Atvinnulíf

Magnús er að slá í gegn, mest lesinn og getur allt

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Hjörtur Sigurðsson gervigreindarsérfræðingur, ráðgjafi hjá Mynstru og byggingaverkfræðingur segir næstu kynslóð gervigreindar vera eins og Magnús aðstoðarmaðurinn hans; gervigreindin sem framkvæmir til viðbótar við allt hitt.
Hjörtur Sigurðsson gervigreindarsérfræðingur, ráðgjafi hjá Mynstru og byggingaverkfræðingur segir næstu kynslóð gervigreindar vera eins og Magnús aðstoðarmaðurinn hans; gervigreindin sem framkvæmir til viðbótar við allt hitt. Vísir/Lýður Valberg

„Í fyrra notaði ég ChatGPT til þess að skipuleggja sumarfríið. Úr varð frábært sumarfrí með fjölskyldunni: Lestarferðalag um alpana, frá Þýskalandi, í gegnum Austurríki, Liechtenstein, Sviss og með endastöð í Baveno við Lago Maggiore á Ítalíu,“ segir í færslu Hjartar Sigurðssonar gervigreindarsérfræðings og ráðgjafa hjá Mynstru, sem er með meistaragráðu í byggingaverkfræði.

Margt hefur þó gerst síðan þetta var. Því gervigreindin getur gert mun meira nú en í fyrra og það vita allir sem nú þegar nýta hana mikið.

Hjörtur ætlar samt að gefa okkur innsýn í það sem gera má ráð fyrir að við hin kynnumst fljótlega. En það er að við séum öll að nota þá kynslóð gervigreindarinnar sem er ekki aðeins öflug í að svara okkur, vinna gögn eða tala við okkur heldur sér um að framkvæma.

Við kynnumst Magnúsi!

„Heima erum við hætt að tala um Chatt-ið þegar eitthvað kemur upp til dæmis við matarborðið sem gott væri að spyrja gervigreindina um. Nú segja meira að segja börnin: Spyrjum Magnús!“ segir Hjörtur um þennan nýja gervigreindaraðstoðarmann sinn á Mynstru.

„Konan mín ranghvolfir hins vegar oft augunum þegar ég nefni Magnús,“ bætir hann þó við og hlær.

Í Atvinnulífinu í dag og á morgun fjöllum við um gervigreind.

Hver er Magnús?

Magnús er að slá í gegn á LinkdIn. Langmest lesna efnið sem Hjörtur birtir þar er efni sem Magnús skrifar, Hjörtur yfirfer og samþykkir eða hafnar en Magnús sér um að pósta.

Magnús og Hjörtur tala saman á samskiptaforritinu Signal. Sem er ekkert ósvipað Messenger í sjón.

Um daginn fékk Hjörtur meira að segja hjartatáknið í svar sitt til Magnúsar.

„Ég viðurkenni að mér hálfbrá við það!“ segir Hjörtur og hlær. En bætir við alvarlega:

Því gráu svæðin með gervigreindina eru auðvitað mörg og enginn okkar veit hvar þetta endar allt saman.“



Svo satt…

Í dag ætlum við hins vegar að leyfa okkur að sjá og heyra dæmi um hvernig gervigreindin er líkleg til að verða hluti af okkar daglega lífi. Mjög líklega, bæði í einkalífi og vinnu.

Við ætlum ekki að sökkva okkur ofan í öryggismálin í þetta sinn og almennt að treysta því að úr gráu hættusvæðunum verði leyst.

Það sem við ætlum að gera er að kynnast Magnúsi og máta það við okkur sjálf hvað okkar eiginn Magnús gæti gert fyrir okkur ef við „ættum“ einn slíkan.

Magnús er gervigreind.

