Money Heaven og týndu börnin okkar Davíð Bergmann skrifar 19. febrúar 2026 08:45 Stundum veltir maður því fyrir sér hvort stjórnmálafólk og embættismenn búi á sömu plánetu og við hin. Facebook-síður þeirra sýna Ísland sem heimsveldi í stöðugri sigurför; brosandi andlit á fyrsta farrými í „kynnisferðum“ erlendis á kostnað skattgreiðenda. Þegar þau pósta ekki glansmyndum er tímanum eytt í að skamma minnihlutahópa og kenna þeim um allt sem miður fer. Það er jú auðveldara en að líta í eigin barm. Milli glansheima og plaststóla Þessi hliðarveruleiki ráðamanna er alltaf í þægilegri fjarlægð frá raunveruleikanum. Það er nefnilega miklu skemmtilegra að pósta myndum frá Brussel en að sitja á plaststól á bráðamóttöku Landspítalans. Sá vandi hófst löngu fyrir hrun og bitnar harðast á þeim sem byggðu upp þetta samfélag. Við launum þeim ævikvöldið með því að láta þau tvímenna í herbergjum á meðan þau bíða eftir úrræði eða andláti. Það er betra að búa í hliðarveruleika en að horfast í augu við þetta. Milljarður í vopn – smáaurar í björgunarstarf Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélagsins, orðaði það vel: Við byggjum bankahallir og rándýrar viðbyggingar við Alþingi á meðan lífæðin – spítalinn – er enn í byggingu 20 árum síðar. Hann týndist í sama svartholi og „símapeningarnir“ í þessu dularfulla Money Heaven. Skoðum forgangsröðunina: 1.000 milljónir í vopnakaup: Heilum milljarði hent í tól til að eyða lífi úti í heimi svo hægt sé að skála í fínu boðunum. Fjölsmiðjan: Á sama tíma skilar stærsti vinnustaður ungmenna á höfuðborgarsvæðinu 175 nemum á ári út í lífið fyrir einar 220 milljónir. Við getum ekki einu sinni tryggt iðnnám fyrir alla sem vilja en mætum svo hissa í viðtöl og kveinkum okkur yfir fjölgun ungra öryrkja. Það þarf enga lögfræðimenntun til að sjá samhengið – bara lágmarks heilbrigða skynsemi. En hún er greinilega ekki á dagskrá hjá „þessu fólki“. Kerfislæg blinda á 3.000 ungmenni Soffía Ámundadóttir hjá HÍ varpaði sprengju í vikunni: 1.000 börn í skólaforðun. Þar að auki eru um 3.000 ungmenni (16–24 ára) á höfuðborgarsvæðinu hvorki í námi né vinnu. Viðbrögð kerfisins? „Upplýsingar vantar.“ Ég hef bent á þetta í nokkur ár; þetta kom fram í skýrslu sveitarfélaga strax árið 2022. Ef stjórnmálafólk veit þetta ekki er það vanhæft. Ef það veit það en gerir ekkert er það vanræksla. Kannski er þetta bara lélegur lesskilningur á eigin skýrslum? Við eigum miðlæga skráningu yfir hvern krómhúðaðan krana í Landsbankahúsinu en „enga skráningu“ yfir börnin sem týnast. Fagurgalinn og grámyglan Ráðamenn mæta alltaf í myndver eftir harmleiki, setja upp sorgarsvip og lofa að „gera allt“ – yfirleitt þegar ungmenni hafa þegar týnt lífinu. Svo tekur „grámyglaði hversdagsleikinn“ við. Þegar þarf að fjármagna iðnnám, forvarnir, geðheilbrigðisstuðning eða fangelsismál þá er kistan tóm. Athyglin er flogin á næsta marmarahús eða ráðstefnu í útlöndum. Lendið geimskipinu Fyrir næstu kosningar er spurningin einföld: Ætlum við að kjósa áfram fólk sem speglar sig í glansheimum á meðan innviðirnir molna? Það er kominn tími til að krefjast þess að fólkið sem deilir út okkar peningum lendi geimskipinu og horfist í augu við okkur. Munið að þið vinnið fyrir almenning, ekki sérhagsmuni eða eigin ímynd. Gjörið svo vel að gera eitthvað af alvöru – áður en það gerist eitthvað enn hræðilegra. Heyrumst svo eftir efnum og ástæðum. Höfundur er unglingaráðgjafi til meira en 30 ára, starfar í Fjölsmiðjunni og er orðinn drulluþreyttur á leikritinu um nýju föt keisarans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Bergmann Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Sjá meira
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun