Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Eiður Þór Árnason skrifar 18. febrúar 2026 22:47 Arnar Þór Stefánsson, lögmaður og skiptastjóri þrotabús Play, gaf út kröfuskrá búsins í kvöld. Lex/vísir Skiptastjóri þrotabús Play vill kanna hvort búið eigi bótakröfu á Icelandair vegna yfirlýsinga flugstjóra skömmu fyrir gjaldþrot. Kröfuskrá hefur verið gefin út og hljóða heildarkröfur upp á 21 milljarð króna.
Þar af nema samþykktar forgangskröfur 1,1 milljarði en þeirra á meðal eru einna helst launakröfur fyrrverandi starfsmanna. Heildarkröfur eru um 1.700 talsins og drjúgur hluti kröfuhafa er erlendur. Ekki hefur verið tekin afstaða til almennra krafna. Þetta segir Arnar Þór Stefánsson, lögmaður og skiptastjóri þrotabús Play. Meðal kröfuhafa sé fjöldi flugmiðahafa, einkum erlendra, og íslensk fyrirtæki sem hafi þjónustað flugfélagið. „Þau fá ekkert að öllum líkindum. Við erum tæplega að fara að greiða nokkuð upp í almennar kröfur, þá þarf að finna til eignir sem ná þessum 1,1 milljarði. Það er afar ólíklegt eins og staðan er í dag. Við munum auðvitað reyna að hafa uppi á öllum eignum og verðmætum sem við getum og ég mun reyna það áfram.“ Arnar segir fjölda krafna frá flugmiðahöfum koma á óvart. Neytendur sem kaupi miða með greiðslukortum geti yfirleitt óskað eftir endurgreiðslu frá kortafyrirtæki ef keypt þjónusta sé ekki veitt. Þetta eigi þó síður við ef fólk hafi staðgreitt gjafabréf. Úrskurðurinn komi á versta tíma Arnar var útnefndur skiptastjóri þrotabúsins ásamt Unni Lilju Hermannsdóttur lögmanni en Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði hana vanhæfa í dag. Arnar gagnrýnir hversu langan tíma það tók að úrskurða í málinu þar sem krafan hafi komið fram í lok október. Mikilvægt hefði verið að fá skýra mynd af stöðu skiptastjóra miklu fyrr. „Það er úrskurðað fyrst núna 18. febrúar, eiginlega á versta tíma af því að við vorum þarna í miðri afstöðutöku og fram undan er skiptafundur. Þannig að þetta er slæmur tímapunktur. En ég leysi þá bara úr þessu einn.“ Skiptafundur fer fram 27. febrúar. Arnar segir að ekkert útlit sé fyrir að öðrum skiptastjóra verði bætt við nema Unnur kæri niðurstöðuna og verði úrskurðuð hæf af Landsrétti. Hann telur ekki þörf á öðrum skiptastjóra upp úr þessu þar sem tímafrek vinna á upphafsstigum sé að baki. Meta hvort Play hafi orðið ógjaldfært löngu fyrr Fram undan er að taka afstöðu til riftanleika á ráðstöfunum sem áttu sér stað í aðdraganda gjaldþrotsins, að sögn Arnars. Til að mynda verði skoðað hvort hægt sé að rifta greiðslum félagsins í aðdraganda þrotsins og reyna að fá þær endurheimtar inn í búið. Þetta geti átt við ef einhverjir kröfuhafar hafi fengið greitt umfram aðra þar sem jafnræði kröfuhafa sé meginregla við gjaldþrotaskipti. Þá sé það hluti af næsta fasa að meta á hvaða tímapunkti Play varð ógjaldfært og skoða hvort það var orðið ógjaldfært vel fyrir gjaldþrot. Skoða þurfi mögulega bótaskyldu Icelandair Arnar segir einnig hægt að skoða áhrif skuldabréfaútboðsins sem tryggði Play fjármagn til skamms tíma og hvað hafi orðið um það fé. Rýna þurfi orsakir þrotsins, þar með talið þátt flugstjóra Icelandair sem var jafnframt formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA). „Það liggur til dæmis fyrir að formaður FÍA, sem hefur lengi verið starfsmaður Icelandair, fer í viðtal þarna snemma í september. Það hefur nú alveg komið fram hjá fyrrverandi forsvarsmönnum Play að við það hrynur sala flugmiða og kröfuhafar verða enn þá stressaðri þegar hann er með dómsdagsspár,“ segir Arnar. Rýna þurfi hvort þessi háttsemi starfsmannsins feli í sér misnotkun á markaðsráðandi stöðu af hálfu Icelandair og bótaskyldu félagsins af þeim sökum gagnvart þrotabúinu. Play sendi kvörtun til Samkeppniseftirlitsins þann 5. september 2025 vegna meintrar misnotkunar Icelandair á markaðsráðandi stöðu eftir að umræddur flugmaður spáði gjaldþroti félagsins í viðtali á Bylgjunni. 