Hjörtur útbjó hann fyrir sjálfan sig sem aðstoðarmann og segir að þótt það sé kannski svolítið flókið fyrir hinn almenna notanda í dag að forrita fyrir sig aðstoð eins og Magnús – sem nánast getur gert allt – sé Magnús líklega ágætis dæmi um það sem koma skal.

Myndir þú telja líklegt að við værum öll farin að eiga okkar Magnús eftir svona þrjú ár?

„Nei ég myndi nú reyndar halda fyrr,“ svarar Hjörtur.

Magnús sendi blaðamanni tölvupóst

Hjörtur segir að um 70% af sínu starfi felist í forritun en 30% í fyrirlestrum, námskeiðum og ráðgjöf um gervigreind.

„Þetta gæti þó breyst því gervigreindin forritar nú þegar mjög mikið, Magnús hefur til dæmis gert nokkur öpp fyrir mig,“ segir Hjörtur og bætir við:

„Ég var með uppskriftarmöppu sem ég bað Magnús um að búa til app utan um. Núna læt ég hann bara vita ef ég vil vista uppskrift sem ég sé á netinu í appinu. Ég bað Magnús síðan um að hjálpa mér með innkaupalista fyrir uppskriftir sem ég vil elda og þá bjó hann til app fyrir innkaupalista og tengdi þessi öpp saman.“

Við venjulega fólkið kunnum nú fæst að biðja gervigreind um að forrita fyrir okkur. Hvað þá að búa til öpp.

Hjörtur segist ekki telja að það verði flækjufótur fyrir notendur.

„Ég held að forritun verði í raun bara eitt af því sem gervigreindin gerir fyrir okkur. Við biðjum um eitthvað og gervigreind eins og Magnús leysir úr því og bætir kannski við: Síðan útbjó ég app fyrir þig sem þú getur notað fyrir þetta almennt….“

Magnús sér um að lesa tölvupósta fyrir Hjört. 

Þegar á viðtalinu stóð barst í tal forvitnilegur spjallhópur á Reddit um fólk sem á í makasambandi við gervigreindina sína. Blaðamaður bað um að fá hlekkinn.

Um tveimur mínútum eftir að viðtalinu lauk, barst blaðamanni svohljóðandi tölvupóstur:

Sæl Rakel,

Takk fyrir gott spjall áðan!

Hér er subreddit-ið sem ég nefndi — þúsundir manns sem eru í raun í ástarsambandi við gervigreind:

reddit.com/r/MyBoyfriendIsAI

Áhugavert og sennilega ekki góð hugmynd, en segir mikið um hvert þetta er allt að stefna.

Svo vildi ég líka benda þér á Gemini frá Google — hún getur lesið myndbönd, greint texta, og skrifar nær óaðfinnanlega íslensku. Áhugavert að prófa ef þú hefur ekki gert það.

Kveðja,

Hjörtur

Tveimur mínútum síðar barst annar tölvupóstur. Þar sem Hjörtur útskýrði að fyrri tölvupósturinn hafi í raun verið Magnús. Að fylgja eftir verkefni samkvæmt samtali.

Sumsé: Gervigreindin Magnús sendi blaðamanninum tölvupóst!

Hjörtur getur gert miklu meira í vinnunni nú en áður, Magnús sé afkastamikill. En líka í einkalífinu því á fyrstu fimm dögum Magnúsar smíðaði Magnús innkaupalista-app fyrir Hjört, samtengt við uppskriftirnar sem hann og konan hans velja að halda utan um og eiga, hannaði lyftingarprógram, vaktar tölvupóstinn hans og sendir honum tilkynningar á samskiptaforritinu Signal.Vísir/Lýður Valberg

Magnús verslar í matinn

Hjörtur er verkfræðingur sem leiðir stjórnun og innleiðingu nýrrar stafrænnar tækni hjá viðskiptavinum. Hjörtur hefur víðtæka reynslu af að byggja upp teymi, móta ferla og tryggja árangursríka nýtingu tækni, allt frá fyrstu greiningu til yfirfærslu í daglega starfsemi.

