Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Lovísa Arnardóttir skrifar 19. febrúar 2026 08:25 Gamla Morgunblaðshöllin var rifin niður í ágúst í fyrra. Á lóðinni á að byggja fjölda íbúða. Vísir/Vilhelm Stjórnendur arkitekta- og verkfræðistofa vænta samdráttar í verkefnum á íbúðamarkaði á næstunni. Alls vænta 43 prósent stjórnenda arkitekta- og verkfræðistofa að verkefnum þeirra á íbúðamarkaði muni fækka á næstu tólf mánuðum en ekki nema eitt prósent að þeim muni fjölga.
Þetta eru niðurstöður könnunar sem Outcome gerði fyrir Samtök iðnaðarins, SI, í upphafi þessa árs í samstarfi við Samtök arkitektastofa og Félag ráðgjafarverkfræðinga. Í tilkynningu frá SI kemur fram að arkitekta- og verkfræðistofur séu framarlega í byggingarferlinu og því gefi niðurstöðurnar vísbendingu um að hægja muni að óbreyttu á uppbyggingu íbúða litið til næstu eins til tveggja ára. Meirihluti segir að verkefnum hafi fækkað. SI Segja um 42 prósent svarenda að verkefnum fyrir íbúðamarkað hafi fækkað á síðustu tólf mánuðum en ekki nema þrjú prósent að þeim hafi fjölgað. Könnunin náði til aðila í greininni sem standa undir um 60 prósent af heildarveltu allra arkitekta- og verkfræðistofa. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar gera stjórnendur fyrirtækjanna ráð fyrir að hafist verði handa við byggingu 1.333 íbúða á næstu tólf mánuðum og á sama tíma verði lokið við byggingu á 1.185 íbúðum. Heildarfjöldi íbúða í byggingu hjá fyrirtækjunum sem tóku þátt í könnuninni er 2.007 sem nemur um 34 prósentum af íbúðum í byggingu á landinu öllu ef miðað er við mælaborð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) um íbúðir í byggingu. Gangi áform fyrirtækjanna eftir verða 2.155 íbúðir í byggingu á þeirra vegum eftir tólf mánuði. Meirihluti telur að verkefnum muni ekki fjölga. SI Samkvæmt mælaborði HMS eru tæplega sex þúsund íbúðir í byggingu en þær voru um níu þúsund í upphafi árs 2023. Í tilkynningu SI segir að ef niðurstöður könnunarinnar séu heimfærðar upp á markaðinn í heild megi reikna með því að íbúðir í byggingu verði áfram um sex þúsund talsins. Þá kemur fram í könnun SI að stjórnendur arkitekta- og verkfræðistofa telji að 89 prósent þeirra íbúða sem verða fullbúnar hjá þeirra fyrirtækjum á næstu tólf mánuðum muni seljast. Þetta hlutfall er 82 prósent þegar litið er til síðustu tólf mánaða. SI telur að það sýni að talsvert líf sé á fasteignamarkaðnum fyrir nýjar fullbúnar íbúðir þrátt fyrir að sölutími hafi lengst undanfarið. Einnig virðast verktakarnir vænta þess að salan muni glæðast. Niðurstöður könnunarinnar sýna einnig að verktakar sem eru að byggja íbúðir á eigin reikning telja 87 prósent að sölutími íbúða sem þeir hafi verið með á sölu hafi lengst á síðustu tólf mánuðum. Tæp níu prósent segja hann hafa staðið í stað og um fjögur prósent telja sölutímann hafa styst á þessum tíma. Mikill meirihluti stjórnenda er sammála um að lengri sölutíma megi rekja til hás vaxtastigs, eða 80 prósent þeirra sem svöruðu. Þá nefna 67 prósent svarenda að strangari lántökuskilyrði íbúðakaupenda hafi lengt sölutíma. Íbúðir ekki eins og kaupendur vilja Fimmtungur telur að lengri sölutíma megi rekja til þess að nýjar íbúðir henti ekki því sem íbúðakaupendur eru að sækjast eftir. Því til viðbótar telja 83 prósent svarenda að langur sölutími nýrra íbúða sé ógn við fjárhagsstöðu fyrirtækisins en um 17 prósent telja að svo sé ekki. Um 90 prósent svarenda segja að háir vextir hafi dregið úr áformum þeirra um íbúðauppbyggingu en um þrjú prósent segja að þeir hafi ekki haft áhrif. Þá segja 33 prósent að dregið hafi úr fjármögnunarmöguleikum þeirra á síðustu 12 mánuðum en 60 prósent segja að svo sé ekki. Ríflega 83 prósent segja að hækkanir sveitarfélaga á sköttum og gjöldum sem þau leggja á byggingu íbúða hafi heft uppbyggingu hjá fyrirtækjum þeirra á síðustu misserum. SI fjallaði um það í nýlegri greiningu. Þá kemur fram í niðurstöðum könnunarinnar að 83 prósent stjórnenda telji að lækkun endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna framkvæmda við íbúðarhúsnæði úr 60 prósentum í 35 prósent hafi dregið úr íbúðauppbyggingu. Sú breyting tók gildi um mitt ár 2023.
Byggingariðnaður Fasteignamarkaður Húsnæðismál Arkitektúr Mest lesið Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Sjá meira