24 dögum síðar hafði Play hætt starfsemi. „Þetta er eitt af því sem þarf að skoða,“ segir Arnar. Allt komi til greina og hann hafi sem skiptastjóri ákveðnar skyldur sem feli meðal annars í sér að sækja verðmæti. „Ef það er einhver sem olli félaginu tjóni með bótaskyldum hætti þá á þrotabúið þá kröfu og hún rennur þá til kröfuhafa sem eign eftir reglum gjaldþrotaréttarins.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Icelandair Play Gjaldþrot Play Tengdar fréttir Skiptastjóri Play þarf að víkja Héraðsdómur hefur fallist á kröfu Birtu lífeyrissjóðs um að víkja beri Unni Lilju Hermannsdóttur lögmanni úr starfi skiptastjóra þrotabús Play. Eiginmaður Unnar Lilju er eigandi á sömu lögmannsstofu og lögmaður Play. 18. febrúar 2026 13:21 Formaður FÍA hafi beina hagsmuni af því að ráðast gegn Play Flugfélagið Play gerir alvarlegar athugasemdir við orð sem formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna lét falla um félagið í morgun. Ekki sé hægt að túlka þau öðruvísi en sem rangfærslur og dylgjur í garð Play. 2. september 2025 12:36 Icelandair geti ekki svarað fyrir orðræðuna Forstjóri Icelandair segist ekki getað svarað um orðræðuna í kringum Play í aðdraganda gjaldþrots flugfélagsins. Play sendi kvörtun til Samkeppniseftirlitsins þann 5. september síðastliðinn vegna meintrar misnotkunar Icelandair á markaðsráðandi stöðu eftir að flugmaður félagsins spáði fyrir gjaldþroti félagsins í viðtali á Bylgjunni. 29. september 2025 19:57 Segir „vanstilltan“ starfsmann Icelandair kominn úr skotgröfunum „Ég er almennt ekki vanur að svara einhverju svona sem fólk segir um félagið okkar út um bæinn. Maður hefði þá ekki annað að gera. En þetta tal í þessum manni var svo yfirgengilegt að það var nú ekki hjá því komist að bregðast við.“ 3. september 2025 09:37 Mest lesið Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Fleiri fréttir Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu Sjá meira
Skiptastjóri Play þarf að víkja Héraðsdómur hefur fallist á kröfu Birtu lífeyrissjóðs um að víkja beri Unni Lilju Hermannsdóttur lögmanni úr starfi skiptastjóra þrotabús Play. Eiginmaður Unnar Lilju er eigandi á sömu lögmannsstofu og lögmaður Play. 18. febrúar 2026 13:21
Formaður FÍA hafi beina hagsmuni af því að ráðast gegn Play Flugfélagið Play gerir alvarlegar athugasemdir við orð sem formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna lét falla um félagið í morgun. Ekki sé hægt að túlka þau öðruvísi en sem rangfærslur og dylgjur í garð Play. 2. september 2025 12:36
Icelandair geti ekki svarað fyrir orðræðuna Forstjóri Icelandair segist ekki getað svarað um orðræðuna í kringum Play í aðdraganda gjaldþrots flugfélagsins. Play sendi kvörtun til Samkeppniseftirlitsins þann 5. september síðastliðinn vegna meintrar misnotkunar Icelandair á markaðsráðandi stöðu eftir að flugmaður félagsins spáði fyrir gjaldþroti félagsins í viðtali á Bylgjunni. 29. september 2025 19:57
Segir „vanstilltan“ starfsmann Icelandair kominn úr skotgröfunum „Ég er almennt ekki vanur að svara einhverju svona sem fólk segir um félagið okkar út um bæinn. Maður hefði þá ekki annað að gera. En þetta tal í þessum manni var svo yfirgengilegt að það var nú ekki hjá því komist að bregðast við.“ 3. september 2025 09:37