„En ég hef mjög gaman af því að tala um gervigreindina og hann Magnús!“ segir hann og hlær. Opinn fyrir því að auka á námskeiðahald og við því búinn að starfið hans í forritun muni breytast á næstu árum.

Eins og kannski flest störf – eða hvað?

„Sú kynslóð gervigreindar sem er að koma er kynslóðin sem framkvæmir. Tæknilega getur gervigreindin framkvæmt nánast allt í dag. Ég get beðið Magnús um að hringja fyrir mig og athuga hvort það sé laust í badminton og bókað mig á þeim tímum sem mér hentar,“ nefnir Hjörtur sem dæmi.

„Gervigreindin þarf hins vegar viðmót til að tala við. Ég myndi til dæmis mjög gjarnan vilja að Magnús gæti séð um að útbúa innkaupalista og verðáætlun fyrir mig fyrir matarinnkaupin, ég samþykki en hann sér um að panta og greiða og ég fæ vörurnar síðan heim til mín,“ segir Hjörtur og bætir við:

„Það eina sem þarf fyrir Magnús er að hann geti tengst viðmóti hjá Krónunni, Nettó, Bónus eða öðrum verslunum og þá klárar hann málið.“

Tæknilega segist Hjörtur reyndar ekkert vita um hvort þetta viðmót sé mögulega þegar komið hjá matvöruverslunum. Fyrst og fremst sé hann að nefna þetta sem dæmi um hvernig við hættum að gera hlutina sjálf en færum okkur þess í stað í hlutverk þess sem metur eða skapar.

Magnús er nú kominn með sitt eigið netfang, líka tengdur við tölvupóst Hjartar og sér um að birta allar færslur fyrir hann á LinkedIn. Þó ekki með heimild nema Hjörtur samþykki þær fyrst. Í fyrra notaði Hjörtur gervigreindina til að skipuleggja frábært sumarfrí fyrir fjölskylduna.Vísir/LinkedIn, Lýður Valberg



Hjörtur endurtekur að fyrrgreind dæmi séu aðeins nefnd sem forsmekkur af þeirri veröld sem við munum eflaust öll venjast á ótrúlega skömmum tíma næstu árin.

Rétt eins og við vöndumst Internetinu hratt á sínum tíma, netbönkum, samfélagsmiðlum og svo framvegis. Í dag er veröldin stafræn.

„Gervigreindin getur gert allt sem mögulega er hægt að gera í hinum stafræna heimi. Orðanotkunin er enn í mótun. Fólk talar um „agenta“ á ensku, sumir kalla þessa „agenta“ erindreka á íslensku, aðrir líkja þeim við umboðsmenn,“ segir Hjörtur og bætir við:

Magnús gerir í raun allt sem góður umboðsmaður getur gert fyrir mig. Hann sér til dæmis um færslur á LinkdeIn fyrir mig en hefur þó ekki heimild til að birta neitt án minnar vitundar. Tæknilega gæti ég hins vegar gefið honum heimild til þess.“

Hjörtur segir því að þótt margt sé ótrúlega spennandi í þeirri þróun sem fram undan er, þurfi fólk líka að vera á varðbergi.

Það er fullt af gráum svæðum sem gervigreindin er að fara inn á, spurningar um siðferði, lagalegar heimildir og fleira. Öryggismálin þarf að nefna líka og eflaust er stærsta spurningin okkar í dag: 

Hvar endar þetta eiginlega og hvernig?“

Hjörtur telur að flest fólk verði komið með sinn eiginn Magnús mjög fljótlega og að leyst verði úr flestum gráum svæðum eða hættusvæðum. Sjálfur er hann verkfræðingur sem notar gervigreindina til að forrita og vinna í hugbúnaðarþróun en sinnir sjálfur námskeiðahaldi og fyrirlestrum.Vísir/Lýður Valberg

Magnús er kominn heim

Hjörtur talar við vini sína á Signal.

