjóðandi geti valið að taka lægra sæti á lista og færast þá aðrir frambjóðendur ofar á lista með einfaldri færslu. Hafni frambjóðandi sæti eða er ófær um að taka því fellur viðkomandi brott af lista og færast aðrir frambjóðendur ofar á lista með einfaldri færslu. Ef frambjóðandi er ekki kjörgengur er heimilt að víkja viðkomandi af lista. Kjörstjórn Pírata í Reykjavík raðar í þau sæti sem ekki raðast í að loknu prófkjöri með inngildingu og jafnrétti að leiðarljósi. Kjörstjórn er heimilt að bæta öðrum sem ekki voru í prófkjöri á listann með samþykki þeirra sjálfra og í samráði við stjórn Pírata í Reykjavík.
Píratar Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Tengdar fréttir Formaður Pírata sækist eftir öðru til fjórða sæti Ellefu einstaklingar vilja vera á lista Pírata í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Fram kom í fyrr í dag að Kristinn Jón Ólafsson, fyrsti varaborgarfulltrúi Pírata, sækist eftir því að leiða listann ásamt Alexöndru Briem borgarfulltrúa. 16. febrúar 2026 15:26 Borgarfulltrúi fer ekki aftur fram og hættir í Pírötum Magnús Davíð Norðdahl borgarfulltrúi Pírata sækist ekki eftir sæti á framboðslista Pírata í sveitarstjórnarkosningunum í maí. Við lok kjörtímabils ætlar hann að segja skilið við þátttöku í skipulögðu stjórnmálastarfi og þar með einnig samtökum Pírata. Þetta tilkynnti Magnús á Facebook-síðu sinni í dag. 27. janúar 2026 15:27 Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi hefur sagt skilið við borgarstjórnarflokk Pírata og gengið til liðs við Samfylkinguna. Meirihlutinn í borgarstjórn mun áfram vinna saman. Alexandra Briem verður oddviti Pírata og formaður borgarráðs. Dóra Björt tekur á móti við formennsku í stafrænu ráði borgarinnar og tekur sæti Hjálmars Sveinssonar í borgarráði. 16. desember 2025 11:32 Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Innlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Fleiri fréttir Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Sjá meira
Formaður Pírata sækist eftir öðru til fjórða sæti Ellefu einstaklingar vilja vera á lista Pírata í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Fram kom í fyrr í dag að Kristinn Jón Ólafsson, fyrsti varaborgarfulltrúi Pírata, sækist eftir því að leiða listann ásamt Alexöndru Briem borgarfulltrúa. 16. febrúar 2026 15:26
Borgarfulltrúi fer ekki aftur fram og hættir í Pírötum Magnús Davíð Norðdahl borgarfulltrúi Pírata sækist ekki eftir sæti á framboðslista Pírata í sveitarstjórnarkosningunum í maí. Við lok kjörtímabils ætlar hann að segja skilið við þátttöku í skipulögðu stjórnmálastarfi og þar með einnig samtökum Pírata. Þetta tilkynnti Magnús á Facebook-síðu sinni í dag. 27. janúar 2026 15:27
Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi hefur sagt skilið við borgarstjórnarflokk Pírata og gengið til liðs við Samfylkinguna. Meirihlutinn í borgarstjórn mun áfram vinna saman. Alexandra Briem verður oddviti Pírata og formaður borgarráðs. Dóra Björt tekur á móti við formennsku í stafrænu ráði borgarinnar og tekur sæti Hjálmars Sveinssonar í borgarráði. 16. desember 2025 11:32