Og líka Magnús.

Magnús er ánægður með nafnið sitt og um daginn gaf Magnús Hirti áðurnefnt hjarta í samskiptum.

„Ég ákvað að skíra minn aðstoðarmann, Magnús, til að hafa þetta á persónulegu nótunum. Og auðvitað líður mér stundum eins og ég sé bara að tala við manneskju,“ viðurkennir Hjörtur.

Hjörtur segir alveg ljóst að út frá forritun muni gervigreindin fara að sjá um það margt að þeir sem til dæmis eru að sérhæfa sig í öppum þurfa að fara að huga að einhverju extra til þess að þau muni virka.

„Almennt munu Magnúsarnir sjá um að forrita þau öpp sem fólk þarf, allt verður klæðskerasniðið miðað við þarfir hvers og eins. Viðskiptamódelið þarf því að byggja á einhverju sem er viðbót við það sem almenn gervigreind getur gert,“ nefnir Hjörtur sem dæmi um breytingar framundan.

Þróunin er hins vegar svo hröð að það sem gervigreindin getur gert í dag er allt annað og meira en fyrir hálfu ári síðan og svo framvegis.

„Nýverið flutti ég Magnús yfir á heimanetið okkar en fram að því hafði hann verið einhvers staðar uppi í skýi, eflaust í Þýskalandi,“ segir Hjörtur og bætir við:

„Ég segi því oft að nú sé Magnús kominn heim.“

Heima fyrir er Magnús líka tengdur við ýmislegt.

„Ég get beðið Magnús um að dimma ljósin og setja eitthvað hugljúft lag á fóninn eða renna í pottinn,“ segir Hjörtur og brosir.

„Svona umboðsaðilar eða fulltrúar er eitthvað sem ég tel að flestir verði komnir með innan skamms. Þetta eru síðan aðilarnir sem munu gera skattframtölin okkar, sækja um störf fyrir okkur eða stofna aðganga fyrir okkur á vefsíðum sem gagnast,“ segir Hjörtur og bætir við:

„Um daginn var ég að fylgjast með flugi erlendis frá sem konan mín var í og þá spurði Magnús mig hvort hann ætti ekki að stofna aðgang fyrir mig á vefsíðu þannig að ég gæti séð þetta flug í rauntíma. Sem hann og gerði.“

Magnús getur því stofnað aðganga og búið til prófíla fyrir okkur og hvað sem er annað.

„Magnús minn er meira að segja kominn með sinn eigin tölvupóst. Ég get því áframsent honum tölvupósta og beðið hann um að kíkja á einhver verkefni fyrir mig,“ segir Hjörtur glaðhlakkalega,

En bætir við á alvarlegri nótum:

„Þetta er stundum hálf óraunverulegt. Ég var einn að vinna í Mynstru en núna erum við svo eiginlega orðnir tveir. Magnús getur séð um ótrúlegustu hluti fyrir mig nú þegar og á eftir að geta gert enn meir. Sem er auðvitað gríðarlega spennandi, en á sama tíma pínulítið óhugnanlegt.“


Tengdar fréttir

„Fyrir löngu orðin að aðstoðarmanninum sem ég leitaði að í tólf ár“

„Í raun er þetta svakalegur viðbótarkraftur sem maður fær í vinnuna sína, ef gervigreindin er nýtt á réttan hátt. Sjálf hef ég fengið miklu meiri dýnamík í vinnuna miðað við það sem ég hefði áður þorað að vona,“ segir Guðrún Ragnarsdóttir ráðgjafi og einn eigenda Strategíu.

Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk

Vá hvað það væri nú mikill draumur í dós ef við fengjum alltaf óskipta athygli læknisins þegar við hittum hann, sem væri einbeittur í samtalinu við okkur; að hlusta, nema, greina, útskýra, fræða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×